Alþýðublaðið - 05.07.1967, Síða 10

Alþýðublaðið - 05.07.1967, Síða 10
SAMTÖKIN „Varúð á vegum“ hafa geflð út leiðbeiningar- bækling til gangandi vegfar- jnda um varúð í umferðínni, og samkvæmt tilmælum, birt- ir Alþýðublaðið efni bæklings- ins hér með: Gangandi vegfarendur andi umferð. Þá sjáum við vel til bifreiða, sem á móti koma, en þær, sem koma aftan frá, eru á 'hinum vegarhelmingnum þ. e. a. s. fjær okkur. Þegar við förum út úr strætis- vagni, skulum við alltaf bíða á gangstéttinni þar til vagn- inn hefur ekið brott. Þá fyrst getum við fullvissað okkur um, að við getum hindrunarlaust gengið yfir. Úti á þjóðvegunum aka bif- reiðarnar hraðar og eiga þar af leiðandi erfiðara með að stöðva. Þess vegna verðum við að bíða þangað til við erum viss um að komast yfir á örugg an hátt. Þegar við göngum á vegi þar sem engar gangstéttar eru, skulum við ávallt ganga á hægri vegarbrún, á móti ak- Þegar við þurfum að fara yfir akbraut, verðum við að nota gangbrautir, þar sem þær eru fyrir hendi, að öðrum kosti skulum við ganga þvert yfir akbrautina, alls e'kki á ská, því að það bæði lengir leiðina yf- ir og við eigum erfiðara með að sjá til ferða ökutækja. Við verðum ávallt að líta vel í kringum okkur, áður en farið er út 'á akbrautirxa, jafnvel þótt við séum á merktri gang- braut, það er engin vissa fyrir því, að ökumaður sjái til okk- ar, eða að hann virði skylduna að víkja fyrir gangandi veg- faranda á leið yfir akbraut. Þótt ökumaður stöðvi, er við erum á leið yfir akbraut, verð- um við þrátt fyrir það að vera mjög varkár, því að við getum Við skulum ætíð gera okkur fulla grein fyrir því fyrirfram, hvert við ætlum að fara og velja síðan öruggustu leiðina þangað. Gangstéttin — gang- brautin — gangstéttin. Það er þess virði að velja aðeins lengri leið, ef hún er öruggari. t^z7Z7Q\^ Þótt einstaka gangandi vegfar- andi virði ekki regluna að bíða þegar umferðarljós gefa það til kynna, verður hann aðeins til athlægis og vafalaust kem- ur það honum í koll fyrr eða síðar, það er ekki þess virði að fetai í fótsþor hans. Það er jafnmikil skylda gangandi veg- faranda að bíða eftir grænu Ijósi, eins og ökumanna. Við skulum því ávallt bíða róleg á meðan rautt ljós eða „BÍÐ- K>“ stendur á götuvitanum. ■átt á hættu, að annar ökumað- ur aki framhjá hinu kyrrstæða ökutæki, eða að ökumaður frá vinstri stöðvi ekki. r; Ekki má samt ana af stað strax og rauða ljóíið hverfur og gula ljósið kveiknar, heldur verðum við að bíða þar til græna ljós ið kemur. Þá lítum við til beggja hliða og einnig aftur fyrir okkur, ef ske kynni, að ökutæki úr sömu átt og við ætlaði að beygja í veg fyrir okkur. Það er staðreynd, sem við verðum að beygja okkur fyrir, að það er aldrei hægt að vera öruggur í um skoðanir eða gerðir annarra í umferð- inni. Ef við verðum að fara yfir ak- braut, þar sem engin gang- braut er í nánd og jafnvel þar sem kyrrstæðar bifreiðar eru, verðum við að sýna ítrustu varkárni, þar eð vænta má, að ökumenn sjái síður til okkar og við höfum einnig minna útsýni yfir akbrautina. Þar sem við getum átt á hættu að ökutæki þurfi að bakka, t. d. þegar verið er að aka því út úr stæði, inn cða út úr inn- keyrslu, verðum við að vera sérlega varkár. Ökumenn vöru bifreiða, strætisvagna o. fl. eiga oft erfitt með að sjá nægi- iega vel aftur fyrir bifreiðar sínar og þess vegna verðum við að gæta okkar. ■' — * ú.- Það er mun erfiðara fyrir öku mann að stöðva bifreiðina þeg ar hált er, hemlunarvegalengd- in getur orðið allt að lielmingi lengri. Þetta verðum við að hafa Jiugfast, þegar við ætl- um yfir akbraut, sem er hál vegna bleytu, ísingar eða snjó- komu. Við eigum einnig erfið- ara með að ganga rösklega yf- ir, ef hált er. f • • KAUPMENN - KAUPFELOG - VERZLANIR - VERK- SMIÐJUR - NÝJAR VÉLAR - NÝ TÆKNI - HAGRÆÐING STÓRKOSTLE G VERÐLÆKKUN Á þvotti á hvítum vinnusloppum Akstur og smáviðgerðaþjónusta innifalið. Verð á hajidklæðum ög þurrkum sem fylgja sloppum lækkar úr 11 í 7 kr. Athugið verðið. Sá sem sendir 2 sloppa á viku sparar allt að 1456 krónur á ári, sá sem sendir 50 sloppa á viku sparar allt að 41.600 krónur á ári. VERZLIÐ ÞAR SEM VERÐIÐ ER HAGKVÆMAST. — GÓÐ ÞJÓNUSTA. — LÖNG REYNSLA. - STÆRSTA ÞVOTTAHÚS LANDSINS. — BEZT BÚIÐ VÉLUM. — FYRSTIR MEÐ NÝJUNGAR. BORGARÞVOTTAHÚSIÐ HF. BORGARTÚNI 3. — SÍMI 10135. ‘1,0 5' júií 1967 ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.