Alþýðublaðið - 14.06.1967, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 14.06.1967, Blaðsíða 1
Mfövikudagur 14. júní 1967 - 48. árg. 198. tbl. ~ VERÐ 7 KR. GÆR SJO Islendinganna, sem hafa verið í hinni sögulegu ferð Sunnu í Austurlöndum, komu heim í gærkvöldi um kl. 10,30 með flugvél Flugfélags íslands frá London. íslendingarnir fó'ru allir með flugvél frá Teheran til Lond- on kl. 5,30 í gærmorgun og 7 tóku fyrstu flugferð heim til íslands. — Aðrir úr hópnum munu væntanlegir heim fyrir helgi. Þó að ferðafólkið væri greinilega þreytt, ræddu nokk ur úr hópnum við blaðamenn Framhald á bls. 14. Landskjörnir fyrir Alþýöuflokkinn Signrður Ingimundarson. Jón Þorsteinsson. Jón Arrnann Héðinsson. Bragi Sigm-jónsson. FiQRTAN Pierre Schneiter. i Eins og frá var skýrt hér í blaS inu í gær vann AlþýSuflokkurinn mikinn sigur í kosningunum á sunnu daginn, jók heldaratkvæSamagn sitt úr 12.697 atkvæSum 1963 í 15.061 atkvæSi og hlutfallslegt fylgi sitt úr 14,2% í 15,7. Flokkurinn fékk fimm kjördæmakosna þingmenn, Gylfa Þ. Gíslason og Eggert G. Þorsteinsson í Reykjavík, Emil ións son í Reykjaneskjördæmi Benedikt Gröndal í Vesturlandskjördæmi og Birgi Finnsson í VestfjarSakjör- dæmi. Samkvæmt yfirlýsingu Lands kjörstjórnar um merkingu lista Hanni bals Valdimarssonar fær flokkurinn Kom með 20 millj. í Vestf jarðaáætlun í FYRRINÓTT Icorn til landsins forstjóri Viðreisnarsjóðs Evrópu, Frakkinn Pieire Schneiter. Hefur hann meðferðis ávísun upp á lið- lega 20 millj. lcr., sem er þriðja gTeiðsla sjóffsins af láni til Vest- fjarðaáætlunar, sem svo er nefnd, en samtals mun lánið nema 86 millj. kr. Fréttamenn áttu í gær fund með Schneiter, í'tölskum að- stoðarmanni hans, Catalano að nafni, svo og Ólafi Egilssyni, full- trúa i utanríkisráðuneytinu og Þór Vilhjálmssyni, blaðafulltrúa Evrópuriáðsins. Schneiter á fjölbreyttan feril að ibaki í heimalandi sínu, var utan- rikisráð'herra 1946 — 47, heilbrigð- ismálaráðherra 1947—51, forseti þjóðþingsins 1951—50, en þá var hann kjörinn borgarstjóri 1 Reims og hefur gegnt því starfi siðan. Jafnframt því er hann sérlegur fulltrúi í Evrópuráðinu og fjallar þar um byggffavandamál, og síð- ast en ekki sízt er hann forstjóri Viðreisnarsjóðs Evrópuráðsins. í gærmorgun ræddi Schneiter viff utanríkisráðherra, Emil Jóns- son, en snæddi síffan hádegisverð í ráðherrabústaðnum. Síðdegis skoðaði hann bæinn og heimsótti m. a. Ásmund Sveinsson, mynd- höggvara. í gærkvöldi fór hann til Þingvalla og borðaði þar kvöld- verð. í dag er svo ráð fyrir gert, að hann fljúgi til VeStfjarða. — Verður lent á Patreksfirði og ísa- firði, en síðan ekið um og þær framkvæmdir skoðaðar, sem hafn ar eru fyrir liánsfé sjóðsins. Til Reykjavíkur kemur Schneiter svo síðdegis í dag, og í kvöldverðar- boði, sem Framkvæmdasjóður heldur honum, mun hann afhenda fyrrgreinda ávísun, en Framkv.- sjóður er formlegur lántakandi af íslands hálfu. Schneiter lýsti ánægju sinni yf ir heimsókninni til íslands, en hann hefur ekki fyrr komið hing- að til lands. Hann sagði, að Við- reisnarsjóðurinn hefði vérið stofn aður árið 1956 og af 18 þjóðum Evrópuráðsins væru 8 aðilar að sjóðnum, þar á meðal ísland. — Höfuðmarkmið sjóðsins Ikvað hann vera að efla framkvæmdir á svæðum, þar sem atvinnuleysi ríkti og þannig stuðla að útrým- ingu flóttaniannajnandamál.a)íns, sem herjað hefur ýmis Evrópu- Framhald á bls. 14. fjóra uppbótarþingmenn, þá SigurS Ingimundarson, ión Ármann Héðins son Braga Sigurjónsson og Jón Þorsteinsson. Þeir Bragi og Jón Ár mann hafa ekki setið á þingi áður og eru hér stérstök viðtöl við þá á öðrum stað hér í blaðinu. Flokkaskiptingin á hinu ný- kjöma Alþingi verður að öðru leyti þannig, að Sjálfstæðisflokk- urinn hefur 20 þingmenn kjör- dæmakjöma og 3 landskjöma, þá Svein Guðmundsson, Bjartmar Guðmundsson og Sverri Júlíus- son, Framsóknarflokkurinn fær 18 þingmenn, alla kjördæma- kjörna, Alþýðubandalagið 6 þing menn kjördæmakjöma og er Hannibal Valdemarsson þá talinn til Alþýðubandalagsins og 4 upp- bótarmenn, Eðvarð Sigurðsson, Jónas Árnason, Geir Gunnarsson og Steingrímur Pálsson. Fari hins vegar svo, að Alþingi fallist ekki á úrskurð Landskjör- stjórnar um lista Hannibals, held ur dæmi hann utanflokka, mun þingmannafjöldinn hreytast þann ig, að Alþýðuflokkurinn fær einn uppbótarmann til viðbótar á kostnað Alþýðubandalagsins, og tekur þá Unnar Stefánsson sæti á þingi í stað Steingríms Pálsson- ar. Ailmiklar mannabreytingar hafa átt sér stað á Alþingi með þessum kosningum. Nú taka sæti á Alþingi 14 þingmenn, sem voru þar ekki síðasta kjörtímabil. — Þessir menn eru: Birgir Kjaran, Pétur Benediktsson, Friðjón Þórð arson, Pálmi Jónsson og Steinþór Gestsson fyrir Sjólfstæðisflokk- inn: Bjarni Guðbjörnsson, Stefán Valgeirsson og Vilhjólmur Hjálm- arsson fyrir Framsóknarflokkinn, Magnús Kjartansson, Karl Guð- jónsson, Jónas Árnason og Stein- grímur Pálsson .fyrir Alþýðu- bandalagið og Bragi Sigurjóns- son og Jón Ármann Héðinsson fyrir Alþýðuflokkinn. — Fimm. •þessara manna, Birgir, Friðjón, Vilhjálmur, Karl og Jónas hafa Framhald á 14. síðu. Svartur hæsía- réttardómari Washingt. 13. 6. (NTB-Reuter) LYNDON B. Johnson, forseU Bandaríkjanna, skipaði í dag liinn 58 ára gamla lögfræðíng Thurgodd Marshall í dómaxa- embætti í hæstarétti Banda- ríkjanna. Marsliall er negri;og fyrsti þcldökki hæstarétlardhm ari í sögu Bandaríkjanna. Thurgood hefur mikið beitt sér í baráttu negranna fyrir al mennum borgararéttindum og jafnrétti, var m. a. lögfraeði- legur ráðunautur eins öflng- asta félagsskaparins, sem berst fyrir jafnrétti r.egra í Bandaríkjunum. Hann helUr verið ríkissaksóknari frá árinu 1964.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.