Alþýðublaðið - 19.01.1968, Side 2

Alþýðublaðið - 19.01.1968, Side 2
ískorun til lýðræðislanda ■k Andreas Papandreou, fyrr veradi meölimur grísku rikis- síjórnarinnar, hélt blaðamanna fund í París í gær, þar sem .-tiann skoraði á lýðræðisöfl hrarvetna í heiminum, að hjálpa grisku þjóðinni úr þeim Is.jrmungum, sem hún nú á í, og koma á ný lýðræðíslegum stjórnarháttum í landjnu. Viðfangsefní Johnsons 1968 ★ Jolinson, Bandaríkjafor- seti, flutti í fyrrinótt ítarlega rseðu, þar sem hann fjallaði uai hclztu viðfangsefni stjórn nc sinnar 1968. Forsetinn ræddi uai Vietnam-málið og lýsti fnðarvilja sínum þar, en að öðfu leyti fjallaði ræðan mest megnís um innanrikismál. All- vjtftækar sparnaðarráðstafanir sianda nú fyrir dyrum í Banda ríkjunum. Hiutlaus Kombódía ★ U Tliant, aðalritari SÞ, fjftfur sent út áskorun til allra aðjla, sem hlut eiga í málefn- um Indó-Kina, um að vlrða I* lutlcysi Kombódíu, Beindi að aljrjtarinn orðum sinum fyrst 05 freinst til Bandaríkjanna. Ctgn afskiptum Breta ★ Flokkar æsts fólks, sem ir.ótmæla vildi því að Bretar bitfnduðu sér í stríðið milll -Mágeríu og Biafra, kveiktu i aUmörgum bygglngum í elgu Breta í Port Harcourt í gær. Kjarnorkuvopn bönnuð? ★ Bandaríkjamenn og Rúss- ar. birtu í gær sameiginlegt frumvarp 151 samþykktar um bann við frekari smíði kjarn- orkuvopna. Samningaviðræður tvii ár. Útgöngubann á Gaza ★ Ssraelsmenn hafa fyrir- skHpað útgöngubann á Gaza- svæðinu allan sólarhringinn. Gildir það aðeins fyrir hina 200.000 Araba, sem búa þar. Dýrt stríð ■k Fregn'ir frá Wasington segja, að Vietnam stríðið muni kosta bandaríska skattgreið- endur 70 millj. dollara á dag árið 1968. Viðræður Browns og Brandts * Georg Brown, utanríkis rátfherra Breta fer tjl Bonn í dag og ræöfr þar við kollega sinn, Willy Brandt, um mögu- leika Breta á að komast inn ■í EBE og hverja hjálp Þjóð- verjar geta veitt í því máli. MORD í REYKJAVÍK Staðurinn sem bílinn fannst. vita að -hryllilegt morð hefði verið framið. Ingólfur Þor- steinsson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn stjórnar rannsókn rnáls- ins. Tjáði hann fréttamannj að þegar að hafi verið komið hafi gatan verið fljótandi í vatni og ís og vettvang ur því næsta órannsakanleg ur. Rannsakað var hvort eitt hvað fyndist liggjandi sem gefið gæti upplýsingar en ekk ert slíkt mun hafa fundizt. Bifreiðin stóð í hjólförum í ísnum á götunni. Bifreiðin var sett í hús og þurrkuð til þess að unnt væri að fram kvæma fingrafararannsókn í henni. Hins vegar hafði rignt svo mikið að engin för var hægt að finna utan á bifreið inni. Ekki er ljóst hve lengi hif reiðin var búin að standa við Laugalækinn. Eins og áður segir þá barst ekki tilkynning til lögreglunnar um að eitt hvað væri athugavert við hif reiðina fyrr en klukkan 7.15. Síðdegis í gær kom hins vegar í Ijós, að leigubflstjóri hjá Bæjarleiðum tók eftir bifreið innl á morðstaðnurp klukkan um 6.15. Síðast er vitað til að Gunn ar heitinn hafi tekið við far þega um lclukkan hálf fjögur, var hann sendur frá stöð milli klukkan 3.15 og 3.30. Var bíll ■pantaður að Skálholtsstíg 7. Búlð er að yfirheyra manninn, sem tók bílinn þá. íegir hann að hann hafi látið aka sér rak leiðis heim og ‘hafi hann greitt ökugjald, sem hafi verið inn an við 100 krónur. Hann hafi yfirgefið hílinn rétt fyrir klukkan fjögur. Hefur eigin kona farþegans staðfest, að hann hafi komið heim ná kvæmlega á þeim tíma. Starfshróðir Gunnars heit ins staðfestir, að hann hafi séð Gunnar við svo nefndan „Laugarnesstaur" á Sund laugavegi rétt um klukkan fjögur en fimm mínútum síð ar hafi hann verið horfinn. Þegar Gunnar fannst inni vlð Laugalæk, sýndi gjaldmæl ir 87 krónur, en það mun jafn gilda 560 króna ökugjaldi. Ekki mun fullkomlega Ijóst hve íengi gjaldmælirinn hefur gengið, en sérfræðingur tel ur, að það gæti verið nærri þremur tímum. Gjaldmælirinn gengur alveg þangað til Gunn ar finnst. i vasa Gunnars var veski með 1500 krónum, tékkhefti Og öðrum persónulegum hlut um. Ingólfur Þorsteinsson tjáðj fréttamanni, að talið væri, að Gunnar hafi verið. með annað veski á sér, sér stakt viðskiptaveski og væru því mjög miklar líkur til, að hér hafi verið um ránmorð að, ræða. Þá kvað Ingólfur, að óaðgengilegt hafi yerið fyrir morðingjann, að ná veskinu sem eftir var. Skothylki fannst 1 bifreið inni og gefur til kynna, að við morðið hafi verið notuð sjáifvirk skammbyssa, og skot- af stærðinni 32 kalíber eins og áður segir. Hins vegar cr ekki Ijóst hverrar tegundar skamm byssan hefur verið. Ingólfur tjáði fréttamanni að enginn hefði yerið með leyfi fyrir skammbyssum fyrir þessa stærð skota. Aðeins lögreglum. hefðu leyfi fyrir skammbyssum yfirleitt og væru þær fyrir minni skot. Hins vegar sagði Ingólfur að vitað væri til þess að menn hafi smyglað ólögleg um skammbyssum inn í landið. Krufning gefur ekki tiL kynna nákvæmlega hvenær dauða Gunnars bar að. Þegar á Slysavarðstofuna kom hafði líkamshitinn ekki lækkað meira en um eitt stig. En þrátt fyrir það er ekki auð velt að dæma nákvæmlega um hvenær morðið var framið. Þórarinn Sveinsson læknir sem framkvæmdi réttarkrufn ingu telur að skotið hafi vald ið bráðum hana og Gunnar hafi látizt samstundis. Meginliluti starfsliðs rann- sóknarlögreglunnar vann í gær að rannsókn þessa óhugnanlega morðmáls. Var spurzt fyrir í húsum í nágrenni við morð- staðinn um það, hvort nokkur hafi orðið var við grunsamleg ar mannaferðir í gærmorgun eða gefið upplýsingar, sem gætu leitt til niðurstöðu í málinu. í gærkvöldi var ráðgert að hafa samband við alla leigubílstjóra sem óku í fyrrinótt ef einliver þeirra kynnj að geta gefið ein hverja vísbendinu um morðingj ann. . Rannsóknarlögreglan biður alla þá, sém nokkrar upplýsing ar gætu gefið um málið eða liafa orðið varir við einhvern mann í nágrenni við morðstaðinn á tímabilinu frá klukkan fjögur til klukkan sjö að láta lögregl- una vita. Sérstaklega eru ieigu bílstjórar, sem kynnu að hafa tekið upp mann einhvers stað ar í bænum á áðurgreindu tímabili, beðnir um að gefn lög reglunni upplýsingar. Séð inn í morðbílimi. Fram á þetta stýri lá Gunnar, er hann fannst í gærmorgun. g 19. janúar 1968 - ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.