Alþýðublaðið - 18.08.1967, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 18.08.1967, Blaðsíða 7
ÍSVSÁV Ssí^Sisswvii! fyrst var tekið land í ferðinni, Svifskipið á Krosssandi, þar sem sandinn fyrir ofan. Þar var num ið staðar og farþegarnir gengu út, ljósmynduðu það í bak og fyrir, þeir sem kunnáttu höfðu og áhöld til slíkra hluta. Og þarna var skipið látið bregða á leik, að- allega til þess að gefa' sjónvarp- inu færi á að mynda það að utan, en öllum viðstöddum til óbland- innar skemmtunar. Skipið öslaði yfir sandinum og sjónum og virt- ist ekkert óttast þann skaðvald, sem öðrum fleytum hefur löng- um verið skeinuhættur á þessum slóðum, brimgarðinn, sem raunar var lítill sem enginn í þetta skipti. Eftir nokkra viðdvöl þama á sandinum var haldið áfram, og að þessu sinni farið yfir land en ekki sjó. Að vísu var reynt að þræða ár og síki, þar sem slíkt var að finna, en svifskipið er þeirrar náttúru að það getur ekki farið yfir nema slétt land, og fyr- ir torfærum eins og gaddavírsgirð ingum verður það skilyrðislaust að vikja. En við fórum þó talsvert inn í land. Skammt frá Hallgeirs- ey var fyrst numið staðar. Þar voru börn að leik á túni skammt fná síkinu, sem svifskipið þræddi. Þau virtust fyrst undrandi, þegar skipið nálgaðist, síðan ekki laus við ótta, og þegar skipið nam stað ar og laukzt upp og út úr því kom fólk, tóku þau á sprett í burtu. Líklega hafa þau ekki ver- ið grunlaus um að þarna væri fljúgandi diskur á ferð. Frá Hallgeirsey var haldið að þeim sögufræga garði Bergþórs- hvoli. Einhver hafði orð á því, að líklega hefði Njáli bónda brugðið við, 'hefði Flosi birzt hon um á svona farartæki. Við kom- umst þó ekki.eins nærri bænum og Flosi gerði, því að brú teppti leiðina og of bratt var að fara upp á veginn fram hjá brúnni. En líklega er þetta í fyrsta skipti í veraldarsögunni, sem skipi er siglt næstum því heim á hlað á þessum söugfræga stað. Framhald á 11. síðu.. Hjálmar R. Bárðarson skýrir farþegum frá svifskipinu áður en lagt er af stað. ÚTBOÐ Tilboða er óskað í byggingu Myndlistarhúss á Miklatúni, hér í borg. (Heildarútboð). Tilboðsgagna má vitja í skrifstofu vora, gegn kr. 5.000.- skilatryggingu, frá og með fimmtudeginum 24. ágúst n. k. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 5. október n. k. kl. 11.00 f. h. ÍNNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR YONARSTRÆTi 3 - SÍMI 13300 Alþýðublaðið vantar börn til blaðburðar við Eskihlíð Laugaveg efri Tjarnargötu. Talið við afgreiðsluna. — Sóni 14900. Alþýðublaðið Frá Byggingaiánðsjóði Kópavogs Umsóknir um lán úr sjóðnum sendist undirrit- uðum fyrir 8. september n.k. Eyðublöð liggja frammi á bæjarskrifstofunum. Kópavogi 17. ágúst ‘67. Bæjarstjóri. Auglýsing um lausar lögreglubjónsstöður í Reykjavík Kokkrar lögregluþjónsstöður í Reykjavík eru lausar til umsóknar Byrjunarlaun samkvæmt 13. flokki launakerfiö opinberra starfsmanna, auk 33% álags á næt- ur- og helgidagavaktir. Upplýsingar um starfið gefa yfirlögregluþjón ar. Umsóknarfrestur er til 15. september nk. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 17 ágúst 1967. Vélstjórar - Vélstjórar Vélstjórafélag íslands heldur félagsfund að Bárugötu 11, mánudaginn 21. þ. m. kl, 20, DAGSKRÁ: Uppstilling til stjórnarkjörs. Mætið stundvíslega. STJÓRNIN. ÁskrlftasÍKTii AlþýSubtaSsins er 14900 j 18. ágúst 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ f

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.