Alþýðublaðið - 24.04.1967, Síða 13

Alþýðublaðið - 24.04.1967, Síða 13
13 23. apríl 1967 Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ KSMm&íbIo Siml 4198S Synir þrumunnar Hörkuspennandi ítölsk litmynd. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Barnasýning kl. 3. ■— Gimsteinaþjófarnir — Fræg japönsk kvikmynd. Leikstjóri, Kon Iohikawa. Sýnd kl. 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. Öftaslegin borg. Sean Connery. Sýnd kl. 5 og 7. Barnasýning kl. 3. — Pétur verður skáti — IVlassey Ferguson. DRÁTTARVÉLA og gröfueigendur Nú er rétti tíminíi tíl a$ láta yfirfara og ger& v'ið vélaraar fyrir vorið. Massey Fergixson-við- gerðaþjónustu annast Vélsmiðja Eysteins Leifssonas hf. Síðumúla 17. sími 30662. Sigurgeir Sigurjónsson Málflutningsskrifstofa Óðinsgötu 4 — Sími 11043. SMURSTÖBIN Sætúni 4 — Sími 16.2-27 BÍIlinn er smurður fljólt «g vel, gtðjom allar teguaálr -rf smuroiiU' TAMAS VASARY Meðal hinna mörgu efnilegu ungu pí- anóleikara er Ungverjinn Tamas Vasary, íæddur 1933. Hann hefur aðallega unnið sér frægð fyrir túlkun á verkum Chopins og Liszts. Þótt Vasary hafi fengið hrós fyrir sérlega fagran áslátt og tónameð- ferð, er hann ekki síður djúpskyggn hljóð- færaleikari^ og stendur á gömlum merg. Hann er af merkri tónlistarætt og komu tónlistarhæftleikar hans fram, þegar á unga aldri. Hann man t. d. vel eftir því, þegar hann heyrði Boccerinimenúettjnn sex ára að aldri. Um það leyti lék hann fyrir skólastjóra Tónlistarskólans í fæð- ingarbæ sínum, Debrecen. Þennan reynda uþpalanda rak í rogastanz, er hann heyrði strákpattann leika Ungverska rhapsodíu nr. 2 eftir Liszt eins og fullþroska mað- ur. Árið 1945 var hann við nám lijá Do- hnány í Búdapest, og síðar lærði hann einnig margt af Iliona Kabos í London. Átta árum síðar, tvítugur að aldri, vakti liann athygli, er hann lék Konsert fyrir tvö píanó K 365 eftir Mozart með sjálfri Annie Fischer. Hann hvarf frá Ungverja- Iandi til Sviss skömmu fj'rir uppreisnina 1956, þar sem hann vann og æfði undir handleiðslu Clöru Haskil. Hann er nú bú- settur í Sviss. Um þetta leyti tók Vasary þátt í alþjóðasamkeppni í píanóleik; í Briissei og varð sjötti. Fyrstur varð Vladi- mir Ashkenazy (nýjasta plata með honum er með Sónötum Schuberts nr. 13 og 14 ásamt 12 völsum og ungversku lagi, sem Schubert heyrði fvrst af vörum eldabusku hjá Esterhazy greifa), annar varð Jo Browning ({ Fálkanum rakst ég á Dia- belli Variationir Beethovens með honum) og þriðji André Tchaikovsky. Af þeim hljómplötum, sem Vasary hef- ur leikið inn á, er hann ánægðastur með Nocturnur Chopins, en önnur platan með þeim var að koma út í þessum mánuði frá DGG og fékk góða dóma. Eins og svo marga píanóleikara nú á dögum langar Vasary mjög til að stjórna hljómsveit. „Ég er aldrei afbrýðisamur við pí;anóleikara, lieldur hljómsveitarstjóra,” segir hann. Þessi tilhneiging er einföld afleiðing breytinga á námi tónlistarmanna, þar á meðal söngvara, á síðari árum allt frá stríðslokum. Margir gömlu snilling- anna voru sérstæðir persónuleikar með mismunandi mikla tækni. Þek[tingu þeirra ó tónlistarsögu og -kenningum var oft hryggilega ábótavant. í dag gætu flest- ir hinna yngri píanóleikara haldið hó- skólafyrirlestur um orgelið. Undrist því enginn, þótt þeir sætti sig ógjarnan við að rígbinda sig við eitt hljóðfæri. Engu að síður væri óskandi að Tamas Vasary * segði ekki að fullu skilið við slaghörpuna. Béla Bartok og Zoltán Koldálý voru fremstu tónskáld Ungverja á þessari öld. Bartok dó árið 1945, en Koldaly lézt fyrir skömmu. Þeir voru bóðir nýtízkuleg tón- skáld, en þrátt fyrir það mjög þjóðleg og hreinsuðu og endurlífguðu hin gömlu ung- versku þjóðlög, sem voru lítið annað orð- in en stæling á hinum skrúðugu sígauna- lögum og byggðu mjög á þeim í tónverk- um sínum. Eftir Koldaly má nefna verk eins og Spunaherbergið, gamansama alþýðlega ó- peru, sem gerist í Transsylvaníu og Hary Janos, gamanóperu um skapgóðan, grobb- inn hermann, sem er eins konar ungversk útgáfa af Falstaff Verdis og Tíla Uglu- spegli Strauss. Svíta unnin úr þessari ó- peru var flutt af symfóníuhljómsveitinni hér fyrir tveimur árum. Af hljómsveitar- verkum skal nefnt Sumarkvöld og enn- fremur er velþekkt sónata fyrir selló og píanó og sónata fyrir sellóið eitt sér, þar þykir hann ná út úr hljóðfærinu öllum lnigsanlegum möguleikum. Svo eru tveir strengjakvartettar. Á fimmtíu ára afmæli sameiningar borganna Buda og Pest var honum falið að semja Psalmus Hungaricus (Ungverskan sálm)), sem á skömmum tíma varð víðkunnur. í fyrra kom út hljómplata með Koldaly stúlknakórnum í Búdapest. Kórinn söng lög eftir Koldaly, Bartok og Britten. Þessi kór er þannig til kominn, að tónlistarkenn- arinn Ilona Andor við kvennaskóla einji í Búdapest náði svo undraverðum árangri í söngkennslu, að kór hennar, sem skip- aður er stúlkum á aldrinum þrettán til átján ára, hreif gamla manninn svo, að hann léði honum nafn sitt og gerðist ráðunautur hans og verndari. Kór þessi liefur vakið athygli víða um heim og þykir bera langt af öðrum hliðstæðum kór- um. — G. P. {ók saman. AÐEINS STÖRIR VINNINGAR %S-7 EÍLAIl i. mánuói %HÚSBÚ]!8,A.ÐAIt<-v-i3iui xi.gax> fyx*ir S-lO-15'20-25-35 ogSO pús.kx*. * EIBjTBÝLISHTTS eftir eigiu vali fyrix 2 M I1>1> JÓNIR

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.