Alþýðublaðið - 18.08.1967, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 18.08.1967, Blaðsíða 11
A svifskipi. Framhald úr opna. Frá Bergþórshvoli var haldið heina leið til Eyja aftur. Sú för tók 2G’/2 mínútu að hafnarmynn- inu í Eyjum, IIV2 mínúta fór í ferðina frá Bergþórshvoli til sjav- ar, en úr flæðarmálinu var 15 onínútna ferð til Eyja. í’ar heið okkar hádegisverður, sem bæjar- stjórn Vestmannaeyja veitti, og síðan flugvélin, sem skilaði okk- ur heim. J’etta hafði verið ævintýri lík- ast. Um það virtust allir sam- mála — meðan á ferðinni stóð og að henni lokinni. Hitt er svo annað mál, að enn er ekki ijóst hvort þetta verður nokkurn tím- ann annað og meira en ævintýri, hvort 'hér sé á ferðinni farartæki, sem geti orðið til þess að leysa samgönguvandamál Vestmanna- eyja og ýmissa annarra byggðar- laga. Mönnum kom þó saman um að þetta skip, sem við fórum með, dygði ekki hér við land. Til þess er það of smátt og burðarlítið, getur t. d. ekki flutt bíla, en bíla- flutningar eru einmitt það sem Vestmannaeyingar sækjast helzt eftir. Þá má heldur ekki nota far- artækið í hvassara veðri en 5 vindstigum og ölduhæð «ná ekki vera meiri en 1,5 metrar, og er hætt við að þessar takmarkanir gerðu skipið óvirkt nokkuð marga daga á lári hverju. En hins vegar er verið að vinna að gerð stærri svifskipa. Gerð, sem nefnd er BH 7 á að geta tekið 6—8 bifreiðir og 70 farþega að auki eða 140 farþega, ef engir hílar eru með. Alls á þessi gerð að geta borið 15 tonna þyngd, og áætlað verð skipsins er 450 þúsund pund eða 54 milljónir íkróna. SR N 6, sem hér er núna, kostar hins vegar um 130 þúsund pund eða 16 milljón- ir króna. Svifskipið verður hér á landi i 20 daga, fyrst við Vestmannaeyj- ar og heldur það þar uppi föst- um ferðum fyrir almenning til lands og umhverfis eyjarnar. Síð an verður skipið reynt á leiðinni Reykjavík — Akranes, og verður fargjald rnilli þeirra staða selt á 150 kr. Það er Vestmannaeyja- kaupstaður að fjórða, Akranes- kaupstaður að fjórða og ríkissjóð- ur að hálfu, sem standa að tilraun inni með svifskipið. — KB. Það má lækna. Frh úr opnij sem líður að prófi. Þegar út í það kemur, er hann alltaf að hugsa um að gefast upp, þótt honum gangi ágætlega í ein- stökum prófum. — Honum er lijálpað eins og mögulegt er, hvatningarorðin dynja á hon- um, og það endar með því, að ihann stenzt prófið með prýði- legri fýrstu einkunn. Hann fær strax vinnu. Taugaveiklunin, sem á sök á allri eymdinni er engan veg- inn úr sögunni. En allt hefur breytzt hjá honum, og nú lft- ur hann bjartari augum á til- veruna einmitt af því að hann hefur sýnt, að hann gat lokið þessu prófi. Nokkrum mánuðum síðar hafa stúdentaráðgjafarnir aft- ur tal af honum. Það Ikemur í ljós, að hann kemur sér vel i vinnunni og líður ágætlega. Það er talið útilokað, að hann hefði náð prófi, án nokkurrar aðstoðar. Þetta dæmi er uppspuni, en prófessor dr. phil. Lise Öster. gaard getur sagt margar svip- aðar sögur frá því tveggja ára tímabili, sem hún hefur verið stúdentaráðgjafi í Kaupmanna höfn. Hefði maðurinn aldrei náð prófi, hefði þjóðfélagið kostað 100.000 dönskum krónum, — kannski 200.000 d. kr. upp á menntun, sem aldrei leiddi til neins. Þess vegna telja stú- dentasamtökin dönsku það æskilegt, að komið sé upp föst um ráðgjafaskrifstofum í Kaupmannahöfn og Árósum —• og sams konar tilraunastofn. unum í Óðinsvéum og Álaborg. Sótt hefur verið um 285 þús. kr. d. styrk hjá Menntamála- ráðuneytinu til þess að hrinda þessum áætiunum í fram- kvæmd. Það er auðvelt að reikna það út að það „borgar sig“ beinlínis að reka þessa skrifstofu, segja þeii*, sem hafa reynsluna og sem 'liafa þegar hjálpað anörgum í gegnum próf þótt starfsemin hafi hingað til verið eins og á tilraunastigi. Lise Östergaard hefur kom- izt að þeirri niðurstöðu í Kaup mannahöfn, að öll sálræn vandamál, sem stúdentinn á við að glíma, hafa neikvæð á- hrif á námið. Vandamálin hafa stundum lamað námsþrekið al- gjörlega eða leitt til vand- ræða með að einbeita sér, — minnkandi sjálfstrausts, hverf- lyndi og því um líku. í öðrum tilvikum leiða vandamálin óbeint til vand- ræða í náminu, en það er af- leiðing þess, að frjálst nám krefst þroska, einbeittni og sjálfsaga í miklum mun meira mæli en önnur störf, — er bein hætta búin af tilfinninga- legu jafnvægisleysi. Fjárstyrknum skal varið til fullkominnar ráðgjafastofnun- ar í Kaupma'nnahöfn og svip- aðrar í Árósum, tilraunastofn- ana í Óðinsvéum og Álaborg. Ráðg j af astof nanirnar taka ekki aðeins á móti háskólastúd entum og öðrum, sem stunda svokallað æðra nám, heldur einnig þeim, sem eru í styttra námi svo sem kennarar, tækni fræðingar, félagsráðgjafar og bókasafnsfræðingar. Svíar liafa auðvitað liaft for göngu hér eins og oftar. Mart- in Ekblad docent segir eftir reynslu sinni sem ráðgjafi stúd enta í Stokkhólmi árin 1956 — 1960, að 20% stúdentanna sem leituðu til hans, liðu af almennri angist og óöryggi samfara þreytu og svefnleysi. 16% höfðu taugaveiklunar- kennd, 8% kynferðisleg vanda- mál og 13% persónuleg vanda- mál, þar með talin vandamál í sambandi við unnustu eða unn usta. Það er athyglisvert, að 23% kvenna höfðu við persóriu leg vandamál að stríða, — en aðeins 10% karlmanna. Félagsheimili. Frh. af 5. síðu. vérða þar til vörzlu kunnir iþrótta menn og verða ölvaðir menn taf- arlaust fluttir burtu. Aldurstak- mark er 14 ár, nema yngri börn séu í fylgd með fullorðnum, en gert er ráð fyrir fjölskyldutjald- búðum. — Aðgangur að svæðinu fyrir báða dagana kostar 100.00 krónur. Að undanförnu hefur verið mik ið um framkvæmdir í Saltvík, — bæði hafa starfað þar iðnaðar- menn, svo og flokkur drengja úr Vinnuskóla Reykjavíkur undir stjórn Hjálmars Guðmundssonar, kennara, sem lengi hefur verið skólastjóri hjá skólanum. Baldvin Jónsson hefur og haft umsjón með framkvæmdum og verið til ráðuneytis um fyrirkomulag rekst ursins. Jón Bjöms og kirkjukór Víðimýr- arsóknar, söngstjóri Ámi Jónsson, skemmtu með söng. Var hóf þetta með miklum myndarbrag og bar eigendunum verðugt vitni um stórhug og sterk an vilja. Fréttaritari. Misreiksiaéi. af 1 síðu. nefnd Ólafsvíkur vanrækti að leggja á útsvör eitt árið og þuríti síðan sérstaka löggjöf til að fá að leggja á útsvör tvisvar næsta ár, en nú megi segja að Sandarar hafi jafnað metin. Saltvík. Frh. af S. sfðu. ingar voru reiddar fram, sem konur á félagssvæðinu gáfu. Margar gjafir bárust m. a. frá Kirkjukór Víðimýrarsóknar, sem gaf vandað píanó. Þessir fluttu ræður: Sigurpáll Ámason, kaupm.; Gunnar Gísla- son, prestur; Halldór Benedikts- son, bóndi; Hermann Jónsson, sýslunefndarm. Jóhann Lárus Jó- hannesson, bóndi; Þorsteinn Ein- arsson, íþróttafulltrúi; Magnús Gíslason, bóndi og Óskar Magn- ússon, bóndi. Karlakórinn Heimir, söngstjóri Kópavogur Alþýðublaðið vantar börn til blaðburðar í Austurbæ og Vesturbæ. Upplýsingar hjá afgreiðslu blaðsins í Kópa- vogi í síma 40753. ALÞÝÐUBLAÐIÐ Þökkum innilega samúð og vináttu við fráfall EINARS ÁSTRÁÐSSONAR, læknis. Guðrún Guðmundsdóttír, Auðunn Einarsson. Inga Valborg Einarsdóttir, Sveinn K. Sveinsson, Björk Einarsdóttir, Eggert Brekkan, Jón Finnsson hrl. LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA Sambandshústnu 3. hæð. Símar: 23338 — 12343. Sölvhólsgata 4 (Sambandshúsið). AUGLÝSID í Alþýðublaðimi 18. ágúst 1967 - ALÞÝÐUBlÁÐIÐ %%

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.