Alþýðublaðið - 16.09.1967, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 16.09.1967, Blaðsíða 4
Rltstjórl: Benedikt Grðndal. Simar 14900—14903. — Auglýsingasíml: 14906. — ACsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Rvik. — Prentsmiðja AiþýðublaSsins. Sím! 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — t lausa- sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandl: AlþýSuflokkurlnn. ÍSLAND OG GATT UMSÓKN íslands um fullgilda aðild að GATT, al- þjóða tollamálastofnuninni, hefur verið staðfest af nægilega mörgum aðildarríkjum GATT. Ber að fagna þeim- merka áfanga, sem ísland hefur þar með náð á svdði þátttöku í alþjóðlegu viðskiptasamstarfi. Markmið GATT er að vinna að afnámi viðskipta- hajfta og lækkun tolla. Meðan mikil innflutnings- höft voru í gildi hér, gat ísland því ekki gerzt aðili að GATT. Það var fyrst eftir, að farið var að afnema liöftin og innflutningsverzlunin hafði að verulegu leýti verið gefin frjáls, sem aðild að GATT kom til greina. ísland fékk bráðabirgðaaðild að GATT í marz 1964. Lagði ísland á það áherzlu, að fá slíka aðild vegna Kennedy-viðræðnanna til þess iað geta tekið þátt í þeim. En gert var ráð fyrir því, þegar í upphafi, að bráðabirgðaaðildin mundi leiða til fullrar aðildar síð ar. ísland vonaði, að með þátttöku sinni í Kennedy- viðræðum GATT gæti það stuðlað að því, að tolla- lækkanir, sem samið yrði um, næðu til sem flestra sjávarafurða. Þetta rættist þó aðein? að takmörkuðu leyti. Tollalækkanir þær, sem samið var um í Kenn- edy-viðræðunum náðu fyrst og fremst til iðnaðar- vara, en aðeins að litlu leyti til landbúnaðar- og sjáv- arafurða. Þó væri rangt að segja, að þátttaka íslands í Kennedy-viðræðunum hafi verið gagnslaus. Tolla- lækkanir Bandaríkjanna á blokkfrystum fiski og lækk un Breta á síldarlýsistollum voru mjög mikilvægar fyrir okkur. En tollalækkanir þær á sjávarafurðum, sem samið var um í Kennedyviðræðunum, leystu þó hvergi nærri þann vanda, sem tollabreytingar mark aðsbandalaganna hafa bakað sjávarútvegi íslendinga. Það verður því að fara nýjar leiðir til þess að leysa þann vanda. Verður það enn ljósar nú eftir síðustu tollahækkanir á fiski í V-Þýzkalandi. Island lagði í Kennedy-viðræðunum fram tilboð um tollalækkanir á vörum, sem fluttar eru inn hingað til lands. Þar var þó gert rág fyrir tiltölulega litlum tollalækkunum, enda kölluðu tollalækkanir viðskipta landa okkar á sjávarafurðum ekki á mikið gagntil- boð af okkar hálfu. En ætli ísland að vinna í anda GATT-sáttmálans framvegis, verður það í náinni framtíð að taka allt tollakerfi sitt til endurskoðunar. Island er í dag eitt hátollaðasta land veraldar og ætli landið ekki að einangrast á sviði alþjóðlegrar viðskiptasamvinnu, verður það að byrja að brjóta tollmúrQna niður. En það verður að gerast eftir fyrir fragerðri áætlun, til þess að íslenzkur iðnaður viti hverju hann á von á í því efni. Áuglýsið í Alþýðublaðinu Minningarorð: SESSELJA JÓNSDÓTTIR Trúlofunarhrlngar Sendum gegn póstkröía. Fljót afgreiðsla. Guðm. Þorsteinsson i Eullsmlður 1 Bankastrætl 1S. SKIPAUTGCRÐ rikisins M/S Heröubreið fer vestur um land til Djúpavík ur 20. þ. m. Vörumóttaka til Patreksfjarðar, Tálknafjarðar, Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyrar, Bolungarvíkur, ísa fjarðar, Ingólfsfjarðar, Norður- fjarðar og Djúpavíkur. Ms. Blikur fer austur um land til Þórs- hafnar 25. þ. m. Vörumóttaka daglega til Hornafjarðar, Eski- fjarðar, Norðurfjarðar Mjóa* fjarðar, Seyðisfjarðar, Borgar. fjarðar, Vopnafjarðar og Þórs- hafnar. M.S, Baldur fer til Snæfellsnes og Breiðar- fjarðarhafna 22. þ. m. Vörumót taka daglega. Næstu ferðir til Vestmannaeyja eru 18.9 20.9 og 25.9. Vörumóttaka daglega. FRÚ SESSELJA JÓNSDÓTTIR, Grettisgötu 24, Reykjavík, and- aðist á Landsspítalanum 5. þ. m. Hún verður jarðsungin frá Foss- vogskapellu í dag kl. 10,30 ár- degis. Frú Sesselja var fædd 5. nóv. LOFTNf 1901 að Hólalandi í Borgarfirði eystra, dóttir hjónanna Guðnýj- ar Jónsdóttur og Jóns Jónssonar um, sem hún gekk. Hún vann lengi á heilsuhæli hér í borg og allt fram að þeim tíma í sumar, er hún varð að fara í sjúkrahús. Þaðan átti hún ekki aftur- kvæmt. Það eru margir sem sakna frú Sesselju við brottför hennar. Kvenfélag Alþýðuflokks- ins í Reykjavík sendir börnum hennar og venzlafólki innilegar samúðarkveðjur og þakkar henni samstarfið. S. Ingvarsd. VELTUSUNDI 1 Sími 18722. Ávallt fyrírllggaaöi LOFTNET og XOFTNETSKERFI FYRÍR t-jölbýlishús. «TTA BRÉF ER KVITTUN, EN ÞÓ MIKLU FSEMUR VIÐURKENNING FTRIR SIUDN- ÍNG VID GOTT MÁIEFNI. MTKMVfK. K » Mu toodkngwij** Uti.líi itilaMa KIL___________ er síðar fluttu til Seyðisfjarðar. Á æskuskeiði fluttist Sesselja til ísafjarðar. Þar kynntist hún Þorleifi Jóhannssyni, skósmið. Giftust þau árið 1924. Lengst bjuggu þau hjón í Stykkishólmi. Þau eignuðust 4 börn. Árið 1942 urðu þau fyrir þeirri sorg að missa elzta son- inn, 18 ára gamlan. Börn þeirra, sem eftir lifa, eru: Ragnar, húsasmiður, kvæntur Guðnýju Finnbogadóttur, Ingibjörg, gifl Guðjóni Guð- mundssyni, bifvélavirkja, — og Oddgeir, rafvirki, kvæntur Hall- dóru Sveinsdóttur. Voru þau lijón samtaka um að koma börnum sínum vel til manns. — Árið 1946 flytjast Þorleifur og Sesselja til Reykja- víkur. Sesselja missti mann sinn í janúar 1962, og höfðu þau þá lifað í farsælu lijónabandi í 38 ár. Þau hjón, Sesselja og Þorleif- ur fylgdu Alþýðuflokknum alla tíð fast að málum og unnu hon- um það gagn, sem þau má'ttu. Frú Sesselja gerðist meðlimur í Kvenfélagi Alþýðuflokksins eft- ir að hún fluttist hingað. Hjá henni fannst bæði í orði og at- höfn þessi festa og skerpa, sem einkenndi brautryðjendur jafn- aðarstefnunnar. Þeir risu upp í nýrri trú og vissu að í bai-áttu sinni höfðu þeir allt að vinna. Frú Sesselja var myndarleg kona að vallarsýn og mikil at- orkumanneskja að hvaða störf- GJAFABRÉ F FRÁ S U N D LA U C A R S J Ö O 1 SKÁLftTÚNSHEIMlUSirH SERVÍETTU- PRENTUN SÍMX 32-101. MUNIÐ 4 16. september 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.