Alþýðublaðið - 20.07.1967, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 20.07.1967, Blaðsíða 15
Frh af 5. síðu þarf að vera í sem eðlilegustu ásigkomulagi og liggja vel við skoðun og atliugun, ef á þarf að halda. En jafnframt þarf hún að fara vel á pappírnum og uppfylla kröfur augans. í þessu sambandi er rétt að minn- ast á eitt veigamikið atriði. Reglan er að líma jurtina upp í heilu lagi og margir kjósa heldur stórt' eintak en lítið. En sumar tegundirnar eru svo stór vaxnar, að þessari reglu verður ekki fylgt með góðu móti. Stórnetla getur t. d. orðið um 120 sm. á hæð, hvönn allt að mannhæðarhá, sömuleiðis gul- stör, að ekki sé minnzt' á tré og runna. Oft verður því að hluta jurtina sundur og líma hana upp i pörtum. Allt reynir þetta á smekkinn og hugkvæmn- ina. Eoks er svo skráð heiti jurtarinnar, fundarstaður og fundartími, sömuleiðis getið finnandans, ekki má gleyma honum. Og er þá aðeins eftir að flokka jurtirnar í möppur eftir ættkvíslum. Ég hef víst ekki ennþá minnzt á latínuna. í raun og veru er það latínan, sem gef- ur jurtasöfnuninni gildi, út á við. Það er ekki nóg að þekkja jurtina í krók og kring, útlit hennar og eiginleika, lit, stærð, vaxtarlag, blómgunartíma, kjör- lendi. Það er heldur ekki nóg að vita um ætt hennar og út- breiðslu eða hvað hún lieitir á íslenzku. Latínan ræður úr- slitum. Poa alpína. Saxifraga stellaris. Koenigia islandica. Grasasafnari, sem ekki veit hið latneska heiti jurtarinnar, er lítill karl og ekki viðræðuhæf- ur meðal kollega sinna. Þetta þurfa byrjendur í listinni að leggja sér ríkt á hjarta. Það er ekki auðhlaupið að því að safna allri íslenzku flórunni. En áhugasamur grasa- safnari kippir sér ekki upp við það. Þvert á móti. Slíkt gerir jurtasöfnunina einmitt áhuga- verða. Þannig er það með allt. Hið torfengna verður manni dýrmætast. Jurtirnar eru dreifðar um allt landið, út við sjó og upp til fjalla, meira að segja á kafi í tjörnum og síkj- um. Sumar eru líka næsta fá- gætar, kannski bara nokkur eintök á einum eða tveimur stöðum á landinu. Síðan ekki söguna meir. í slíkum til- fellum nálgast heiðarlegur grasasafnari staðinn með til- hlýðilegrj lotningu og hátíð- leik, dregur skó af fótum sér og fer úr sokkunum, ef það er í for eða bleytu. Slíkur staður er heilög jörð. Og grasasafnarinn tekur sinn betri mann til vitnis um, að hann láti plöntuna vera. Kann- &ki hvíslar freistarinn þá að honum ósköp sakleysislega: — Bnra eina plöntu. Það munar ekkert um eina plöntu. En hann lætur sem hann heyri það ekki og gengur snúðugt burt. Til frekara öryggis fágætum .iu' tum. hefur verið í bígerð að friða diájfap þriðja tug ís- lehzkra þiantná fyrir grasasöfn- urum, garðeigendum og öðrum hættulegum jurtaskaðvöldum, þó ekki sauðkindinni, enda bít- ur hún einungis ofan af. Ef til vill er þetta þegar komið í kring, þótt spurnir hafi ekki borizt af því, náttúruverndar- ráð, sem er skikkanlegt og yf- irlætislaust ráð, auglýsir semf sé einungis í Lögbirtingablað- inu, en það kemur ekki fyrir augu nema ca. 0.01% lands- manna og sennilega aðeins 0.00% þeirra, sem eru í flóru- hugleiðingum. Grasagrúskarar eru skrýtnir fuglar. Satt er það. Og hegða sér öðruvísi en annað fólk. En þeim er þó ekki alls varnað. Þetta fallega erindi er t. d. eftir einn af því sauðahúsi: Fífilbrekka, gróin grund, grösug lilíð með berjalautum, flóatetur, fífusund, fífilbrekka, smáragrund! Yður hjá ég alla stund uni bezt í sæld og þrautum, fífilbrekka, gróin grund, grösug hlíð með berjalautum! Hraðfrystihús á Grenivík Reitingsafli hefur verið hjá bát um frá Grenivík í vor og fram- an af sumri. Hugur er í mönnum og er staðurinn í örum vexti. Verið er að byggja hraðfrysti- hús, sem verður langt komið í haust. Það er byggt fyrir hlutafé, sem safnað hefur verið meðal hreppsbúa sjálfra. Nýr bátur, Vörö ur, var keyptur til Grenivíkur í vor. Símstöð er í byggingu í stað þeirrar sem brann í vor, ennfrem- ur er verið að reisa skólastjórabú- stað. Hjá bændum hefur túnspretta verið með lakara móti, þótt ekki sé mikið um kal, tíðin hefur ein- ungis verða svo risjótt. Nú síðustu dagana hefur grasvöxtur hins veg- ar tekið við sér og horfur á góð- ri kartöfluuppskeru á' Svalbarð- strönd æðarvarp er á nokkrum bæ jum, mest á Höfða, í Nesi og við Laufás. Aglýsingasími AEþýðublaðsins er 14906 AUGLÝSING um skoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur Síðari hluti aðalskoðunar bifreiða í lögsagnarumdæmi Miðvikud. 27. — R-18301 — R-18450 Reykjavíkur fer fram 24. júlí til 30. október n.k., að báðum Fimmtud. 28. — R-18451 — R-18600 dögum meðtöldum, svo sem hér segir: Föstud. 29. — R-18601 — R-18750 Mánud. 2. okt. R-18751 — R-18900 Mánud. 24. júlí R-11401 til R-11550 Þriðjud. 3. — R-18901 — R-19050 Þriðjud. 25. - R-11551 — R-11700 Miðvikud. 4. — R-19051 — R-19200 Miðvikud. 26. — R-11701 — R-11850 Fimmtud. 5, — R-19201 — R-19350 Fimmtud. 27. — R-11851 — R-12000 Föstud. 6. — R-19351 — R-19500 Föstud. 28. — R-12001 — R-12150 Mánud. 9, — R-19501 — R-19650 Mánud. 31. - R-12151 — R-12300 Þriðjud. 10. — R-19651 — R-19800 Þriðjud. 1. ágúst R-12301 R-12450 Miðvikud. 11. - R-19801 — R-19950 Miðvikud. 2. — R-12451 — R-12600 Fimmtud. 12. — R-19951 - R-20100 Fimmtud. 3. — R-12601 — R-12750 Föstud. 13. — R-20101 — R-20250 Föstud. 4. - R-12751 — R-12900 Mánud. 16. — R-20251 — R-20400 Þriðjud. 8. - R-12901 — R-13050 Þriðjud. 17. — R-20401 — R-20550 Miðvikud. 9. — R-13051 — R-13200 Miðvikud 18. — R-20551 — R-20700 Fimmtud. 10. — R-13201 — R-13350 Fimmtud. 19. — R-20701 — R-20850 Föstud. 11. — R-13351 — R-13500 Föstud. 20. — R-20851 - R-21000 Mánud. 14. — R-13501 — R-13650 Mánud. 23. — R-21001 — R-21150 Þriðjud. 15. - R-13651 — R-13800 Þriðjud. 24. — R-21151 - R-21300 Miðvikud. 16. — R-13801 — R-13950 Miðvikud. 25. — R-21301 — R-21450 Fimmtud. 17. — R-13951 — R-14100 Fimmtud. 26. — R-21451 — R-21600 Föstud. 18. - R-14101 — IÞ14250 Föstud. 27. — R-21601 — R-21750 Mánud. 21. - R-14251 — R-14400 Mánud. 30. — 21751 og þar yfir Þriðjud. 29. — R-15151 — R-15300 Miðvikud. 23. - R-14551 — R-14700 Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar til Fimmtud. 24. — R-14701 — R-14850 Bifreiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og vrður skoðun fram- Föstud. 25. - R-14851 — R-15000 kvæmd þar daglega, kl. 9—12 og kl. 13—16,30, nema fimmtu Máhud. 28. - R-15001 — R-15150 daga til kl. 18,30. Aðalskoðun verður ekki framkvæmd á Þrðijud. 29. — R-15151 — R-15300 laugardögum. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi Miðvikud. 30. — R-15301 — R-15450 skulu fylgja bifreiðunum til skoðunar. Fimmtud. 31. — R-15451 — R-15600 Skoðun á bifreiðum, sem eru í notkun hér í borg, en Föstud. 1. sept. R-15601 — R-15750 skráðar eru annars staðar, fer fram í ágústmánuði. Mánud. 4. — R-15751 — R-15900 Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram full- Þriðjud. 5. — R-15901 — R-16050 gild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiða- Miðvikud. 6. — R-16051 — R-16200 skattur og vátryggingariðgjald ökumanna fyrir árið 1967 Fimmtud. 7. - R-16201 — R-16350 séu greidd og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið Föstud. 8. - R-16351 — R-16500 sé í gildi. Þeir bifreiðaeigendur, sem hafa viðtæki í bifreið- Mánud. 11. — R-16501 — R-16650 um sínum, skulu sýna kvittun fyrir greiðslu afnotagjalda Þriðjud. 12. — R-16651 — R-16800 til rikisútvarpsins fyrir árið 1967. Hafi gjöld þessi ekki Miðvikud. 13. — R-16801 — R-16950 verið greidd, verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin Fimmtud. 14. — R-16951 — R-17100 stöðvuð, þar til gjöldin eru greidd. Ennfremur ber að Föstud. 15. - R-17101 — R-17250 framvísa vottorði frá viðurkenndu viðgerðarverkstæði um Mánud. 18. - R-17251 — R-17400 að ljós bifreiðarinnar hafi verið stillt. Þriðjud. 19. — R-17401 R-17550 Miðvikud. 20. — R-17551 . R-17700 Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar a rett- Fimmtud. 21. — R-17701 _ R-17850 um degi, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt um- Föstud. 22. _ R-17851 R-18000 ferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt, og bifreiðin tekin Mánud. 25. - R-18001 _ R-18150 úr umferð, hvar sem til hennar næst. Þriðjud. 26. — R-18151 — R-18300 Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 19. júlí 1967. SIGURJÓN SIGURBSSON. 20. júlí 1967 — ALÞÝÐUBLABIÐ fg

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.