Alþýðublaðið - 27.08.1967, Page 12

Alþýðublaðið - 27.08.1967, Page 12
^ SíiMJUlcttUÍS AKUREYRINGARISÓKN Það var ekki nóg að bíða hinn mikla ósigur fyr- ir Dönum í vik- unni, heldur beið Reykjavík einn sinn mesta ósigur fyrir Akureyri, án þess að eftir væri tekið. Þotuöldin var semsé færð til Norðurlands og var Gullfaxi óguðlega fljótur á Ieiðinni, aðeins 15 mínútur. Get ur það að sjálfsögðu ekki geng- ið, að farþegar fái ekki einu sinni tíma til að renna niður einum fcokkteii og stinga pela í vasann, áður en vélarskömmin er komin á endastöð. En til Akureyrar fór hún, og hefur ekki frétzt, að vélinni verði bannað að athafna sig eftir vild þar á flugvellinum. Kemur því efcki annað til mála en að Flug- félagið taki upp beinar þotuferð- Á leið í Bifreiðaeftirlitið? ir frá Akureyri til Kaupmanna- hafnar og hefur Akureyri þá sleg- ið Reykjavík út, sem ekki hefur þotuferðir til neinna borga inn- an lands eða utan, ekki einu sinni Kópavogs. Annars sækja ýmsir djöflar að þjóðinni um þessar mundir, svo sem sex daga íslenzkt sjónvarp, aflabrestur, heyleysi, varðhrun og fleira. Þegar útvarpið kom 1930, voru íslendingar frumstæð þjóð. Þá keypti kerling ein sér tæki, en lét afgreiðslumanninn kenna sér sérstaklega að slökkva á tækinu. ,,Ég .kaupi þetta nefnilega fyrst og fremst til að geta skrúfað fyr- ir helvítið hann Jónas“, sagði kerlingin. Með tækni nútímans kemur auðvitað ekki til greina, að ís- lendingar þurfi að leggja á sig annað eins líkamlegt erfiði og að slökkva á sjónvarpstækjum sín- um, ef þeim finnst dagskráin of löng. Svo gamaldags erum við ekki. Seðlabankinn hefur efnt til samkeppni um teikningu banka- húss við Tjörnina, og á líklega að rífa villuna hans Thors Jensen. Segja má, að þetta eigi vel við, og er raunar ekki veruleg breyt- ing. Áður voru ráðamenn lands- ins á þessum stað — og þeir ætla að verða' þar áfram. Áður var húsið bindindishöll, en Seðlabank- inn stjórnar liarðasta bindindi, sem ástundað er í þessu landi —. útlánabindindi bankastjóra. Svo var lögreglustöð í þessu sama húsi og straumur framlágra af- brotamanna, aðallega unglinga og annarra sakleysingja sem eru eins og allir vita, mestu glæpamenn þessa lands. Nú verður tékkaeft- irlit Seðlabankans þarna og lík- lega nóg að gera. Svona er þetta bankavesin. Þeir selja manni liræ ódýr tékkliefti, en sekta menn og fangelsa, ef þeir nota þau. Virð- ist vera tilvalið fyrir Sjónvarps- notendafélagið að taka upp bar- áttu fyrir því frelsi og þeim mannréttindum, að íslendingar megi krota á tékka eftir vild. Menntuðu fólki er sannarlega trú andi til þess að velja sjálft, hvaða tékka það vUl nota og hvenær. Nú eru jarðfræðingar farnir að spá fyrir um eldgos. Var ekki seinna vænna en að þjóðin eign- aðist eitthvað af spómönnum, því að sú stétt manna hefur illu heilli verið að veslast upp. Eru þáð tímamót í sögu þjóðarinnar, að ekki skuli heyrast í spádóms- fólki við ófriðinn í Egyptalandi. En nú taka jarðfræðingarnir við. Svo segist Hitaveitan vera vel búin undir komandi vetur. Það er sannarlega ekkert lát á stór- tíðindum! Ég sé ekki betur en þeim íneira sem við töpum þeim mun meira höfum við til að eýða. — Ég er sannfærður um að ég Iieyrði yður hrópa á hjálp. Oriabók háðskólans APÓTEKARI: SamsærismaSur lækna, veigerðarmaður jarSarfarastjóra og íprirsjámaður kirkjugarðsmaðfcaima. BAKKUS: Mjög þarfur guð, sem Rómverjar hinír fomu fundu upj» sem afsökun fyrir sínu eigin fylliríi. FRÓÐLEIKUR: Ryk, sem dustað er úr bók hm í tðma hauskúpu. TRYGGÐ: Sörstök dyggð, einkennandt fyrir þá, sem eru am það bil að verða sviknir. GUNNFÁNI: Lituð dula, sem er borin fyrir hersveftmn og iregfa upp yfir hernaðarmannvirkjum og herskipum. Guntrfáni vfrth'st hafa svipaðan tifgang og sérstök merkf, tew sjá má víða á opnum svæðum í stórborg: „Hw má ffeygja rusli." Sá spaki segir... Menn skemmta sér af þvl að þeim leiðist, en fyrir því hlýtur þeim aV leW ast mest seaa mest grera af því a# skemmta sér. Varaðu þig, þetta er Ieikvöllurinn Iians pabba

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.