Alþýðublaðið - 19.01.1968, Side 4
^mYÐiBMÐIÐ
JUtstjóri:. Bcnedikt Gröndal. Símar: 14900 — 14903. — Auglýsingasími: 14906
— ACsetur: AJþýOuhúsið við Hverfisgötu, Beykjavífc. — Prentsmiðja Alþýðu-
tolaösins, Sími 14905. — Ásfcriítargjald kr. 120,00. — í lausasölu kr. 7,00 eintakið.
— Útgefandi: Alþýðuflokkurinu,
HVAR ERU ÚRRÆÐIN?
AUGLJÓST er af skráningu
atvinnuleysingja, að um þessar
mundir skortir allmikið á fulla
atvinnu. Að vísu er fyrri hluti
janúarmá'naðar ávallt með dauf-
asta móti, hvað vinnu snertir,
meðan vetranvertíð er ekki kom-
in í fullan gang. Þaæ hefur bætzt
við óvenju umhleypingasöm tíð
og þýðir ekki fyrir stjórnarand-
stöðuna að balda fram, að það
hafi ekki áhrif á atvinnu í land-
inu.
Tíminn og Þjóðviljinn kenna að
sjálfsögðu stjórnarstefnunni um
atvinnuskortinn eins og allt ann
að, sem aflaga fer, þótt ljóst hafi
verið frá uppbafi núverandi
stjórnarsamstarfs, að lögð yrði á-
herzla á næga atvinnu.
í þessu sambandi má spyrja,
hver séu úrræði stjórnarandstæð
inga, hvaða leiðir þeir kunni, sem
ríkisstjórnin hafi ekki farið. Fer
þá 'að vanda, að þeir ryðja úr sér
fögrum orðum, sem hafa lítið sem
ékkert raunhæft gildi.
Þjóðviljinn sagði til dæmis í
gær að í staðinn fyrir stefnu ríkis
stjóraarinnar þurfi að koma
„markviss stuðningur við íslenzka
atvinnuvegi...” Þetta hljómar
sannarlega vel, en hveraig hafa
stjórnarandstæðingar brugðizt
við, þegar stjórnin hefur á einn
eða annan hátt stutt helztu at-
rvinnuvegi okkar? Er ekki upp-
bygging síldairflotans, síldarverk
smiðja, skipasmíðaiðnaðar, aukn
ing fiskvinnslustöðva, allt stuðn-
ingur við atvinnuvegi þjóðarinn
ar Hvað hefur stjórnarandstað-
an gert til að halda togaraflotan-
urn í betra lagi? Hleypt honum
inn í landhelgina? Ekki virðast
andstæðingar vera sammála um
það. Aukið styrki til hans með
nokkur hundruð milljónum
króna, sem taka yrði af almenn-
ingi?
Þegar Þjóðviljinn. talar um „ís-
Ienzka“ atvinnuvegi er hann að
sneiða að ríkisstjórninni fyrir
kísilgúrverksmiðjuna við Mývatu
og álverið við Straumsvík. En
væri meira um atvinnu í landinu,
ef þessar framkvæmdir væru
ekki á döfinni? Væri ekki ein-
mitt mun meira atvinnuleysi í
landinu, ef farið hefði verið eftir
stefnu Þjóðviljans fyrir nokkrum
árum, þegar þessar stóriðjufram
kvæmdir voru ákveðnar og virkj
un í samræmi við það?
Það er lítill vandi að rífa niður
með skrifum sínum. Það er meiri
vandi að bafa raunhæfar tillög-
ur fram að færa, þegar vanda ber
að höndum. íslendingair hafa
lengi kynnzt misjöfnu árferði
og jafnan staðið af sér erfiðu ár-
in. Svo mun verða enn, en ekki
verður það í krafti úrræða, sem
stjómarandstaðan benti á. Þau er
engin að finna.
STRESS
CETUIÍ barn liðið af þeirri teg-
und tilfinningaálags, sem á er-
lendum málum nefnist ,,stress“?
Fyrirfinnst ekki slíkt yfirálag
einvörðungu meðal önnum kaf-
inna kaupsýslumanna og ann-
arra þeirra státta, er stöðugt
eiga við margiþætt og álagsfrek
störf að etja? Nei, þaff er mik
ill misskilningur. Jafnvel börn
geta beðið heilsutjón af þessari
tegund tilfinningaálags.
Við komum þá strax að þeirri
spurningu, hvað átt sé við með
orffinu „stress". Ekki er óal-
genglfc, að þessu fyrirbæri sé
ruglað saman við venjulega of-
þreytu, sem flestir kannast við,
ef þeir hafa einhvern tima unn-
ið meira en starfsorkan hefur
leyft. Það er hins vegar allt of
einföld og beinlínis röng skil-
greining. Við getum unnið bæði
mikið og lengi og orðið mjög
þreytt, án þess að nokkur
minnsti vottur um stress geri
vart við sig.
STRESS er með öðrum orðum
ekki fyrst og fremst þreyta eft-
ir of mikið vinnuálag, heldur
viss tegund af óbeit, — sérstakt
tilfinningaálag, er leiðir af sér
alvarlegan kvíða eða jafnvel
miskunnarlausa sálarangist.
Við skulum taka dæmi til
skýringar:
Einhver hefur alltof miklum
störfum að gegna og verður
þreyttur, en þarf þó ekki endi-
Jega að þjást af stressi fyrir þ&
sök. En þegar hann fer að kvíða
því, að honum takist ekki að
inna störf sín af hendi, að
strangur yfirboðari fari að sker-
ast í lelkinn, að eiginkonan og
börnin hætti að sætta sig við,
að hann sjáist aldrei heima, eða
konan fer að kvíða því stööugt,
að henni takist ekki að hafa mat-
inn handa mauninum tilbúinn á
réttum tíma, — eða með öðrum
orðum, þegar óttinn við eigið
dugleysi fer að naga sig inn í
tilfinningalífið, þá fyrst fer
stress að gera vart við sig. Þessi
ótti skapar óbeit, sem orðið get-
ur að nagandi angist. Angistin
getur síðan birzt í ýmsum mynd-
um huglægra truflana t.d. í ein
beitingarerfiðleikum, skorti á að-
lögunargetu og ekki sízt í mjög
vanstilltu dagfari. Ennfremur
getur hún orsakað líkamlegar
truflanir og veilur, svo sem
MMM£
magasjúkdóma, meltingartrufl-
ann-, hægðatregðu, höfuðverk og
hjartveiki, svo ,nð dæmi séu
nefnd.
ER NÚ sennilegt að börn geti
orðið íyrir barðinu á slíku til-
finningaálagi? Já, það er fullvíst.
Börn og fullorðnir eiga það sam-
eiginlegt, að tilfinningalíf beggja
og atferli er í nánum tengslum
við afstöðu og viðhorf til ann-
arra manna, — hvaða skoðanir
þeir hafa á okkur og hvers kon-
ar hug þeir bera til okkar. Kvíði
hinna fullorðnu varðandi tiltrú
og traust yfirboðarans svarar til
þeirra liugmynda, sem barnið
gcrir sér t. d. um afstöðu for-
eldranna til þess. Sá fullorðni
óttast að falla í áliti yfirmanns-
ins, að missa atvinnu sína. Barn-
ið kann að þjást af þeim nag-
andi ótta, að foreldrunum þyki
ekki vænt um það og jafnvel að
svo kunni að fara, að það fái
kannski ekki að dvelja hjá þeim.
Hjá báðum verða afleiðingarnar
þær sömu, — sjúklegt tilfinn-
ingaástand, lamandi vanmáttar-
kennd sprottin af stöðugum ótla
Framhald á 11. síðu.
ENN EITT: Norska blaðið „Fisk
aren“ sagSi frá því í síðustu
viku, að kuldarnir, sem geys
að hafi í Evróipu undanfarið,
hafi dregið úr sölu á fiski.
★
FÆREYIVGAR gátu á síðasta
ári aukið útflutnin/r sinn á
sáltfiski um 7.000 lestir upp í
29.000 lestir samtals. . . Þetta
færði þeim tekiuaufctt frá 57
milljónum dansfcra króna í 76
milljónir.
★
HÉR ER það síðasta, sem við
höfum heyrt um forsetakosning
ar: Flestir eða allir leiðtogar
S| i á 1 fstæðfe tn ^kkci ns ætla að
skrifa undir áskorunarlista á
Gunnar Thoroddsen. . . Hann
mun þó hvorki vilja, að flokk
ar taki formlega afstöðu með
sár ^ða móti. . . Ýmsir spá
því í pólitíkinni, að einhver
verði í framboði gegn Gunnari,
en það er erfiðara að fá upp,
hver talinn er líklegastur.
★
TEKJUR vegasjóðs, sem stend
ur undir mestallri vegagerö í
landinu, verða of litlar eftir
gengisbreytingarnar, ef ekki á
að draga úr framkvæmduni,
sem. sízt kemur til mála á því
sviði . , . Má búast við ein
liverjum hækkunnm á benzíni
og hjólbörðum.
★
UIVI þessar mundir eru nýir eig
endur að taka við útgáfu og rit
stjórn SPEGILSINS . . . Þeir
félagar Ási í Bæ og Ragnar I.ár
hafa fest kaup á blajðinu og
mun Ási verða ritstjórinn, en
Ragnar án efa leggja til teikn
ingarnar.
*■
FJÓRIR íslenzkir blaðamenn
eru um þessar mundir á ferða
lagi í Egyptalandi í boði Flug
félagsins og SAS . . Þeir eru
Emil Bjömsson, Eyjólfur Kon
ráð Jónsson, Gylfi Gröndal og
ívar Jónsson.
*
FRYSTIHÚSIN íslenzku liafa
til skamms tírna verið talin
einn nýtízkulegasti og fullkomn
asti þáttur atvinnuvega hióðar
innar . . . Nú eru þau að mestu
vandræðaböm ríkisstjórnarinn
ar og valda miklum erfiðleik
um . . . Þriðjungur þeirra mun
sæmilega stæður annar þriðj
ungur hafa miðlungsrekstur og
bjargast við sæmilegar aðstæð
ur, en síðasti þrlðjungur er á
dúndrandi hausnum og svo illa
á sig kominn að vandræðunum
veldur . . . Vandinn við að
leggja þessi liús niður er sá,
að þau eru víða kjarainn í at
vinnulífi heiiia byggua.
4 19. janúar 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ