Alþýðublaðið - 14.01.1968, Blaðsíða 3
veitir maður sér
meira en
Þorsteinn Hjálmarsson s((öffvarstjóri pósts og síma á Hofs-
ósi vann eina milljón og eitt hundraff þúsund krónur í
Happdraetti Iláskóla íslands í féiagi viff tvo affra menn.
Hinir voru Valgarff Björnsson, héraffslæknir á Hofsósi og
Tómas Jónsson verkamaffur.
Þessir lukkunnar parafíiar gerffu sér dagamim nú eftlr ára-
mótin og' brugffu sér suffur til Reykjavíkur og dvöldu á
Hótel Sögu og nutu þar veliystinga. Þorsteinn meff konu
sinni Pálu Pálsdóttur kennara og Valgarff meff konu sinni
Ilólmfríffi Runólfsdóttur, hins vegar er Tómas ókvæntur.
Við vissum af Þorsteini á
Hótel Sögu í gær og gerðum
okkur ferð þangað til að hitta
þennan heppna mann. Þeir eru
ekki á hverju strái þvílíkir
lukkunnar pampílar. Uppi á her
bergi 526 sat Þorsteinn, þegar
blaðamann bar að garði, og
bauð hann honum sæti. Féllst
Þorsteinn strax á að rabba við
blaðamann nokkra stund.
—Geturðu ekki sagt okkur,
hvað maður eigi að gera til
þess að hreppa „þann stóra“?
—„Svarið við því er tví-
mælalaust það, að maður verð-
ur að eiga nógu mikið af mið-
um og hafi síðan þolinmæði
til að bíða rólegur. Ég er ekki
að reka neinn áróður fyrir
happdrættið sem slíkt, þó ég
sé reyndar umboðsmaður þess
heima í Hofsósi, en ég er bú-
inn að vera það síðan 1946.
Þú getur verið viss um það,
að ég stýrði samt ekki liend-
inni, sem dró „þann stóra“—
ég gat engu þar um ráðið.
Síðan ég datt í lukkupottinn
er ég búinn að selja eina 25-
miðaröð af heilmiðum og aðra
25-miðaröð af hálfmiðum. Hofs
óssbúar ætla að gera það, sem
þeir geta til þess að stóri vinn-
ingurinn fari ekki fram hjá
þeim næst“
—Hvernig varð þér við, þeg-
ar þú fréttir, að „sá stóri“
hafði fallið í þinn hlut að
nokkru leytí? —„Maður hopp-
aði nú svo sem ekkert mjög
hátt. Þetta hefur svo sem enga
grundvallarbreytingu í för með
sér. Hins vegar er því ekki að
neita, að það er verulega á-
nægjulegt að lenda í þessu
happi. Okkur hjónunum gefst
ekki oft tækifæri til að lvfta
okkur svona upp eins og við
höfum gert núna undanfarna
daga hérna syðrat og eigum
við hjónin öruggiega eftir að
minnast þessarar upplyftingar
lengi. Við komum hingað á
Hótel Sögu á laugardagskvöld-
ið og erum búin að vera hér
í „lúxux” síðan. Konan mín
er nú farin norður aftur, en
hún varð að fara á undan mér
lieim. Mér er óhætt að segja,
að á meðan við vor.um hér bæði
nutum við ferðarinnar í rík-
um mæli og held óg að hún
muni seint gleymast“.
—Þú ert sjálfsagt ekki bú-
inn að ákveða, hvernig þú ætl-
ar að verja happdrættisvinn-
ingnum?
„Kannski veitir maður sér
heldur meira en áður. Ég hef
til dæmis aldrei getáð veitt
mér þann munað að fara í
skemmtiferð tll‘ fitlanda. Það
getur vel verið, að við hjónin
veitum okkur þá tilbreytingu
einhvern tíma á næstunni. Við
höfum ekkí oft átt þess kost
að lyfta okkur upp samcigin-
lega. Ef við, einhverra hluta
vegna, höfum nauðsynlega
þurft að -fara að heiman, þá
höfum við orðið að fara sitt
í hvoru lagi vegna barnanna.
Nú er þetta að breytast, þegar
krakkarnir eru að verða upp-
komnir“.
—Já, það er rétt, þú hefur
fyrir stórri fjölskyldu að sjá,
Þorsteinn, ekki satt? —,,Jú,
ekki verður annað sagt. Við
hjónin eigum níu börn, sem
nú eru á aldrinum 10—27 ára,
svo að heimllið er nú óðum
að léttast. Ég er kvæntur mik-
illi ágætis konu, Pálu Páls-
dóttur. Jafnframt því sem Pálá
hefur séð um þetta stóra heim
ili, hefur hún verið fastur kenn
ari við barnaskólann á Hofs-
ósi i rúm þrjátíu ár. Þar að
auki hefur hún getað helgað
sig félagsmálum kvenna í hér-
aðinu í ríkum mæli. Hún hef-
ur, til að nefna, verið formað-
ur Sambands skagfirzkra
kvenna um árabil“.
—En þú sjálfur, hefur þú
ekki starfað mikið að féiags-
málum heima í-héraði? — Jú,
Þorsteinn Hjálmarsson.
nokkuð hef ég nú unnið að
félagsmálum. Ég er oddviti og
verð að gegna ýmsum trúnað-
arstörfum, sem í kringum það
eru“.
—Ertu Skagfirðingur Þor-
steinn? —Nei, það er ég nú
ekki. Skagfirðingur er ég ekki,
heldur Vestfirðingur, fæddur i
Álftafirði við Djúp. Ég er úr
þessu ágæta krataumhverfi þar
vestra. Hins vegar er konan
mín Skagfirðingur.
—Hvað geturðu sagt okkur
um fólk og líf í Hofsósi?
í Hofsósi eru nú um það bil
300 íbúar. Afkoma þeirra og
atvinna byggist fyrst og fremst
á sjávarútvegi. Atvinnulífið
heima hefur verið afar dauft
síðustu tvö árin, einkum vegna
aflatregðu.
Fjórir bátar eru gerðir út
frá Hofsósi núna, eru það þrír
20—30 tonna bátar og einn 50't
til 60 tonna bátur. Minni báfc-
arnir hafa ekki verið í gangi
nema yfir sumarmánuðina,
Stafar það aðallega af því, að
hafnarskilyrði eru þannig, að
menn eru ekki öruggir með
bátana yfir veturinn, og einn-
ig þykja þeir of litlir til að
stunda sjó á þeim á veturna.
Stærsti báturinn er nú í
gangi—gerður út á línu,— og
vona ég að honum verði haldið
Framhald á 11. síffu.
Handbolti í dag
í DAG fara fram tveir leikir í
1. deild og einn í 2. deild. í 1.
deild leika Fram og Víkingur og
Haukur og Valur. í 2. deild leika
ÍR og Þróttur.
| HreiÖar Ársæls-
ijson þjálfari ÍBVí
EINS og kunnugt er sigr-
á uffu Vestmannaeyingar í 2
é deild íslandsmótsins í
'I knattspyrnu í fyrra. Iáff
Ji þeirra leikur því í 1. deild
(i á þessu ári.
<1 Vestmannaeyingar hafa
J, vtriff aff leita fyrir sér um
(i þjálfara undanfariff og nú
r mun nærri ákveffiff, aff
Hreiffar Ársælsson, fyrrum
(i landsliffsmaffm- úr KR taki
(i aff sér aff þjólfa hiff harff-
<1 skeytta liff Eyjamanna.
1
nær 400 milljónir
A ARINU 1967 afgreiddi Ilúsnæff
ismálastofnun ríkisins 2519 lán
samtals aff upphæff kr. 391.452.
000.00. Er þetta hæsta Iánveit-
ing sem fram hefur fariff á veg
um stofnunarinnar.
Lánveitingar fóru fram vorið
og haustið 1967. Voru veitt bæði
byrjunarlán og viðbótarlán.
Veitt voru ný lán til 1070 íbúða
og 1449 viðbótarlán eða alls 2519
lán. Auk þess fór fram ó árinu
veiting lánsloforða er koma til
greiðslu eftir 1. maí á þessu ári.
Eru lánsloforð þessi 531 talsins,
samtals að upphæð kr. 93.245.000
00. Loks veitti Húsnæðismála-
stofnunin bráðabirgðalan á ári-
inu til byggingaframkvæmda FB
í Breiðholti. Nam sú lánveiting
samtals kr. 86.380:000.00.
Um næstu lánveitingu Hús-
næðismálastofnunarinnar vísast
til auglýsingar, er birtist um þess
ar mundir i blöðum og útvarpi.
semi
Annað tölublað Félagsbréfs T.
F. í. er komið út fyrir skömmu,
og er ■ þar m.a: sagt nokkuð frá
félagsstarfinu, birt stutt ávarp
frá framkvæmdastjómi úrdrættir
úr fjórum fundargerðufn og sagt
frá félagsstarfinu í vetur. Einnig
er þar „Ferðasögnbrot' frá AVst-
urlöndum" eftir einn. félags-
manna, Magnús Oddsson, sem
segir frá hinni viðburðarríku
ferð hóps íslendinga fyrir botni
Miðjarðarhafs í byrjun júnimán
aðar s.l., er sex daga stríð ísra-
elsmanna á hendur Aröbum skall
á og truflaði ferðaáætlun íslend
inganna rækilega. Loks er eink-
Framhald á bls. 11.
FLOKKSST ARFID
Málfundaæfing
Málfundaæfingar verða á vegum Aiþýðuflokksfélags Reykjavíkur og F.U.).
í Reykjavík og verður fyrsti málfundurinn á' þriðjudag 16; janúar í- Ing-
ólfskaffi kl. 9,30.
Þátttaka tilkynnist skrifstofu flokksins sími 16724. Stjórnandi verðui’
Þorsteinn Pétursson.
AKRANES
Að'alfundur Alþýðuflokksfélags Akraness verður haldinn á sunnudag
kl. 1,30 í Röst. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður ætt um bæjarmál.
STJÓRNIN.
14. janúar. 1968 - ALpÝÐUBLAÐIÐ $