Alþýðublaðið - 14.10.1967, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 14.10.1967, Blaðsíða 7
nokkuð í arabisku, var lágur maður vexli og léttur sem og flestir Arabar. Næstum samtím- is Bogan sótti Slade liðþjálfi um starfann, en iiann var að líkamsbyggingu mjög áþekkur Bogan. Richardson var hæstur þeirra þriggja, er til verksins völdust, en hann fékk þann starfa að aka gömlum skrölt- andi Landrover sem herinn hafði selt Aröbunum sem brota járn. Bogan, sem er þrjátíu og tveggja ára gamall og ein af ibeztu skyttunum í brezka hern- um, var gerður að fyrirliða þess- arar litlu sveitar. — Bogan og Slade eru báðir kvæntir og eiga fjölskyldur í Englandi, en kon- um þeirra var ekki gert kunn- ugt um starfa eiginmanna sinna af öryggisástæðum. Þeir hófu nú hið hættulega starf sitt, málaðir í andliti, í arabiskum klæðum, vitandi að hvert verkefni gat verið hið síðasta. í skuggalegum hverfum Aden-borgar var enginn mögu- ieiki fyrir þá að þekkja vini frá fjandmönnum, svo þess vegna vom allir fjandmenn í þeirra augum. Bogan hafði fengið 48 klst. til að rannsaka starfsemi ofbeldis- mannanna. Hann komst að því að félögin greiddu upphæðir frá 25—50 dollara fyrir hverja hand sprengju sem varpað var. 25 dollara fyrir skaða unninn á eignum, en upphæðin fór hækk- andi ef fólk var sært og hæsta verð var greitt, ef brezkir þegn ar eða áhangendur þeirra voru drepnir. Á þeirri ógnaröld sem ríkt hefur í Aden hafa 128 manns verið drepnir, þar af 26 Bretar og meira en eitt þ'úsund manns hafa særzt illa, þar af fimm hundruð Bret.ar, menn, konur og börn. Bretunum þremur, sem til- heyrðu fyrsta fótgönguliðsher- fylki var óheimilt að ræða starf sitt við neina aðra en yfirmenn sína. Jafnvel félaga þeirra, sem tilheyrðu sömu herdeild grun- aði ekki að þeir væru binir frægu Rottuveiðimenn í Aden, en undir því nafni voru þeir þremenningarnir frægir þá sjö mánuði, sem þeir dvöldu við þessa neðanjarðarstarfsemi sína. Undir Hunter-stræti, einni al- ræmdustu götunni í Aden, þar sem rúmlega fimmtíu hand- sprengjum hefur verið varpað að vegfarendum, liggur holræsi. í þessu holræsi uppgötvuðu Bog an og hans menn, af hreinni til- viljun, bækistöð og vopnabúr of- beldismannanna. — Þeir veittu nokkrum Aröbum eftirför niður í 'holræsið. Er þeir sáu opna leynihurð á einum veggnum, sendu þeir kúlnahríð úr byssum sínum í fætur Arabanna og héldu inn um dyrnar. Frá dyr- unum lágu leynigöng sem end- uðu í vínkjallara nokkrum. — í kjallaranum voru fyrir sex Ar- abar og tókst Bretúnum fljót- lega að yfirbuga þá. Við leit í Framhald á bls. 10. , .W Aðaíbókari Stórt fyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða aðalbókara nú þegar. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun, og fyrri störi sendist undirrituðum fyrir 20. þ.m. Svavar Pálsson löggiltur endurskoðandi, — Suðurlandsbraut 10, Reykajvík. MERKJASALA Blindravinafélags íslands verður sunnudaginn 15. okt. og hefst kl. 10 f.h. Sölubörn komið og seljið merki til hjálpar blindum. Góð sölulaun. Merkin verða afhent í anddyri barnaskóla Reykjavíkur, Kópavogs og Hafnarfjarðar. Hjálpið blindum og kaupið merki dagsins. Merkið gildir sem happdrættismiði. BLINDRAVINAFÉLAG ÍSLANDS. Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði heldur fund mánudaginn 16. október kl. 8,30 e.h. I Alþýðuhúsinu. FUNDAREFNI: 1. Hörður Zophaníasson bæjarfulltrúi ræðir um bæjarmálin. 2. Vetrarstarfið. 3. Bingó og kaffiveitingar. STJÓRNIN. Irésmiðafélag Reykjavíkur Félagsfundur verður í Lindarbæ þriðjudaginn 17. þ.m. kl. 20.30. FUNDAREFNI: Skipulagsmál A. S. f. Kjara- og atvinnumál. STJÓRNIN. Áskriftasíminn er 14901 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 14. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ^

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.