Alþýðublaðið - 24.04.1967, Side 9
Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ 23. apríl 1967
Joan Crawford þorir
ekki fram á leiksvid
„Ég fæddist frammi fyrir kvik-
myndavélinni,” segir Joan Craw-
ford. Hún á við, að hún kunni á-
gætlega við sig á þeim stað. Aftur
á móti getur hún alls ekki leikið
á sviði, hefur engar taugar til
þess.
„Þegar ég reyndi það seinast
leið yfir mig af hræðslu um leið
og tjaldið lyftist,” segir hún, og
hrollur fer um hana við tilhugs-
unina. „Og þegar ég rankaði við
mér staulaðist ég út af sviðinu og
kastaði upp. Ég er voðalegur ræf-
iil, hef bókstaflega engan kjark.
Það er allt í lagi að leika í kvik-
myndum, en sviðið er annað mál.
Ég vildi gefa allt til að sigrast á
þessum veikleika, en ég get það
'ckki.”
Joan Crawford er ein af elztu
stjörnunum í Hollywood hvað
starfsaldur snertir, og svo virt og
dáð, að kollegar hennar tala í
hvísli, þegar hún birtist á sjón-
arsviðinu.
Hún er að verða sextug, en lít-
ur út fyrir að vera um fjörutíu
og fimm ára. Nýverið lauk hún
81. kvikmynd sinni, en árið 1925
lék hún í þeirri fyrstu. Rétt nafn
hennar er Lucille le Seur, en það
þótti of leikhúslegt, svo að því
var breytt í Joan Crawford sam-
kvæmt uppástungu eins af lesend-
um kvikmýndablaðsins Movie
Weékly. Hún er fjórgift, nú ekkja
og á fjögur kjörbörn. Hún þarf
ekki að leika í kvikmyndum pen-
inganna vegna, því að hún er vara-
forseti og einn af aðaleigendum
Pepsi Cola fyrirtækisins og þykir
hafa gott viðskiptavit.
Allt hugsanlegt og óhugsanlegt
hefur verið um hana skrifað á
löngum leikferli, meðal annars
'það gullkorn, að hún hafi látið
skera af augnlokunum á sér til
að augun sýndust stærri!
Hún er feiknalega dugleg og
finnst ekkert til um að vinna
alia daga vikunnar frá klukkan
hálffimm á morgnana og oft langt
fram á kvöld. í leyfum milli kvik-
mynda taka viðskiptastörfin allan
hejinar tíma.
Eftir tólf ár í Hollywood átti
að láta samningana við hana niður
falla. Hún kvaddi kvikmyndaverið
með dapurleik, sem hún reyndi að
láta' ekki á bera — og fór út um
bakdyrnar.
Endalok stjörnu.
En það urðu ekki endalok
Joan Crawford sem stjörnu. Að-
dáendur hennar ætluðu að ærast
þegar þeir fréttu, að hún væri
hætt að leika, og það var ekki um
annað að gera en knékrjúpa henni
og sárbæna hana að koma.aftur.
Hún lét tilleiðast (með gleði) og
vann Oscarinn í næstu mynd. —
Síðan hefur engum dottið í hug,
að hún verði nokkru sinni búin
að vera.
Hún telúr sig standa í óborg-
anlegri þakkaiskuld við hina
tryggu aðdáendur sína. Og hún
heldur áfram að leika í kvikmynd-
um. Það er ekki auðvelt. „Hver
mynd er eins og mín fyrsta,” segir
hún. „Ég er alltaf taugaóstyrk og
alltaf kvíðin að geta ekki gert
nógu vel. En starfið Veiíir lika
fullnægingu .sem ekkert annað í
veröldinni jafnast á við.”
En með kvikmyndirnar er öðru máli að gegna
Timbur
Höfum fyrirliggjandi mótavið, smíðavið, éinnig
þakjárn, þakpappa og saum.
Húsasmiðja Snorra Halldórssonar,
Súðavogi 3.
Ný sending
enskar kvenkápur,
vendikápur og fermingarkápur.
Kápii- og dömubúðin
Laugavegi 46.
Cheenos
Kornvörumar frd General Mills fdiÓ þérí
hverri verzlun. Ljúffeng og bœtiefnank
fæða fyrir alla fjölskylduna.
heildsölubirgðir