Alþýðublaðið - 19.01.1968, Side 12
7 BAK-stur
Réttarhöld - Landkynning
AUSTUR Á RÚSSUANDX eru stundum réttarhöld, sem í
rauninni er ekki í frásögur færandi. En einhvern veginn fer
gjarnan svo að maður verður meira var við réttarhöld í því
landi en öðrum. Við hér uppi á íslandi höfum til dæmis ný-
lega handsamað mann fyrir að hræða peninga út úr fólki
með því að ota að því pístólu (líklega loftpístólu, því alvöru-
bvssa hefði verið of dýr fyrir fyrirtækið og líka hættuleg),
en varla kemst. sá maður í heimspressuna af þeim sökum.
En Rússar hafa lag á að efna til réttarhalda útaf málum
sem vekja athygli.
Staiín hafði þann sið að ákæra beztu vini sína fyrir land-
ráð og gera höfði styttri. En nú þykir það ekki fínt. Það er
annar stíll í tízku nú. í stað þess eru menn ákærðir fyrir að
smygla óhróðri um Sovétríkin tii útlanda.
Réttarhöld af þessu tæi hafa nú vakið gífurlega athygli
«m allan heim, og sumir virðast telja að Sovétríkin hafi þar
af mikla hneisu.
En þetta er allt saman gert af sniðugheitum. Rússar gera
þetta í landkynningarskyni. Þeir eru meistarar í öllu svo-
leiðis.
Öll lönd reka landkynningarstarfsemi, senda hól um
sjálf sig út um allar jarðir. En þetta er gersamlega úrelt
starfsaðferð. Enginn maður trúir hólinu. Þetta landkynningar-
ofviðri um allan heim er vita þýðingarlaust. Áróðursplögg-
um er stungið undir stól og þau ekki lesin, því menn vita
það er verið að reyna að troða upp á þá einhverju sem þeir
kæra sig ekkert um.
Nútímaáróður er ekki fólginn í því að hæla sjálfum sér
eins og montinn fermingarstrákur, heldur er hann aðeins
það, að vekja athygli á sjálfum sér á einhvern óvæntan
hátt, bara fyrir einhvern andsk....... alveg sama hvað
er, til dæmis að ganga með hárið fyrir augunum eins og gard-
ínur fyrir gluggum (kemur sér vel, ef andlitið er ekki of
fritt), eða fara mcð pilsfaldinn lengra upp eftir lærunum en
áður þekktisv., og líka kæmi til mála að ganga með skóna á
höfðinu en liattinn á fótunum.
Þetta skiija Rússar. Þeir eru nútímamenn. Þeir vita eins
og listamenn að það er betra að fá skammir en ekkert um-
l>aff að sjá náungann í réttu ljósi
hefur aíai' mikla þýffingu í dag
legum samskiptum manna, Af
þeim orsökum ætti enginn maffur
aff nota sólgleraugu nema hann
vilji vaffa mittisdjúpan aurinn á
vegi sjálfsblekkingarinnar. '
tal sem auvitað er sama og að betra sé að vera frægur að
endemum en rlls ófrægur.
Einhver skáldmenni sem enginn þekkti tóku upp á því
að smygla óhróðri um land sitt til annarra landa. Undir
flestum kriiigumstæðum hljóta þeir menn kveðjur ekkf góðar
neins staðar sem niðra sínu eigin föðurlandi á erlendum vett-
vangi. Og raunar tók enginn maður eftir þessu, og Rúss-
landi virtist það ekki ætla að verða til tjóns.
En í Rússlandi eru snjallir áróðurspostular, einhverjir
þeir snjöllustu á jörðu hér. Og þeir urðu harla glaðir er þeir
sáu sovét-níð rithöfundanna. Slíkt tækifæri mátti ekki láta
ónotað. Það yrði að gera þessa menn að píslarvottum, svo
landið vekti umtal, — og þá yrði meiri sala í styrjuhrogn-
um og vodka á erlendum markaði, og menn gleymdu svolitla
stund USA, sem alltaf er í sviðsljósinu, af því að það er með
þennan eilífa fæting í Vietnam.
Þessu næst efndu þeir til stórkostlegra réttarhalda, og
útilokuðu áheyrendur svo menn yrðu enn reiðari og smygl-
uðu enn meira af sovét-níði úr landi.
Nú eru menn að velta því fyrir sér hver muni koma
næst. Og auðvitað kemur einhver næst. Úr því búið er að
dæma stráklingana, þá gengur ekki að hafa réttarhalda-
laust nema stuttan tíma. Það væri engu betra en heyleysi
í íslenzkum sveitum til forna.
Menn liér á Vesturlöndum halda að Litvinov verði
næstur kallaður fyrir rétt út af sovét-níði. En það er mis-
skilningur, sýnir algeran skilningsskort á hinum útspekúler-
uðu vinnubrögðum Rússa.
Hvernig var þetta hjá þeim áður? Væri ekki fróð-
legt að athuga það.
Fyrst dæmdi Stalin menn af lífi og æru. Síðan var
Stalin (for)dæmdur.
Haldið þið að það hafi verið af einhverri heimsku?
Nei, ekki aldeilis, góðir hálsar. Rússar gera sko ekk-
ert af lieimsku. Þetta var bara landkynning.
Þá sér maður greinilega að þeir menn sem stóðu fyrir
að dæma rithöfundana verða næst dregnir fyrir rétt. Og
ákæran liggur á borðinu. Hún cr sú að þeir hafi — með
því að kæra og dæma ómerk skáldmenni fyrir skrif sem
enginn tók eftir — sjálfir borið alla ábyrgð á því að þetta
margumrædda sovét-níð varð kunnugt um heim allan, og
séu þeir því í rauninni miklu sekari en skáldin.
Og þannig er hægt að halda áfram í það endalausa,
að kæra þá sem áður kærðu........
Með þessu eru Rússar búnir að útbúa sér eins konar
perpetuum mobile í áróðrj og landkynningu.
Götu-Gvendur.
Flest er nú orðið undarlegt og
skrýtiff á þessum síffustu og
verstu tíiuium. Meira aff segp.ja in
flúensan er fariu aff haga sér
undarlega.
Kellingin fór á útsölu í gær og
kom heim meff fullt af djönki.
Kallinn fór strax aff rífast og
þegar hann spurffi kellinguna
hvenær hún sæi hann gera svona
hluti svaraði hún: Ég veit heldur
ekki til aff Ríkiff hafi nokkurn
tíma útsölur. Sá varff spældur.
í gamla daga urffu íslcnzkir rit
höfundar að skrifa á dönsku til
þess aff verffa frægir og fá verff
Iaun. Nú væri réttast hjá þeint
aff fara aff skrifa á sænsku.
SIÚR-ÚISAIA Á KVENSKÚM
Höfum tekið fram: fjölbreytt úrval af
hollenzkum kvenskóm
Mjög fajlegar gerðh
Sérlega hagstætt verð
SKÖVAL
Austurstræti lS, Eymundssonarkjaliéira