Alþýðublaðið - 14.10.1967, Blaðsíða 4
Bitstjórl: Benedlkt Gröndal. Slmar 14900—14903. — Auglýsíngasfmi:
14906. — Aðsetur: Alj)ýðuhúslð vlð Hverflsgötu, Rvlk. — Prentsmiðja
Alþýðublaðslns. Siml 14905. — Áskrlftargjald kr. 105.00. — t lausa>
sölu lcr. 7.00 elntakið. — Útgefandl: Alþýðuflokknrlnn.
Erfitf um sinn
ÞEGAR RÍKISSTJÓRNIN kom á verðstöðvun fyr-
ir ári síðan, voru fáir á móti þeirri stefnu, en flestir
sögðu, að þetta hefði átt að gera fyrr.
Síðan hefur ríkisstjórnin ivarið stórfelldum fjárupp-
hæðum, sem voru tekjuafgangur ríkissjóðs, til að
greiða niður landbúnaðarafurðir og halda verðlagi
•þannig óbreyttu.
Af hverju var þetta gert?
Það var gert í þeirri einlægu von, að verðlag út-
flutningsafurðanna mundi fljótlega hækka aftur og
hagur atvinnuveganna batna. Þannig var ætlunin að
nöta afgang góðu áranna til að fleyta þjóðinni yfir
vandræðin.
Ef verðlag afurðanna á erlendum markaði hefði
aftur farið í fyrra horf, liefði þessi stefna tekizt. En
svo hefur því miður ekki orðið. Verðhrunið ætlar að
verða langvarandi og valda íslendingum frekara
tjóni.
Stjór'narandstaðan hlakkar yfir þessari þróun mála
og kallar verðstöðvunina svikastefnu ríkisstjórnar-
innar. Þeir um það. Allur þorri landsmanna skilur,
hvað hefur gerzt og hlustar ekki á svikatal.
Tjón þjóðarheildarinnar af verðhruni afurðanna er
svo mikið, að það hlýtur að koma við hvert manns-
barn á einhvern hátt. Nú hefur ríkisstjórnin birt
þjóðinni, hvaða byrðar hún telur óhjákvæmilegt að
leggja á hana á þessu stigi.
Hvernig á að afla 7—800 milljóna til að tryggja
hallalausan ríkisbúskap? Það er hægt að skera niður
almannatryggingar. Vilja menn það? Það er hægt að
stórhækka söluskatt. Það hefði valdið áframhaldandi
verðhækkunum um allt efnahagskerfið í marga mán-
uði Því ráði var hafnað. Þá er eftir lækkun hinna
miklu niðurgreiðslna, sem bætt hefur verið á land-
búnaðarafurðir. Sú ráðstöfun leggst þungt á heimilin,
en, ferðsskattur og stórfelld hækkun eignaskatts leggj-
ást fyrst og fremst á breiðu bökin.
Alþýðuflokkimnn telcur þátt í þessum aðgerðum af
illri nauðsyn. Stjórnarandstæðingar fordæma úrræð-
in auðvitað, en henda þeir á aðrar leiðir? Nei, það
gera þeir ekki.
Alþýðuflokkurinn segir þjóðinni allan sannleika
þes'-T vandamáls. Gylfi Þ. Gíslason sagði í viðtali við
Alþýðublaðið: Lífskjör þjóðarinnar hljóta nú að
versna nokkuð, en hig nýja samkomulag stjórnarflokk
anna hefur hað að höfuðmarkmiði að snúa þessu sem
fyrst við með aukinni framleiðni og lækkun kostn-
aðar á öllum sviðum framleiðslu, svo að þjóðartekj-
ur aukist og lífskjör batni á ný.
Toyota Corolla 1100
Glæsilegur japanskur fjölskySdubíll.
Innifalið í verði m. a.: Riðstraumsrafall (Alternator), rafmagnsrúðu-
sprauta, tveggja hraða rúðuþurrkur, kraftmikil þriggja hraða mið-
stöð, gúmmímottur á gólf, hvítir hjólbarðar, rúmgott farangursrými,
verkfærataska o. fl.
TRYGGIÐ YÐUR TOYOTA.
Japanska Bifreiðasalan Ármúla 7.
Sími 34470 - 82940.
f9i
4 14. október 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
N