Alþýðublaðið - 02.11.1967, Síða 13

Alþýðublaðið - 02.11.1967, Síða 13
INGMAR BERGMANS F0RSTE LYSTSPIL I FARVER 71 lOLADEl ENKEÍ FÖRATT INTE TAIA OM AUA OtSSA KVIBBOR HARRIET ANDEKSSON BIBIANDERSSON EVA DAHLBECK JARL KULLE Aliar þessar konur Skemmtileg og vel leikin gam anmynd. Sýnd kl. 9. ÓTTARYNGVASON héraðsdómslögmaður MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA BLÖNDUHLÍÐ 1 • SÍMI 21296 BÍLAKAUF 15812 — 23900 Höfum kaupendur aB flest- um tegundum og árgerðum af nýlegum bifreiðum. Vinsamlegast látið skrá bif- reiðina sem fyrst. BÍLAKAUP Skúlagötu 95 við Rauðará Símar 15812 - 2890». ÖKUMENN Látið stilla í tíma. Hjólastillingar Mótorstillingar Ljósastillingar Fljót og örugg þjón- usta. BÍLASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32 Sími 13-100. m innui ,íöU S3.ES. ÁUGLÝSIÐ í Aiþýðublaðiniu hingað til Polzennor hefur hann komið afar grusamlega fram og mér finnst þetta tilboð hans um að kaupa eignina grunsam- legast af öllu. Svo er það ann- að — hvar ætti hann að fá 20 þúsund pund? — Meg! sagði Janice og hr. Smithers fór enn meira hjá sér. David Carew brosti aðeins. — Ég stal ekki peningunum, Margaret, þó að þú álítir að svo sé. Hún leit hörkulega á hana. Ég átti ekki við það. Ég átti aðeins við, að líkur eru fyrir því, að þú sért sá hr. Carey í Ameríku sem pabbi sendi háar peningaupphæðir til og eina á- stæðan fyrir þeim greiðslum er sú, að þú hefur ,kúgað af honum fé. 'Ástæðuna fyrir þeirri fjár- kúgun veit ég ekki, en ég geri ráð fyrir að það séu þeir pen- ingar, sem þú ætlar • að kaupa Polzennor fyrir. Hann var orðinn kríthvítur í andliti. Nú reis hann á fætur. Hann gekk út úr herberginu og bæði Tom og Janice komu til Meg. — Hvernig geturðu sagt ann- að eins? — Hefurðu misst vitið? — Þú mátt þakka fyrir, ef hann lögsækir þig ekki fyrir rógburð! Hr. Smithers bað þau um að vera róleg og spurði: — Meg, hvernig stendur á því að þú kem- ur með slíkar ásakanir? — Ég veit það ekki, svaraði hún þreytulega, — það er eitt- hvað óhugnanlegt yfir honum. Hvers vegna vill hann vera hér? Hvers vegna vill hann kaupa Polzennor? Skyndilega kom henni dálítið til hugar. Gætu verið einhver náttúru- auðæfi hér á Polzennor, sem við vitum ekki um? Faldir fjár- sjóðir eða dýrmæt efni í jörð? Lögfræðingurinn varð alvar- legur á svipinn. Nei, það gæti ekki verið og ég óttast, að í- myndunaraflið hlaupi með þig í gönur. Ef ég væri í þínum spor- um myndi ég reyna að hafa þessar óstaðfe.stu grunsemdir út af fyrir mig og taka tilboði hr. Carew þakksamlega. Þú færð ekki fleiri góð tilboð. Hann kvaddi og fór og Meg ákvað að fara út að ganga til að forðast reiðiorð systkina sinna. Garðurinn var baðaður tungls- ljósi og suð skordýranna heyrð- ist greinilega. Hún kom ekki auga á David Carew fyrr en hún var komin alveg að honum og hún missti jafnvaegið og féll í faðm hans. Það hafði ekki verið ætlun henn- ar, en auílnabliki síðar hélt hann utan um hana og varir hans mættu vörum hennar. Löngu síðar leit liann upp og hló. — Nú get ég sagt, að þú hafir leitað á mig, Margaret. Ég ætlaði ekki að kyssa þig, að- eins að tala við þig. Það var satt, og hún skamm- aðist sín mjög. Hvað gekk eig- inlega að henni? Hún lilaut að vera óð. Hana langaði til að slá hann utan undir en hann vék sér undan, þegar hún reyndi það og hún hljóp heimleiðis aftur. Þegar hún kom inn á her- bergi sitt, sat hún þar móð og Christina Lafferty: másandi og velti því fyrir sér, hvernig hún gæti elskað hann svo mjög. Hann hafði gert henni lífið leitt síðan hann kom til Polzennor og nú vildi hann kaupa eignina. Hvað lá að baki því? Hann vissi, hvernig stein- náman féll og virði hennar og það hlaut að vera leynd orsök fyrir því, að hann vildi kaupa húsið og landareignina. FIMMTÁNDI KAFLI. Næsta morgun fór hún til steinnámunnar eins og hún á- liti, að hún gæti komizt að því við fyrstu sýn, hvaða ástæður væru fyrir því, að David Carew vildi kaupa húsið. David var kominn þangað, hann var að vinna með fólkinu og þegar hún heyrði fótatak bak við sig, leit hún við. Þetta var Jan New- ton. Hann leit á hana skugga- legu augnaráði og tautaði: Ég kem seint núna, en konan mín veiktist líka í nótt. — Það var leitt. Hefðuð þér ekki átt að vera heima hjá henni í dag? Hann yppti öxlum. — Þá hefði nýi ráðsmaðurinn farið að rífast. Þetta eru þessi venjulegu veikindi konunnar og við viljum hvorki að læknar né útlending- ar séu að blanda sér í okkar mál. Hr, Carew kallar það um- hyggju fyrir velferð okkar, en við komumst af án hans. Svo David hafði sýnt áhuga fyrir velferð mannanna og fjöl- skyldum þeirra. Hann er góður ráðsmaður, góður leiðtogi, hugs- aði hún. Að vísu líktust sumir Jan Newton, sem vildi ekki að menn skiptu sér af einkamálum hans, en Meg vissi, að margir verkamannanna myndu verða ánægðir með afskipti hans og hlutu því að vinna betur. En þetta var samt ekki út- skýring á áhuga David Carews fyrir að kaupa Polzennor og nú fór hún á skrifstofu Peters. — Hann ætlaði að faðma hana að sér, en hún vék sér undan og sagði: — Ég hef áhyggjur, Peter. David Carew hefur boðizt til að kaupa Polzennor á 20 þúsund pund og ég get ekki skilið hvers vegna. Peter kipraði saman augun og þagði um stund. — 20 þús- und pund, sagði hann dræmt. Það eru miklir peningar. Ég geri ráð fyrir að hér séu maðkar í mysunni, Meg. — Ég líka og ég hef velt því fyrir mér, hvort ekki séu verð- mæt efni í jörðu hér, en hr. Smithers segir að það sé vit- leysa. En hvers vegna finnst Da- vid Carew að Polzennor sé 20 þúsund punda virði. Peter hrukkaði ennið hugsandi. Bíddu við. —■ Mér finnst ég kannast við eitthvað í sambandi við þetta. — Hann smellti með fingrunum. Ég man það! — Ég veit, af hverju hann vill kaupa landið. Skömmu áður en faðir þinn dó, heyrði ég hann tala við mann frá London, sem kom til hans. Ég heyrði ekki vel hvað þeir sögðu, en mér skildist að hann væri frá her- stjórninni og að þeir hefðu á- kveðið að selja strandlengjuna næsta ár. — Það var nú það! sagði Meg. Ef David kaupir Polzennor og®>- strandlengjuna verður hann á grænni grein. — Rétt. Þetta verður gull- náma. Almenningur borgar stór fé fyrir að komast á baðstaði. Hér yrðu byggð hótel og húsinu breytt í — — — Þú hefur á réttu að standa, Peter! David Carew hefur allt- af ætlað að kaupa Polzennor. Þess vegna vildi hann vera hér og bíða eftir réttu augnabliki. Varir hennar herptust saman. 20 þúsund pund. Þegar eignin gæti orðið 200 þúsund punda virði. Ég læt hann aldrei fá hana — aldrei! Seinna um daginn fór Meg með strætisvagni í kaupstaðinn til þess að forðast viðræður um tilboð Davids. Hún vissi að Tom og Janice vildu endilega að hún seldi eignina en hún nennti ekki að hlusta á mótbáfur þeirra og hún vildi ekki heldur vera nálægt David Carew. Hún þjáð- ist enn vegna auðmýktarinnar yfir framkomu sinni kvöldið áð- ur og óttaðist að hitta hann aft- ur, sérstaklega þar sem hún vissi, að hann myndi stríða henni. En fyrst hún var komin til borgarinnar ákvað hún að heim- sækja gamla hr. Gill, sem var einn af fornum vinum föður hennar og jafnframt friðdóm- ari. Hann var feginn að sjá hana og bauð henni upp á te og þegar þau höfðu rabbað aman, ^agði Meg: — Mig langar að leita aðstoð- ar yðar, hr. Gill. Pabbi skipaði mig fjárhaldsmann fyrir Tom og Janice og mér finnst ég bera ábyrgð á þeim. Þau ættu að fara aftur í skólann, en þau neita að gera það. Hr. Smithers segir, að ég verði að leita til dómstólanna og koma fram rétti mínum, en það vil ég vit- anlega ekki. Mér kom til hug- ar, að þér væruð fáanlegur til að skrifa bréf til — — — Ég skil, sagði hann. — Ég skal láta einkaritara minn skrifa mjög sterklega orðað og afar löglegt bréf til þeirra, þar sem ég skipa þeim að halda á- fram námi sínu. Þau eru það ung og óreynd að þau trúa því að þetta sé lögum samkvæmt. En David. Carew er það ekki, hugsaði Meg í hjálparvana reiði. Hann skiptir sér af öllu og seg- ir þeim, að þau þurfi ekki að HARÐVIÐAR 0TIHURÐIR TRÉSMIÐJA Þ. SKOLASONAR Nýbýlavegi 6 Kópavogi I sími 4 01 75 2. nóvember 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 13

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.