Alþýðublaðið - 18.05.1968, Page 7

Alþýðublaðið - 18.05.1968, Page 7
* ntstj- ÖRN EIÐSSOh il Þl R^l n n R REYKJAVÍK - KEFLAVÍK 7:7 Gott veður en lé leg knattspyrna Bæjarkeppni Reykjavíkur og Keflavíkur á fimmtudagskvöld ið lauk með jafntefli einu marki gegn einu. Bæði mörk- in voru skoruð í fyrri hálf- leiknum. Reykvíkingarnir voru fyrri til. Þeirra mark kom er nokkrar mínútur voru liðnar af leiknum. Það var Alexander Jóhannesson út- herji sem skoraði með laglegu skoti úr sendingu frá Eyleifi. Síðan jöfnuðu Keflvíkingarnir á 37. mín. Þá var það Hjörtur ísaksson v. útvörður, sem skor aði, mjög óvænt og af hreinni tilviljun. Þar var ekki um neitt skot að ræða, heldur lausa sendingu, sem mun hafa átt að vera fyrir markið. Bolt □ í fyrrakvöld voru háð und anúrslit Evrópubikarkeppn- innar í knattspyrnu. Manchest er Utd. og Real Madrid gerðu jafntefli 3;3. Áður hafði Man- ehester Utd. sigrað Real 1:0 og Englendingar fara því í úr- slit og leika við Benfica, sem vann Juventus í báðum leikj- unum 1:0. -O- Vestmannaeyingar sigruðu Ak ureyringa í knattspyrnu í íyrrakvöld 1:0. Markið skor- að Sigurður Ingi Ingólfsson. Akureyringar misnotuðu víta- spyrnu. Leikurinn var háður í Eyjum. inn snerist inn að markinu. Sigurður Dagsson hljóp upp og hugðist grípa knöttinn, en missti sjónar'af honum vegna sólarinnar, og nánast sópaði honum inn. Annars var leikurinn í heild, að undanskyldum fáeinum fyrstu mínútunum, þófkennd- Ur og næsta ónákvæmur á báða bóga. Of mikið af röng- um sendingum og misheppn- uðum skotum og illa nýttum möguleikum. Keflvíkingar voru þó öllu snarpari í síðari hálfleiknum, og hefðu átt að geta tryggt sér sigurinn, en fum og fljót- ræði framherjanna kom í veg fyrir það. Reykjavíkurliðið átti ágætan leik fyrstu mín- úturnar, en síðan dró af því jafnt og þélt. Hermann, Eyleif ur og Reynir allir stórsnjallir leikmenn, svo sem kunnugt er, nýttu ekki hæfileika sína, svo að gagni væri, þó alloft léku þeir laglega. Bergsveinn Alfonsson kom inn á fyrir Alexander, sem meiddist lítillega, og var Bergsveinn einhver duglegasti leikmaðurinn í liði Reykvík- inga, og yfirleitt á vellinum. Magnús Pétursson dæmdi leikinn, fylgdist ekki nógu vel með, sýnilega í lítilli þjálfun, og lét um of hendingu ráða dómum. EB. Ársþing ÍBR fer fram á morgun Ársþing ÍBR verður haldið 19. verður haldið sunnudaginn 19. maí í Tjarnarbúð, niðri, og hefst kl. 14.00. Þingið sitja fulltrúar frá 23 aðildarfélög- um bandalagsins og 7 sérráð- um þess, svo og fulltrúar frá íþróttasambandi íslands og sérsamböndum þess. Fyrir þingið verða m.a. lagðar til- lögur um takmörkun á útgáfu frímiða að knattspyrnuleikj- um í Reykjavík. SIÐUSTU LEIKIR Síðustu leikir Litlu bikar- keppninnar í knattspyrnu fara fram í dag. Þá leika Kópavog- ur og Hafnarfjörður í Hafnar- firði og Akranes og Keflavík á Akranesi. Leikur Akraness og Keflavíkur hefst klukkan 15.30. Verðlaunabikarinn í Litlu bikarkeppninni, sem þeir Axel Kristjánsson og Albert Guð- mundsson hafa gefið, verður afhentur á Akranesi að leik loknum. Vormót ÍR verður háð 24 maí n,k. Fyrsta frjálsíþróttamót ársins í Reykjavík, Vor- mót ÍR fer fram á Mela- vellinum 24. maí n.k. Keppt verður í eftirtöld- um greinum: 200 m. hlaupi, 800 m. hlaupi, 2000 m. hlaupi, kúluvarpi, kringluttasti, sleggjukasti, hástökki, langstökki kvenna, 100 m. hlaupi kvenna, 60 m. hlaupi pilta (f. 1956 og 1957), og 100 m. hlaupi drengja (f. 1950 og síðar). Þátttökutilkynningar sendist Guðmundi Þórar- inssyni, þjálfara c/o Mela vellinum í síðasta lagi 21. maí. Á myndinni sézt Örn Agnarsson, UÍA, sem vafa- laust verður meðal kepp- enda í 200 m. hlaupi. Flatningsmenn Vantar vana flatningsmenn strax. Mikil vinna. HJALLANES H.F. Hafnargötu, Kópavogi. — Sími 40760. Sumarbúbir ÞjóBkirkjunnar Byrjað verður að taka á móti umsóknum um dvöl í sumarbúðum þjóðkirkjunnar mánudag inn 20. maí n.k. kl. 9, f.h. á skrifstofu æskulýðs fulltrúa þjóðkirkju’nnar, Biskupsstofu, Klapp- arstíg 27. Hálfsmánaðar dvalarflokkar fyrir börn á ald- rinum 9-12 ára, frá 20. júní til ágústloka. Æskulýðsstarf þjóðkirkjunnar. Bifreiðar til sölu Á bifreiðaverkstæði lögreglunnar, Síðumúla 16, eru tvær bifreiðar til sýnis og ^ölu, Chevro let 1963, sendibifreið, og Land-Rover 1963. Tilboð óskast send fyrir 24. þ.m. á bifreiðaverk stæðið til Skúla Sveinssonar, aðalvarðstjóra, sem gefur allar upplýsingar. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 17. maí 1968. Royalcote veggklæðning Royalcote er tilbúin til uppsetningar, fullfrágeng- in í plötum 244x122 cm. í hnotu, eik marmara og pekan. Royalcto er falleg og end- ingargóð veggklæðning. Lumberpanel Stærðir 270 og 250 cm. á lengd og 30 og 20 cm. á breidd. Margar viðarteg- undir. Sumberpanel viðarþiljur eru löngu kunnar um land allt fyrir íiagstætt verð og frábær gæði. PÁLL ÞORGEIRSSON & CO. 18- maí 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.