Alþýðublaðið - 18.05.1968, Page 12
4
ÆIÍKVÆM
10MHO)
Með hliðsjón af kynnum mín-
um af karlmönnum álít ég að
Eva hafi alls ekki tælt Adam
til að eta eplið, heldur öfugt.
30. sýning á íslðndsklukkunni
Annað kvöld, laugardaginn 18.
maí, verður íslandsklukkan
sýnd í 30. sinn í Þjóðleikhús-
inu. Aðsókn að leiknum hefur
verið ágæt og enn virðast vin-
sældir íslandsklukkunnar vera
jafn miklar. — Nú eru aðeins
eftir örfáar sýningar á leiknum
að þessu sinni, þar sem flestir
leikarar Þjóðleikhússins fara í
leikför til Norðurlands í byrjun
næsta mánaðar. Myndin er af
Rúrik Haraldssyni og Sigríði Þor-
valdsdóttur í hlutverkum sín-
um.
Flestir þeir er starfa sinna
vegna þurfa að gista Vestmanna
eyjar þurfa þess vegna hins
myndarlega sjávarútvegs sem
þar hefir farið og fer fram.
MOGGI
Svaka spældi ég eina píu á
balli um daginn. Viltu dansa?
spurði ég. Já takk, svaraði liún.
Dansaðu þá, sagði ég.
Ég var að brjóta heilann um
það í gær, hvor.t öll þessi um-
ferðarhöft og viðgerðir á göt
unum væru framkvæmd til að
fólkið fagnaði H-umferðinni,
og þeir sem væru á móti henni
einnig. Það verður néfnilega
ekki fyrr en á H-degi sem við-
gerðunum lýkur og greiðfært
verður um bæinn á ný.
I.OFTÞETTAR UMBLOIR
VINSÆLASTÁ PÍPUTÓBAK
í AMERÍKU.
Albert
REYKTÓBAK.
dagíegi BAlístur
Um pilsðmenninguna o.fl.
ÝMISLEGT er komið merkilegt í tízkunnf (sera er jú eitt
af merkilegustu menningarfyrirbærum heimsins). Það er til
dæmis algengt að ungar stúlkur noti hárið á sér til að hengja
það eins og gardínur fyrir andlitið, þannig að ekkert sézt
nema annað auga eða svo. Þetta ,er afar hentugt, einkanlega
ef andlitið skyldi nú vera þannig að það væri þeim mun feg-
urra sem minna sæist af því, og verður ekki komizt hjá að
hæla tízkufrömuðum fyrir að finna upp svo haganlega tízku.
Eins er inú ýmislegt nýtt að heyra af pilsa-menningunni.
Gallinn við stuttu pilsin var nefnilega sá að ekki allar konur
hafa fallega fætur, og þeim mun meira sem sézt af ljótum
fótum þeim mun ferlegri verða þeir.
Á kvenréttindaöld verður það að teljast til sjálfsagðra mann
réttinda að mega vera hjólbeinóttur án þess að það sé auglýst
í hvert skipti sem út á götu er komið, og fyrir Iþví var gripið
til 'þess örþrifaráðs að láta bæði síð og stutt pils vera í tízku.
Að vísu ber að taka tillit til þess að stutt pils sýna ekki bara
fæturna heldur og ýmislegt fleira ef vel er að gáð, og gæti kon
um þótt verra að missa algerlega af þeim sjóbissniss.
'En við flestu leru ráð ef viljinn er fyrir hendi. Tízkufröm.
uðir eru allra manna hugkvæmastir á að finna upp nýja hluti,
einkanlega þó að segja að það sem áður þótti ljótt sé fallegt,
og það sem áður þótti óviðurkvæmilegt sé í rauninni mjög
svo vel við eigandi. Þess vegna benda sterkar líkur til þess að
næst verði stutt pils í tízku, en þau verki ekki þannig stutt
að þau nái stutt niður, heldur stutt upp, t. d. ekki nema upp
á mitt læri eða svo. Þarf ekki að efa vinsældir slíkra pilsa.
Um skótau kvenna er nú minna að segja en oft áður, nema
auðvitað eru skór fyrst og fremst sýningargripir, en ekki til
þess að setja fæturna í þá. Það að skór ieigi að vera fyrir
fætur er aukaatriði, aðalatriðið er að þeir veki athygli, og
eins og allir vita er þrauta lendingin að ef eitthvað vantar í
efsta hluta líkamans, þ. e. höfuðið, þá skuli reynt að draga
athyglina frá því, það er heilabúinu, og leiða hana niður í
skóna.
Á hinn bóginn 'er það á móti starfsemi dýraverndarfélags
ins að skylda konur til að ganga á skóm sem alls ekki eru
búnir til fyrir fætur, nema þá kannski á kóngulóm og fiski-
flugum. Og til þess að sameina þetta tvennt er aðeins eitt
ráð, að leyfa konum að ganga á gúmískóm eða jafnvel vað-
stígvélum, líka í samkvæmi, en fínu skóna hafi þær bara
með sér þannig eru þeir til sýnds líka, og það var meiningin
með þeim. — GÖTU-GVENDUR.
Sá spaki
Haltu náunganum alltaf úr
kallfæri við þig því annars
kemur að því að hann biður
þig að lána sér peninga.