Alþýðublaðið - 14.01.1968, Blaðsíða 10
Ballettstjarna
Framhald úr opnu.
misst allt sjálfstraust. 'Ég hef
þekkt dansara .sem urðu svo
mlður sín af að lesa slæma dóma,
að þeir jöfnuðu sig ekki má'n-
uðum saman og jafnvel lengur.
Ég reyni ekki að komast hjá
gagnrýni, en ég vil heldur fá
hana frá ballettfólki en áhuga-
mönnum, þó að þeir skrifi dóma
í blöðia. Ég hef fengið minn
skerf af aðfinnslum um dag-
ana, og af þeim hef ég lært mik-
ið — bæði frá Ninette de Val-
ois, Ashton og Nureyev. Ég man
að Ashton reiddist mér oft á
fyrstu árunum fyrir alls konar
klaufaskap og ergði sig gulan
og grænan yfir fótunum á mér
sem voru ekki nógu sterkir. Það
varð mér aðeins til góðs.
Sp. Hafið þér sérstakt matar-
æði til að lialda yður sem bezt
líkamlega?
Sv. Nei. Mitt aðalvandamál
er að borða nógu mikið til að
viðhalda kröftum mínum og
vinnuþreki. En ég hef ekkert
sérstakt mataræði. Ég borða
mikið kjöt vegna eggjahvítu-
efnanna alveg eins og íþrótta-
menn. Ballett er meiri áreynsla
fyrir líkamann en nokkur
íþróttagrein. Á hinn bóginn eru
dansarar óvenjulega hraustir
og sterkbyggðir, og flestar ball-
erínur verða mjög langlífar.
Sp. Hvernig slakið þér á?
Sv. Ég geri það alls ékki, Ég
á við, að ég nota enga sérscaka
aðferð til þess. Ég stunda ekki
yoga-æfingar eða neitt þvíum-
líkt! Eftir sýningu þar sem ég
dansa stór hlutverk á borð við
Giselle eða Odette-Odile er ég
lengi að komast aftur í jafn-
vægi. Ég get ekki farið beint í
rúmið og gert mér vonir um að
sofna. Stundum skrepp ég á
næturklúhb eða dansstað eða
bara í veitingahús, því að ég
borða aldrei fyrir sýningu.
Sp. Hafið þér gaman af að
dansa venjulega samkvæmis-
dansa?
Sv. Já', þegar ég er í skapi til
þess, Stundum hef ég enga
löngun til slíkra hluta. En ég
kann vel við tízkudansana núna;
þeir eru svo eðlilegir og frjáls-
ir. Það er sérstaklega þægileg
slökun fyrir ballettdansara að
dansa þá eftir sýningu, því að
á sviðinu verður hvert spor og
hver hreyfing að vera svo hnit-
miðuð.
Sp. H-vað segið þér um tízkr
una í dag?
Sv. Mér finnst skemmtilegt
að sjá unga fölkið klæða sig
svona djarflega. Ég keypti sjálf
stuttpils fyrir skömmu hjá 'V’ves
St. Laurent í París. Ég kaupi
öll mín -föt hjá honum. Áður var
ég fastur viðskiptavinur hjá Ði-
ór, en þegar hann dó og St.
Laurent setti upp sína tízku-
verzlun fór ég til hans. Ég álít
hann vera éinn af hugmyndarík-
ustu og smekkvísustu tízkufröm-
uðum Parísar.
Sp. Finnst yður leiðinlegt að
hafa aldrei eignazt börn?
Sv. Nei, nei. Ég á þrjú stjúp-
börn, og betra getur það ekki
verið. Stúlkurnar eru tvíbur-
ar, nítján ára gamlar, og pilt-
urinn átján ára. Það er alveg
mátuiegur aldur fyrir stjúp-
böm! Þau eru mér ákaflega góð,
og ég hugsa um þau eins og
fullorðið fólk, en ekki börn.
Sp. Eru þau hrifin af ball-
ettinum?
Sv. Já, en ekkí óhóflega. Það
er maðurinn minn ekki heldur.
Hann segir, ao hann hafi ánægju
af balletti sem er góður, vel
sviffsettur og vel dansaffur.
Sp. Hvaða álirif hefur bana-
tilræffið og lömunin haft á við-
horf lians til lífsins?
Sv. Hann hefur sætt sig ótrú-
lega vel við allt saman. Hann
í‘
Nýtt Chesterfield Filters
er ekkert bitur og ber engan
kala til mannsins sem skaut
hann.
Sp. En þér?
Sv. Nei, ég lít það sömu aug-
um og maðurinn minn. Þegar
ég frétti fyrst um skotárásina
gerði ég mér ekki grein iyrir
hversu alvarlegt þetta var. Þeg-
ar ég flaug þangað til að sjá
hann var hann algerlega lamað-
ur og gat aðeins fengið nær-
ingu með sprautum inn í ieð,
en ég hélt, að lömunin m.vndi
smám. saman lagast. Það leið
langur tími þangað til mér var
orðið ljóst hversu alvarlega
særður hann var, og það var lán
fyrir mig.
Bati hans hefur verið mjög
hægfara, en hann er aðdáan-
lega þolinmóður og viljasterkur.
Það er mikil hughreysting að
vita, að honum getur átt eftir
aff batna töluvert á næstu tíu
árunum. Og aðalatriðiff er, að
hann er ekki lengur á sjúkra-
húsi. Hann er aftur farinn að
geta lifað lífinu og starfað. og
nú situr hann í þjóðþingi Pan-
ama.
Sp. Höfðuð þér nokkurt hug-
boð um, að maðurinn yðar yrði
fyrir skotárás?
Sv. Ég vissi alltaf, að það
væru líkur til þess, að einhver
myndi skjóta hann. Og ég tel
það kraftaverk, að hann skuli
enn vera á lífi.
Sp. Hvernig vissuð þér það?
Sv. Skotárásir eru daglegur
viðburður í Panama. Þetta er
blóðheitt fólk. Fyrir skemmstu
var skotið á bl&ðamann af því
að hann hafði skrifað eitthvað
sem árásarmanninum líkaði
ekki. Til allrar hamingju virðast
þeir vera fádæma lélegar skytt-
ur. Sá sem skaut manninn minn
stóð aðeins nokkra metra frá
honum.
Sp. Hafið þér áhuga á stjórn-
málalífinu í Panama?
Sv__Ég hef áhuga á því, já,
já, ég skil það ekki. Það
er alTtof flókiff fyrir mig. Þeg-
ar við vorum á kafi í bylting-
unni þar fyrir tveimur árum
voru öll lætin alveg eins og
spennandi leikrit.
Sp. Hversu mikið hafið þér
hagnazt á list yðar í fjárhags-
legu tilliti?
Svar: Hún hefur ekki gert
mig auðuga — það er ekki hægt
að bera saman ballerínur og
kvikmyndastjörnur hvað það
snertir. En ég hef heldur eldr-
ei haft neina löngun til að verða
vellrík.
Sp. Hvernig finnst yður að
dansa í kvikmyndum?
Sv. Ég er ekki hrifin af kvik-
mynduðum ballettum. Ég hef
aldrei séð „Rómeó og Júlíu”
kvikmyndina síðan hún var full-
gerð, aðeins einstök atriði með-
an verið var að vinna hana, og
heldur ekki aðrar myndir sem
ég hef verið í. Mér finnst kvik-
myndin ekki geta náð andrúms-
loftinu í balletti, og þess utan
ýkir hún alla vankanta og gerir
gallana meira áberandi. Ég
myndi verða gráhærð af áhyggj-
um á nokkrum mánuðum út af
öllum mínum göllum, ef ég sæi
kvikmyndirnar, sem ég hef
dansað í. ;
Sp. Eigiff þér nokkrar óupp-
fylltar óskir?
Sv. Nei. Ég hef átt unaðslegt
líf, svo er guði fyrir þakkandi,
og ánægjulegan feril fram til
þessa. Mig langar aðeins til að
geta haldið áfram að dansa og
taka framförum sem ballerína.
Sp. Eruð þér trúhneigð?
Sv. Já, það er ég. Þegar ég
tala um kraftaverk í sambandi
við manninn minn meina ég
það trúarlega. Ég e_r sannfærð
um, að guð gerir kraftaverk.
Ef til vill má segja, að ég sé
forlagatrúar. Ég álít, að allt sé
fyrirfram ákveffið að vissu
marki.
Sp. Hafið þér áhuga á stjarn-
speki eins ob margar leikkon-
ur?
Sv. Ég lít á hana sem visindi,
en ég hef aldrei kynnt mér
hana nánar og ekki haft neina
liliðsjón af henni í lífi mínu.
Ég hef aldrei farið til stjarn-
spekiiðkanda eða spákonu. Ef
mín bíður eitthvert happ vil ég
heldur gleðjast yfir því óvænt
en að fá að vita það fyrir. Og
séu erfiðleikar fram undan vil
ég ekki láta áhyggjur af þeim
varpa skugga á nútíðina.
Sp. Hvar er heimili yðar
núna?
Sv. Við eigum ekkert fast
heimili sem stendur. Það eru
þrjú ár síðan við urðum að ieysa
það upp um stundarsakir, en ég
hlakka til þegar við getum aft-
ur setzt að um kyrrt einhvers
staðar. Ég get verið reglulega
húsleg þegar tækifæri gefst, þó
að ég kunni ekkert í matreiðslu.
En það er erfitt að festa rætur
nokkurs staðar, þegar maður er
á eilífum ferðalögum um heim-
inn eins og fólk í mínu starfi.
Spurning: Hvað ætlið
þér að gera þegar þér hættið
að dansa, hvenær sem það nú
verður?
S v a r : Búa með manninum
mínum, róleg og hamingjusöm,
hvar sem hann kýs helzt að
vera.
Ofnkranar,
Tengikranar.
Slöngukranar,
Blöndunartæki.
Burstafell
byggíngavöruverzlun
Réttarholtsvegi 3.
Sími 38840.
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUÐTERTUR
BRAUÐHDSIÐ
SNACK BAR
Laugavegi 126.
sími 24631.
10 14 janúar 1368 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ