Alþýðublaðið - 16.09.1967, Qupperneq 5
SJÖTUGUR í DAG:
VILHJÁLMUR Þ GÍSLASON
ÚTVARPSSTJÓRI
ÞAÐ hlýtur að vera mikil og
óvenjuleg persóna, sem heil þjóð
býður Lnn á heimili sín hvert
gamlárskvöld til að rifja upp lið-
ið ár og bjóða nýtt velkomið.
Þarf mikið til að fá þúsundir
landsmanna til að lilusta á sögu-
legan annál og heimspekilegar
vangaveltur rétt fyrir miðnætti
þetta kvöld ár eftir ár.
Annáll ársins er hér fyrst
nefndur í afmæliskveðju til Vil-
hjálms Þ. Gíslasonar útvarps-
stjóra, sem er sjötugur í dag, af
því að þar koma fram svo margir
kostir mannsins. Þar birtast í
senn annálshöfundur og sagn-
fræðingur, blaða- og útvarps-
maður, fræðimaður og heims-
spekingur. Á vissan hátt hefur
annállinn gert Vilhjálm að lands
föður á sinu sviði, og það svið
nær inn á hvert heimili.
Óþarfi er að rekja hinn kunna
ættstofn Vilhjálms. Hann er
innfæddur Reykvíkingur, sat í
Menntaskólanum fyrri ófriðar-
árin og hélt þaðan í norrænu-
deild Há'skóla íslands. Vilhjálm-
ur er talinn faðir Stúdentaráðs
og lét sitthvað annað til sín taka,
unz hann lauk magistersprófi
1922. Eftir það stundaði hann
framhaldsnám í Höfn, Osio,
London og Oxford.
Vilhjálmur hóf snemma þátt-
töku í blaðamennsku við Lög-
réttu föður síns og síðar við
önnur blöð. Sýndi hann augljósa
hæfileika til þeirra starfa og
hefur alltaf verið stoltur af
sínu ,,blaðamannsnafni“ eins
og allir sannir blaðamenn eru.
Árið 1931 varð Vilhjálmur
skólastjóri við Verzlunarskólann,
sem er önnur tveggja stofnana,
er hann hefur verið mest við
riðinn. Undir stjórn hans tók
skólinn miklum stakkaskiptum,
stækkaði og varð að lokum
menntaskóli. Milli Vilhjálms og
nemenda hans ríkti gagnkvæm
vinátta og virðing, en hann þótti
góður kennari, .fróður og ræð-
inn.
Vilhjálmur tengdist Ríkisút-
varpinu þegar á fyrstu árum
þess og varð vinsæll útvarps-
maður. Hann starfaði við fréttir,
varð ráðunautur útvarpsráðs um
bókmenntir, flutti upplestra og
erindi. Mörgum, sem hlustuðu á
útvarp áður fyrr, eru minnis-
stæðar frásagnir af bókum og
mönnum.
Það kom fáum á óvart, að Vil-
hjálmur skyldi verða fyrir val-
inu sem annar útvarpsstjóri ís-
iendinga, er Jónas Þorbergs-
son Iét af störfum. Hefur Vil-
SMURSTÖÐIN
Ssetúni 4 — Sími l«-2*27
BOliim er smurðni' fljéft og naU
Stðjom allar tcgruaabr-rf smurolftr
Athugasemd frá
Læknafélagi íslands:
hjálmur stýrt Ríkisútvarpinu á
annan áratug, og hefur það ver-
ið viðburðaríkasta tímabil í sögu
útvarpsins eftir stofnun þess fyr-
ir 37 árum.
Dagskrá hljóðvarpsins, sem
nú er kallað svo, þótt orðið sé
umdeilt, hefur verið aukin til
muna. Frá komandi hausti verður
samfelld útsending frá kl. 7 að
morgni fram á tólfta tímann að
kvöldi. Þótt dagskrár um menn-
ingarleg efni séu hugstæðastar
Vilhjálmi, skilur hann manna
bezt, að útvarpið hefur víðtækt
þjónustuhlutverk og gegnir því
með fréttum, fróðleik og tónum
allan vökuöag þjóðarlnnar.
Sjálfur hefur Vilhjálmur lagt
hvað mesta áherzlu á fræðandi
erindi og samfelldar dagskrár,
kynningu bóka og stuðning við
Sinfóníuhljómsveit, sem starfað
hefur á vegum útvarpsins um
árabil.
Mesta átak Ríkisútvarpsins í
tíð Vilhjálms liefur þó verið
stofnun íslenzks sjónvarps. Hann
vakti máls á því skömmu eftir
að hann varð útvarpsstjóri, og
tók meginþátt í þeirri áratugs
baráttu, sem það kostaði að
koma þessari starfsemi á lagg-
irnar. Mun nú engum blandast
hugur um, hversu áhrifaríkt fjöl-
miðlunartæki hér er á ferð, og
hve mikla þýðingu það muni
hafa fyrir þjóðina, ekki sízt. í
löngu skammdegi og á sviði al-
þýðufræðslu.
Embættisverk Villijálms Þ.
Gíslasonar við Verzlunarskólann,
Ríkisútvarpið og við ýmsar fleiri
stofnanir, gefa hvergi nærri
fulinægjandi mynd af því, sem
eftir hann liggur. Hann hefur
verið mikill bókamaður frá
bernsku og er ótrúlega fróður,
enda sagði Valtýr Stefánsson rit-
stjóri um hann: „Allan fjárann
hefur hann lesið.” Lesturinn hef-
ur verið undirstaða mikillar
fræðirnennsku, fyrst og fremst á
sviði íslenzkrar sögu og bók-
mennta, og hcfur hann verið af-
kastamikill rithöfundur, þýðari,
ritstjóri og sagnfræðingur.
Vilhjálmur er mikið Ijúf-
menni og vill hvers manns
vanda leysa. Hann hefur lengi
verið við friðinn kenndur og vill
mikið til vinna, að forðast ófrið
og illindi. Stendur hann þó fast
við sinn málstað ef honum býð-
ur svo við að horfa. Hann er á-
vallt glaðvær í vina hóp og
skemmtilegur í samræðum.
Kona Vilhjálms er Ingileif
Árnadóttir, og hefur hún jaínan
verið manni sínum stoð og
stytta og hinn ágætasti förunaut-
ur.
Það var einu sinni sagt um
Vilhjálm, að liann hefði orðið
snemma fullorðinn, en ætlaði að
eldast seint. Vinir og samstarfs-
.menn Vilhjálms gleðjast yfir
því, að þessi ummæli eru í fullu
gildi, og óska honum þess á
afmælinu, að svo megi enn verða
um langa hríð.
Bcnedikt Gröndal.
Að undanförnu hafa orðið all
mikil blaðaskrif um læknisþjón-
ustu fyrir síldarsjómenri á fjar-
lægum miðum, og nú fyrir
skömmu var málið rætt í rikisút
varpinu í þættinum „Um daginn
og veginn.“ í umræðum þesum
ihefur komið fram, að stofnuð
hafi verið staða læknis, sem ætl-
að er að þjóna síldarflotanum á
fjarlægum miðum. Gefið hefur
verið í skyn, að mál þetta hafi
verið undirbúið, laun ákveðin og
staðan auglýst, en enginn læknir
sótt um liana. Hefur læknastétt
in, og raunar helzt ungir læknar
orðið fyrir harðri gagnrýni fyrir
skort á þegnskap í sambandi við
þetta mál, og liafi því verið ó-
fáanlegir að taka að sér starf
þetta.
í þessu sambandi vill stjórn L.í.
taka fram eftirfarandi:
a) Með lögum nr. 13, 1967, var
ríkisstjórninni gefin heimild til
þess að ráða lækni vegna síldar-
flotans á fjarlægum miðum.
b) Starf þetta mun aldrei hafa
verið auglýst.
c) Okkur er ókunnugt um að
ráðstafanir hafi verið gerðar til
þess að skapa viðunandi starfs-
aðstöðu fyrir væntanlegan lækni.
d) Ekki er okkur kunnugt um
að nokkrum lækni Ihafi formlega
staðið til boða að itakast þetta
starf á hendur og því enginn haft
raunhæft tækifæri til þess að
þiggja eða synja því.
e) Frumvarp að lögum þeim er
áður getur (nr. 13, 1967) var aldr-
ei borið undir Læknafélag íslands,
né heldur verið haft samráð við L.
í. um framkvæmd laganna. Tími
til undirbúnings þessa læknis-
starfs hefur verið skammur, enda
mun undirbúningsskortur vera
svo alger, að heilbrigðisstjórn
mun eigi hafa treyst sér til þess
að auglýsa starfið.
Augljóst er, að þeir, sem hafa
fjallað um lagasetninguna og
rætt málið í blöðum og útvarpi,
hafa ekki gert sér ljóst, að hér
er um þannig starf að ræða, að
til þess þarf að ráða lækni með
mun meiri starfsreynslu og þekk
ingu, einkum í skurðlækningum,
en hægt er að ætlast til af nýút-
skrifuðum læknum, hvað þá lækna
nemum.
Starfsaðbúnaður verður að
vera þannig að eigi sé teflt á ó-
þarfa hættu þótt gera þurfi lækn.
isaðgerðir í sambandi við slys eða
bráða sjúkdóma, auk þess þarf
nauðsynleg hjúkrun og eftirmeð-
ferð að vera tryggð. Það er því
að áliti stjórnar L. L næsta gagns
lítið, að senda lækni til síldar-
flotans, nema honum sé búin við
unandi starfsaðstaða og séð fyrir
nauðsynlegustu aðstoð.
Reykjavík, 13. september 1967.
Stjórn Læknafélags íslands.
Félagsmálanám-
skeið B.S.
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja gengst fyrir þriggja daga
félagsmálanámskeiði fyrir for-
ustumcnn og trúnað’armenn í sam
tökunum um næstu helgi. Er þar
urn nýmæli að ræða í starfsemi
bandalagsins og er ætlunin að
þetta geti orðið upphaf að fjöl-
breyttari fræðslu- og upplýsing-
arstarfsemi.
Stjórn B.S.R.B. skipaði sérstaka
nefnd til að annast undirbúning
þessa fyrsta námskeiðs bandalags
ins, og hefur hún ákveðið eftir-
farandi tilhögun.
Lagt. verður af stað frá Reykja
vík að morgni föstudagsins 15.
sept. og haldið að Hótel Borgar-
nesi, en þar verður námskeiðið
haldið og munu þátttakendur búa
þar.
Eftir hádegið verður námskeið-
ið sett og að því loknu flytur
Kristján Thorlacius, formaður
bandalagsins erindi um skipulag
og starf B.S.R.B. Síðan verður
flutt erindi um fræðslustarfsemi
samtaka opinberra starfsmanna
á Norðurlöndum. Það flytur Eg-
on Rasmussen, ritari hjá Fælles-
radet for danske Tjenestemands
og Funktionærorganisationer, en
honum hefur verið boðið hingað'
til landsins af þessu tilefni.
Um kvöldið flytur Guðjón B.
Baldvinsson erindi um samnings-
rétt og stai’fskjör opihberra starís
manna.
Daginn eftir flytur svo Harald
ur Steinþórsson erindi um launa
kjör starfsmanna, og að lokum
mun Guðmundur Ingvi SigUrðs
son, lögfræðingur flytja erindi
um Kjarasamningalögin.
Þátttakendur munu skiptast í
umræðu- og starfshópa, sem.
fjalla um ákveðna þætti þeirra
mála, sem framsöguerindin c*
umræður gefa tilenfni til. Síarf::-
hópar þessir skila síðan áliti fyr-
Framhald á 11. síðu.
16. september 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5