Alþýðublaðið - 18.05.1968, Page 1
ÚTVÁRPSVIKAN
79.-26. maí
TÓNSKÁLD
MÁNAÐARINS
TÓNSKÁLD MAÍ.MÁNAÐAR
er Árni Björnsson. Hann er
fæddur 23. desember 1905,
jólabarn foreldra sinna, að
Lóni í Kelduhverfi. Hann byrj
aði ungur að stjórna kórum
nyrðra og leika á orgel. Til
Reykjavíkur kom hann 1928,
settist í Tónlistarskólann 1930
og útskrifaðist þaðan sem pí-
anóleikari árið 1935. Næstu ár
lagði hann jöfnum höndum
stund á píanó- og flautuleik og
samdi auk þess nokkuð af
tónverkum, en á því byrjaði
hann snemma. Árið 1944 sett-
ist hann í kunnan brezkan
tónlistarskóla, Royal Manchest
er College of Music, nam þar
píanó- og flautuleik og lék í
hlómsveitum. Heim kom hann
1946 og hóf þá kennslu við
Tónlistarskólann í Reykjavík
og lék með hljómsveitum bæj
arins. — Af verkum Árna
Björnssonar má t. d. nefna
sinfóniska svítu „Upp til
fjalla" (það var ásamt svít-
unni „Á krossgötum" eftir
Karl O. Runólfsson, fyrsta
sinfóníska verkið, sem íslenzk
hljómsveit tók til meðferðar
eftir íslenzkan höfund, flutt
í marz 1940), en sú svíta verð
ur einmitt flutt í Ríkisútvarp
inu, hljóðvarpi, á fimmtudags-
kvöld; þá má nefna „Frelsis-
ljóð“ gefið út í tilefni lýðveld
ishátíðarinnar og „Forleik að
Nýársnóttinni eftir Indriða
Einarsson". Af einsöngslögum
Arna Björnssonar má nefna
„Horfinn dag“, „Rökkurljóð"
og „Vorið er komið“.