Alþýðublaðið - 16.09.1967, Page 7
TJm borð í
Birtingi.
NÝJASTI báturinn hér á
Norðfirði, Birtingur, var að
landa s.l. nótt, og ég náði að
Skjótast ura borð og líta á'
herlegheitin. Þegar komið er
Undir þilfar sést ekkert, sem
rninnir á fiskiskip og er þar
allt meira í ætt við fínustu
farþegáskip en síldarbát. Allir
mannabústaðir eru aftur í og er
þar allt klætt harðplasti og
dýrum viði. Matsalurinn er
eins og allra flottasta borð-
stofa með ‘sjónvarpi, segul-
bandi o. s. frv.
Brúin er eins og danssalur
og þar hægt að koma fyrir öll-
um mannskapnum, ef á þarf
að halda. Tæki öll eru upp á
það fullkomnasta og fyrir öllu
séð.
Þeir á Birtingi ætla að taka
með sér ís í næstu veiðiferð
og úða honum yfir síldina, ef
takast mætti að nota hana í
beitu, þegar heim verður kom-
ið. Beitusíldarvandræðin eru
orðin gífurleg ekki sízt, ef svo
fer sem horfir, að hluti síld-
veiðaflotans hætti á næstunni
og snúi sér að línuveiðum.
Vissulega eru þessar veiðar
þarna norður í hafinu orðnar
all ískyggilegar fyrir smærri
báta og það liggur við, að mað-
ur þori varla að hugsa um það,
hvernig færi, ef hann gerði
brælu og skipin þyrftu að
halda sjó um einhvern tíma.
Sannleikurinn er sá', að ekk-
ert leyfir af því að smærri
bátar geti tekið með sér olíu
í báðar ferðir á mið og heim.
Það væri sannárlega betur að
þessu glæfraspili yrði hætt áð-
ur en verr færi en þegar er og
eetti Stígandaslysið að vera
víti til varnaðar.
Ekki get ég neitað því, að
mig hálflangaði út með Birt-
ingi, þó ekki væri til annars
en fá að njóta lúxusins um
borð í nokkra daga, því auk
alls annars, þá veit ég, að
kokkurinn er enginn flysjung-
ur. En auðvitað dregur sú
staðreynd úr manni kjarkinn,
að túrinn getur tekið allt upp
í þrjá'r vikur eða guð veit
hvað.
Spjallað við Pál
Guðmundsson.
Árni Magnússon var að
renna upp að bryggjunni með
smáslatta og ég náði aðeins
tali af skipstjóranum, Páli
Guðmundssyni, en hann er
eins og allir vita fulltrúi sjó-
manna í stjórn Síldarverk-
smiðja ríkisins og eins konar
forsjá og ráðgjafi síldarsjó-
manna.
— Þetta er að verða hrein-
asta reiðuleysi þarna norður
frá, segir Páll, og fer þar hvort
tveggja saman, að vegalengdin
er svo gífurleg og svo hitt, að
síldin er svo erfið, að það er
ekki nema tiltölulega fá' skip
sem ná almennilegum köstum.
þetta eru ekki nema nokkrir
tímar um hánóttina, sem hún
gefur sig og þá bara hending-
in, sem ræður. Þá er heldur
ekki um að ræða neina þjón-
ustu við flotann, takmörkuð
olía, engin læknishjálp og yf-
irieitt ekkert að fá þarna úti.
Ég spyr Pál um möguleik-
ana á' að salta í sig og hann
svarar:
— Sennilega væri það hægt,
ef undirbúningur hefði verið
fyrir hendi og þá jafnframt
flokkunar- og hausskurðarvél-
ar um borð í skipunum og síð-
ast en ekki sízt hefðu sjó-
mennirnir þurft að vita, hve
mikið þeir bæru úr býtum fyr-
ir að leggja á sig það auka-
starf að salta síldina niður í
tunnur, því það gefur auga
ieið, að enginn iætur sér detta
það í hug að ætla að salta fyr-
ir venjuleg söltunarlaun eins
og þau eru greidd í landi, því
það er auðvitað ekkert sam-
bærilegt að vinna við söltun á
þurru landi eða úti á sjó. Eðli-
legast hefði verið, að sjó-
mennirnir og útgerðin fengi á-
móta verð fyrir saltsíldina og
síldarplönin og bæru þá jafn-
framt alla ábyrgð á verkun-
inni.
Heldurðu að síldin komi
nokkuð upp að landinu seinna
í haust?
Maður veit það svo sem al-
drei, en liitt er svo annað mál,
að það fær enginn mig til að
trúa því, að síldin, sem við er-
um nú að veiða sé sú sama sem
við vorum að elta suðvestur
frá Jan Mayen í vor. Ég get
ekki ímyndað mér, að Jan
Mayen síldin, sem var á hraðri
leið suðvestur hafi skyndilega
snúið við óg haldið í norður.
Nei, það er útilokað, en hvar
sú síld er í sjónum er ekki
gott að segja um.
—■ Ertu nokkuð á leið suð-
ur?
— Nei, en ég á von á að fá
nánari upplýsingar varðandi
saltsíldarverðið, þ.e.a.s. verðið,
sem saltendur fá endanlega.
Mér er það ekkert launungar-
mál, að ég varaði við því að
bátar tækju með sér tunnur til
að salta í meðan allt er í ó-
vissu um hvað út úr því er að
hafa.
Til viðbótar þessu fátæklega
spjalli við Pál Guðmundsson,
má bæta því við, að hann hefur
á undanförnum árum gert í-
trekaðar tilraunir lil að fá fyr-
irgreiðslu lánastofnana um að
festa kaúp á hollenzkum skut-
togara með fullkomnum tækj-
um og þar á meðal frystitækj-
um og tilheyrandi færibönd-
um en án undirtekta. Því má
bæta við, að slíkt ,skip, rúml.
500 tonna er aðeins fjórum
milljónum króna dýrara en
norsku síldarskipin, sem flutt
hafa verið inn á undanförnum
mánuðum. Það er engin furða,
þótt maður sé hissa á slíku
ráðslagi fjárfestingaryfirvald-
anna á sama tíma sem norsku
skipin eru send hvert af öðru
til útlanda til að láta saga þau
sundur og lengja og heyrzt hef-
ur jafnvel, að sum þeirra hafi
komið við í Færeyjum á heim-
leið nýbyggð og þar hafi þessi
óperasjón verið gerð á þeim.
bébé.
Fnhöfnsn og Islenzkir peningar
ÞAÐ hefur vakið furðu ferða-
manna á leið til útlanda frá
Keflavíkurflugvelli, að Fríhöfn-
in þar skuli ekki taka við ís-
lenzkum peningum fyrir þær vör
ur, sem þar eru á boðstólum.
Ofangreint fyrirtæki hefur
haft það orð á sér að vera sam-
bærilegum fyrirtækjum erlendis
til fyrirmyndar.
Nú er ferðamannastraumur-
inn um Keflavíkurflugvöll orð-
inn stórum mun meiri en áður.
Halda ýmsir því fram, að inn-
an tíðar verði allt flug milli
íslands og annarra landa um
Keflavíkurflugvöll. Er þá ljóst,
að íslendingar á leið til útlanda
verða á næstu árum þýðingar-
miklir viðskiptavinir Fríhafnar-
Framhald á bls. 11.
ONS
SIGURSVEIMS D.
KÓU
KRISTÍNSSONAív
Tilkynnir:
Dagana 15. til 18. september fer fram innrit-
un fyrir tímabilið 1. október til loka desember,
að Óðinsgötu 11' eða í síma 19246.
SKÓLASTJÓRI.
Óskum eftir að ráða áreiðanlega og reglusama
stúlku, ekki yngri en 18 ára, til sendiferða,
símavörzlu o. fl.
Eiginhandar umóskn sendist skrifstofu vorri
eigi síðar en 22. september n.k.
INNKAUPASTOFNUN REYK7AVÍKURBORGAR
YONARSIRÆII 8 ~ SÍMI 18300
Reynið okkar ágæta, ódýra
mjólkur-, ávaxta- og jurtafæði,
Ljúfxeng heimabökuð brduð og heitir réttir öll
kvöld og á hádegisborðinu á sunnudögum .
MATSTQFA
Náttúrulækningafélags Reykjavíkur
Hótel Skjaldbreið
ÁTVINNA
Stúlka óskast nú þegar til að annast símavörzlu
í skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2.
Umsóknum, er tilgreini aldur og fyrri störf,
sé skilað til skrifstofustjóra fyrir 22. þ.m.
BRAUÐHÖLLIN
4
opnum í dag smurbrauðstofu að
LAUGALÆK 6.
Veizlubrauð - Snittur - Brauðtertur
Ö1 og gosdrykkir
BRAUÐHÖLLIN
LAUGALÆK 6. — SÍMI 30941.
16. september 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J