Alþýðublaðið - 16.09.1967, Page 11
NÝ sérverzlu
I
Opnum í dag sérverzl&en með
OiiHy^eiR
Að Lyngási S GarSahreppi
VERIÐ VELKOMIN
Kynnið ykkur verð og gæði á farmleiislu okkar
NDVEGI H.F.
Lyngási 8 Garðahreppi — Símar 52374 - 51650
I
f
B.SkR.B.
Framhald af 5. síðu.
ir sameiginlegan fund á sunnu-
dag og að því loknu mun nám-
skeiðinu ljúka um kvöldið.
Félögum innnan B.S.R.B. var
gefinn kostur á að ráðstafa þátt-
tökunni á námskeiði þessu, sem
var takmörkuð vegna húsnæðis
og þess hámarksfjölda, sem henf
ugt er talið að sé á slíkum nám-
skeiðum, enda munu bandalagsfé
lögin yfirleitt kosta að öllu eða
nokkru leyti þátttökugjaldið, sem
er 1800 krónur á mann. Alls
munu taka þátt í fræðslunám-
skeiði þessu yfir 40 manns og eru
þeir frá rúmlega tuttugu banda
lagsfélögum.
Fríhöfnin
Framhald úr opnu.
innar. Þegar svo er komið, má
undrum sæta, að íslenzkir far-
þegar geti ekki notað íslenzkan
gjaldmiðil í verzlun Fríliafnar-
innar. Mætti segja, að íslenzk-
um sé ekki söm virðing sýnd og
erlendum viðskiptavinum Frí-
hafnarinnar, sem geta greitt fyr
ir þær vörur, sem iþeir kaupa
með þeim gjaldmiðli, sem þeir
helzt kjósa (en þó ekki með ís-
lenzkum krónum).
Undirrituðum er ekki kunn-
ugt um, að nokkurt sambærilegt
fyrirtæki á flugvöllum í ná-
grannalöndunum sýni þá fyrir-
litningu á eigin gjaldmiðli som
þetta annars um margt gagn-
merka fyrirtæki á Keflavíkur-
flugvelli. Ef til vill er ekki rétt
að nefna Iþetta ráðslag „fyrir-
litningu" á íslenzku krónunni,
þar sem hér er við yfirvöld rík-
isins að fást. En í öllu falli má
með sanni segja, að hér ræðir
um meinta meinloku yfirvald-
anna.
Fríhöfnin á Keflavíkurflug-
velli er orðin viðamikið fyrir-
tæki, rekið af rikinu. Mun það
ihafa sýnt töluverðan hagnað á
síðustu árum. Telja má víst, að
íslenzk króna eigi að geta gert
sama gagn í peningahirzlunum
og amerískur dalur, t- Reyndar
skal þess getið, að Fríhöfnin hef
ur aflað mikils erlends gjald-
eyris á undanförnum árum, sem
skilazt hefur til hins íslenzka
bankakerfis. En telja má, að ó-
þarft sé að einblína á gjaldeyr-
isöflunina eina saman. Ekki
væri hundrað í hættunni, þó að
íslenzka krónan hlyti þann heið
urssess að njóta sömu rétthæfni
og sú danska eða Bandarikja-
dalur.
Nú ihefur gjaldeyrisúthlutun
til ferðamanna, sem utan fara,
verið rýrð um þriðjung og má til
sanns vegar færa, að þar hafi
verið um réttláta ráðstöfun að
ræða, þar sem hagur bankanna
er í veði. En íslenzkir farþegar
hugsa vafalaust tvisvar um, áð-
ur en þeir taka upp „ferðatékk-
ann“ meðan þeir enn hafa ekki
yfirgefið landið. Ætla má, að
innkaup íslendinga í Fríhöfn-
inni dragist mikið saman nú, er
þessi breyting á gjaldeyrisveit-
ingu til feröamanna hefur verið
gerð.
Væri því ekki æskilegt, eins
og í pottinn er búlð, að yfirvöld
in leyfðu, að íslenzk króna yrði
löglegur gjaldmiðill í Fríhöfn-
inni? Slíkt leyfi væri ekki út
í hött, ef rétt má telja, að Frí
höfnin verði af mikilvægum við
skiptum vegna þessara augljósu
meinloku yfirvaldanna.
E. Herjólfsson,
íþréttir
Frh. af 10. síðu.
Spjótkast:
Valbjöm Þorláksson, IÍR 60,26
Björgvin Hólm, ÍR 57,25
Finnbjörn Finnbjömsson, ÍR 53,85
Jón Þ. Ólafsson, ÍR 53,50
Sleggjukast:
Jón H. Magnússon, ÍR 53,38
Þórður Sigurðsson, KR 51,05
Þorsteinn Löve, ÍR 50,68
Óskar Sigurpólsson, Á 47,38
Fimmtarþraut:
Ólafur Guðmundsson, KR3209
Valbjörn Þorláksson, KR 3144 stig
Helgi Hólm, ÍR 2574 stig
Finnbjörn Finnbjörnsson, ÍR 1685
Tugþraut:
Ólafur Guðmundsson, KR 6208 stig
Jón Þ. Ólafsson, ÍR 5820
Þórarinn Arnórsson, ÍR 5636
Ilreiðar Júlíusson, KR 4696
4x100 m. boðhlaup:
KR (Úlfar T., Þoist. Þ., Ólafur G., Val
bjöm Þ.) 44,4 sek.'
KR (Einar, Þórarinn R., Ólafur , Val-
bjöm). 45.0
ÍR (Birgu- Á„ Helgi H., Þórarinn A.,
Jón Ól.) 46,3
Á (Sigurður L., Jón A., Magnús J., Ein
ar H.) 46,3
4x400 m. boðhlaup:
KR (Ólafur G„ Vaibjöm Þ„ Halldór G„
Þorsteinn Þ.) 3:25,4
ÍR (Jón O., Snorri Á„ Guðmundur Ó„
Þórarinn A.) , 3:39,9
KR (Páll E„ Ólafur Þ„ Hreiðar J„ Þor
steinn.) 3:40,5
Á (Sigurður L„ Magnús J„ Einar H„
Rúdolf A.) 3:44,7
Listkynning
Framhald af bls. 3.
hafa aðstoðað okkur með ráðum
og dáð við að undirbúa þessa
listkynningu, en það eru: Sverr-
ir Haraldsson, listmálari, Ólöf
Pálsdóttir, myndhöggvari, Vigdis
Kristjánsdóttir, listmálari og Ey-
borg Guðmundsdóttir, listmálari.
Aðstoð og skilningur þessa ágæta
listafólks er þessari starfs^mi ó-
metanleg og væri hún raunar lítt
framkvæmanleg án hennar.
Þá vil ég víkja nokkrum orð-
um að starfsemi samtakanna í
vetur. í lok þessa mánaðar mun-
um við halda fund um uppeldis-
og skólamál, en þar flytja erindi
Margrét Margeirsdóttir, félagsráð-
gjafi og Rannveig Löve kennari.
Þá munum við í vetur halda fund
um aðstöðu kvenna til starfa og
menntunar, enn fremur munum
við taka fyrir frelsisbaráttu Kúrda
og kynþáttavandamálið í Banda-
ríkjunum og enn fremur Vietnam-
styrjöldina, en samtök okkar eru,
sem kunnugt er þátttakendur í
Vietnam-nefnd þeirri er stofnuð
var með þátttöku margra félaga-
samtaka hér á sl.vetri.
Eftirtaldir listamenn sýna verk
sín í Breiðfirðingabúð á' vegum
samtakanna n.k. sunnudag, kl.
14.30:
Sverrir Haraldsson, listmálari.
Ólöf Pálsdóttir, myndhöggvari.
Vigdís Kristjánsdóttir, listmál-
ari.
Eyborg Guðmundsdóttir, list-
málari.
Sigurður Sigurðsson, listmálari.
Kjartan Guðjónsson, listmálari.
Jóhannes Jóhannesson, listmá'l-
ari.
Jóhann Eyfells, myndhöggvari.
Kristín Eyfells, listmálari.
Magnús Árnason, listmálari.
Barbara Árnason, listmálari.
Steinþór Sigurðsson, listmálari.
Hringur Jóhannsson, listmálari.
Ragnheiður Óskarsdóttir, list-
málari.
Sigríður Björnsdóttir, listmál-
ari.
Sigrún Jónsdóttlr sýnir batik.
Ragnar Lárusson, listmálari
teiknar andlitsmyndir af sýning-
argestum sem þess óska.
Athugasemd
Framhald 3. slðu.
áætlunin gleypti 80% af því fé,
sem Húsnæðismálastofnunin hef-
ur til ráðstöfunar á þessu ári og
við það stend ég. — Sá hinn sami
sagði mér einnig ýmislegt annað,
sem hefði verið fróðlegt fyrir
þjóðina að fá nánari fréttir af. —
Þessum stjórnarmanni finnst það
nú hæfa, að neita þessum orðum
mínum og verður hann að sjálf-
sögðu að fara þar eftir eigin sam-
vizku.
Ég efast ekki um, að tölur þær,
sem Húsnæðismálastjórn birti
máli sínu til staðfestingar, hafi
verið réttar. Þær eru hinsvegar
nokkuð takmarkaðar, þar sem þær
ná aðeins yfir tímabilið 1. jan.
1967 til 1. sept. sama árs. — í
athugasemdinni er þess ekki get-
ið, hversu mikið fé stofnunin áætl
ar að hún hafi til ráðstöfunar á
þessu ári, né hversu mikið áætl-
að er að verja til Framkvæmda-
nefndarinnar. Um það, hvernig
dæmið mun líta út á' næsta ári,
er ekkert sagt. — Skiptir það þó
miklu máli.
Veigamestu' spurninguna, sem
ég varpaði fram i útvarpsþættin-
um, leiðir stofnuin algjörlega hjá
sér. — Þær hundruðir fjöl-
skyldna, sem eiga lánshæfar um-
sóknir hjá tofnuinni, en hafa feng
ið það svar hjá lienni, að engin
von sé um lán fyrr en í fyrsta
lagi haustið 1968, eru því jafn-
nær um það, hvernig þær eiga
að leysa fjárhagserfiðleika sína.
— Fyrir þetta fólk er athugasemd
in einskisverði. — Það gæti þó
kannski notað pappírinn í þessari
athugasemd og öðrum álíka at-
hugasemdum Húsnæðismálastjóm.
ar til að reisa sér hús úr bréfi,
því varla reisir það sér hún úr
steini meðan lánamálin eru við
hið sama.
Virðingarfyllst.
Valdimar H. Jóhannesson.
Atvinnuþörf mæðra
Framhaid af 3. siöu.
góðu móti kæmust yfir að anna
og sagðist ihún efast um, að crpin-
bert eftirlit væri með öllum þeim
iheimilum. 1
ne?fkgakgbórt bz bz bz bz bz b
Guðrún Erlendsdóttir sagði í
sínu erindi, sem fjalluði um ætt-
leiðingar, að mjög þýðingarmikið’
væri að einmitt barnaverndar-
félögin beittu sér fyrir því, að
komið yrði upp leiðbeiningarstöð
fyrir ungar mæður, er, hefðu hug
á að gefa bam sitt, þar sem það
sé mjög þýðingarmikið, að móður
í slíkum hugleiðingum séu- veitt-
ar leiðbeiningar, áður en hún tek
ur svo afdrifaríka ákvöröun og
ætti alls ekki að leyfa, slíka á-
kvörðun, fyrr en barnið v'æri f
það minnsta þriggja mánaða og
hefði móðirin haft það hjá sér.
Sorgleg dæmi væru um það„ er
móðir hefði tekið slíka ákvörðun,
áður en harnið fæddist og iðrast
skömmu eftir ættleiðingu, sem þá
var of seint. Af þeim börnum,
sem ættleidd væru hér, sagði Guð
rún, að 80% væru óskilgetin. Þó
væri aðeins lítill hluti allra óskil
getinna barna ættleidd eins og
gefur að skilja, þar eð svo mörg
skráð óskilgetin hörn eru f svo-
kölluðum trúlofunarfjölskyldum,
þar sem foreldrarnir giftast svo
seinna.
ÍBÚÐ
2—3 herb. íbúð óskast til leigu frá 1. okt. n.k.
Fátt í heimilí. Uppl. í síma 38336 og 14906.
16. september 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ