Alþýðublaðið - 28.10.1967, Side 1

Alþýðublaðið - 28.10.1967, Side 1
ALÞYÐUBLAÐ IÐ næstu viku BREYTINGAR Vetrardagskrá hljóðvarpsins er nú hafin. Þar gætir margra nýrra grasa, hafa kvöldfréttirnar verið færður aftur og. eru fréttirnar nú lcsnar kl. 22, en ekki kl. 21 eins og verið hefur. Þá er útvarpað samfellt frá morgu'nútvarpi til há degisútvarps og þar með ■ sam- fleytt allan daginn frá dagskrár- byrjun til dagskrárloka. Jafn- fram verður lagt niður allt út- varp frá jarðarförum. Á tíman- um frá 10 til 12 á morgnana verð ur nú útvarpað ýmsu efni', aðal- lcga þó tónlist, m.a. verða þá cnd urteknir ýmsir vinsælir tónlistar liðir úr kvölddagskrá svo' sem lög unga fólksins og Á nótum æsk- unnar. Einnig verður á sú breyt- ing að mcira verður nú flutt af töluðu orði fyrri hluta dags en verið hefur. Ýmsir erindaflokk- ar og þættir hefjast nú, sumir nýir, og munum við segja frá þeim í stuttu máli jafnóðum og þeir hefja göngu sína. Enskukennslu frestað Eins og skýrt hefur verið frá dregst það um eina viku að ensku kennsla sjónvarpsins geti hafizt. Það er því á laugardaginn kem- ur kl. 17.00, sem sjónvarpsháhorf endur geta dregið kennslubókina ,,Walter og Connie“ úr pússi sín um og hafið námið. „Stundarkorn" é mánudagskvöld Á mánudagskvöld kl. 20.30 sýnir sjónvarpið ,,Stundarkorn“ í umsjá Baldurs Guðlaugssonar. Baldur ræðir við ungt ljóðskáld, Nínu Björk Árnadóttur, en hún gaf út ljóðabók fyrir nokkrum árum og er nú með aðra í deiglunni. Nína les nokkur frumort ljóð. Því næst heyrum við samleik á cornct og orgel. Daníel Óskarsson og Karl Möller leika. í sumar leið fóru nokkrir djarf ir félagar Flugbjörgunarsveitar- innar í ævintýralegt ferðalag yfir Vatnajökul. Einn þeirra Garðar Siggeirsson segir frá ferðinni og sýnd er kvikmynd sem félagarnir tóku. Þá heimsækir þáttinn efnileg- ur listmálari, Karólína Lái'us- dóttir. Karólína hélt fyrstu sjálf- stæðu sýningu verka sinna nú í sumar og vakti sýningin mikla at hygli. SavannO-tríóið er ekki lengur starfandi, en einn þremenning- anna, Þórir Baldursson, hyggst halda áfram á sviði tónlistarinn- ar. Þórir hefur nú sent frá sér hljómplötu í Englandi og von er á fleirum. Hann syngur tvö lög í þcssum þætti og segir cinnig nokkuð frá fyrirætlunum sínum. Svo sem sjá má á þessari upp- talningu cr hér einungis um ungt fólk að ræða. En þessir þættir hafa fallið mjög vel í geð íullorð inna, enda gestir yfirleitt haft nokkuð til síns ágætis. Við bend um því öllum aldursflokkum á að opna sjónvarpstækið kl. 20.30 á mánudaginn kenjur.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.