Alþýðublaðið - 22.11.1967, Page 9
/EL HEPPNAÐUR FUNDUR
SAMBANDSRÁÐSFUNDUR
ungra jafnaðrmanna var hald-
inn í Reykjavjk um síðustu
helgi. Stóð fundurinn bæði laug
ardag og sunnudag og þótti
'heppnast sérstaklega vel. Verk-
efni fundarins var að vinna að
hinni nýju stefnuskrá ungra
jafnaðarmanna, en ætlunin er
að í vetur verði haldnir 3 sam-
bandsráðsfundir og stefnuskráin
fullunnin á þeim.
Sigurður Guðmundsson, for-
maður S. U. J., setti fundinn, en
síðan tók til máls Hörður Zó-
phaníusson formaður nefndar,
sem starfað hefur frá síðasta
sambandsþingi að undirbúningi
stefnuskrárinnar. Gerði hann
grein fyrir störfum nefndarinn-
ar og lagði fram til umræðu 1.
hluta stefnuskrárinnar, sem
fjallar um dómsmál, utanríkis-
mál og félagsmál. Þá voru nefnd
ir skipaðar, ein fyrir hvern
málaflokk og störfuðu þær á
laugardagskvöld og sunnudags-
morgun.
Kl. 2 á sunnudag var fundur
settur að nýju. Voru þá nefnd-
arálit lögð fram og umræður
um þau hófust. Fyrst var tek-
ið fyrir álit utanríkismálanefnd
'ar, en formaður hennár var
Ingvar Viktorsson. Kom í ljós
að nefndin hafði gert allmiklar
breytingar á upphaflega frum-
varpinu. Urðu nú miklar og
fjörlegar umræður, sem stóðu
fram eftir degi, en að þeim lokn
um var málinu aftur vísað til
stefnuskrárnefndar. — Þá var
tekið fyrir álit dómsmálanefnd-
ar, en formaður hennar var
Örlygur Geirsson. Fylgdu því
einnig fjörugar umræður, sem
fjölluðu einkum um aðskilnað
ríkis og kirkju. Að umræðum
loknum var málinu einnig skot-
ið til stefnuskrárnefndar.
Nú var ger.t kvöldmatarhlé.
Hófst fundurinn aftur kl. 8,30 og
var þá tekið fyrir síðasta mál
fundarins, félagsmál. Formaður
félagsmálanefndar var Karl
Steinar Guðmundsson og gerði
Framhald á 10. síðu.
Æskan
og
landið
IVIálgagn S.U.J.
Ritstjórar:
Finnur T. Stefánsson
GuSlaugur Tryggvi Karlssoiu
Rafmagnsgeislaofnar
til festingar á vegg
nýkomnir í 2 stærðum
FOSSKRAFT
óskar að ráða fáeina járnamenn aðeins þaul-
vanir menn koma til greina. Löng vinna fram-
u'ndan.
Upplýsingar á Suðurlandsbraut 32.
Ráðningarstjórinn.
AÐSTOÐARSTARF
A^stoðarstarf er laust í veðurfarsdeild Veður -
stofu íslands. Starfið er að hálfu fólgið í götun
á I.B.M.-vélar en að hálfu er um ýmis störf við
úrvinnslu veðurathugana að ræða.
Nauðsynlegt er að ivæntanlegir umsækjendur
hafi að minnsta kosti gagnfræðapróf. Launa-
kjör samkvæmt launakerfi ríkisins.
Nánari upplýsingar á Veðurstofunni í Sjó-
mannaskólanum.
SKJALA-
GEYMSLU
HURÐIR
eru
fyrirliggjandi
LANDSSMIÐJAN
Sími 20680.
Askriftasimi Aiþýðublaðsins er 14900
22. nóvember 1967 — ALÞYÐUBLAÐIÐ $