Alþýðublaðið - 09.06.1968, Side 4
Nemendur, sem luku prófi í ensku vátryggingamáli, ásamt kennara
og prófdómara. (Á mynd'ina vantar 3 nemendur og Brian Holt,
prófdómara.).
Skólauppsagni
Alþýðublaðinu hefur borízt allmargt fréttatilkynninga um slit
skóla og skólauppsagnir og er sagt frá nokkrum þeirra hér á eftirs
Tryggingarskólinn
Tryggingaskólanum var slit
ið 22. maí. Á vegum skólans
voru fluttir 9 fyrirlestrar um
þrjú mismunandi efni.
Skipuð var á vegum skólans
„orðanefnd“ til að íslenzka
erlend orð og orðasambönd,
sem notuð eru við vátrygging
ar.
Kenndar voru 2 greinar,
brunatryggingar og enskt vá-
tryggingarmál, og lauk báðum
námskeiðunum með prófi.
Kennsla í brunatryggingum
annaðist Hilmar Pálsson, full-
trúi, en enskukennsluna Þor-
steinn Egilsson, fulltrúi.
í brunatryggingum luku 14
nemendur prófi og í ensku vá-
tryggingamáli luku 10 nem-
endur prófi.
Tryggingaskólinn, sem hóf
starfsemi sína haustið 1962, er
rekinn á kostnað Sambands ísl.
tryggingafélaga og fyrst og
fremst ætlaður starfsmönnum
tryggingafélaganna.
Skólanefnd Tryggingaskól-
ans skipa Jón Rafn Guðmunds
son, formaður, Tryggvi Briem
og Þorsteinn Egilsson.
Húskæóraskóli
Reykjavíkur
Húsmæðraskóla Reykjavík-
ur var sagt upp 6. júní. í vet-
ur stunduðu 197 námsmeyjar
nám við skólann, þar af voru
40 í heimavist.
Handavinnusýning skólans
var um hvítasunnuhelgina og
var fjölsótt að vanda.
Hæstu einkunnir hlutu:
Erna .Tóna Arnórsdóttir, Kópa
vogi 9,39. 'a'$
Helga Karlsdóttir, Reykjavík
9,35.
Þórdís Pálsdóttir, Reykjavík
8,66.
Þær hlutu allar verðlaun,
fagrar sifurskeiðar með merki
skólans.
Auk þeirra hlutu verðlaun
úr „Minningarsjóði Margrétar
Þorláksdóttur" þær Hrafnhild
ur Garðarsdóttir, Reykjavík
og Hildigunnur Þorsteinsdótt-
ir, Eystri-Sólheimum, Mýrdal.
Cral Permin í Kaupmannahöfn
veitti fögur verðlaun fyrir
snilldarhandbragð í útsaumi
og hlaut þau Hólmfríður Alex
andersdóttir, Siglufirði. Vefn-
aðarverðlaun skólans fékk
Marta Ormsdóttir. Reykjavík.
Úr „Minningarsjóði Guðrúnar
Kristjánsdóttur“ eru árlega
veitt verðlaun fyrir bezta al-
hliða handavinnu og hlaut þau
að þessu sinni Guðrún Ágústa
Sigurbebtsdóttir, Hafnarf. Þá
á hlaut Sigríður Kristín Snorra
dóttir, Blönduósi, verðlaun fyr
ir framúrskarandi ástundun.
Úr „Minningarsjóði Ólafíu
Hjördísar Sverrisdóttur“ voru
tvenn verðlaun veitt fyrir hátt
prýði. Þau hlutu þær Helga
Sigurðardóttir. Keflavík, nem
andi í heimavist og Ragnheið-
ur Gunnarsdóttir, Hafnarfirði,
nemandi í dagskólanum. Við-
urkenningu fyrir umsjónar-
störf fékk Marta Jónsdóttir.
KING SIZE FILTER
I
$
Leið nútímamannsins til ekta
tóbaksbragðsins frá Ameríku
Keflavík
Gagnfræðaskólanum í Kefla-
vík var slitið hinn 31. maí sl.
Afhöfnin hófst með ræðu skóla
stjórans, Rögnvalds J. Sæ-
mundssonar. í ávarpi sínu
drap liann á það ófremdar-
ástand, sem ríkt hefur í bygg-
ingarmálum skólans og taldi
skólastjórinn ekki líkur á að
það lagist á næstunni.
I lok ræðu sinnar hvatti hann
nemendur til að hlusta á rödd
samvizkunnar og láta hana
iskera úr um breytni sína.
í skólanum voru skráðir alls
448 nemendur. Undir próf
gengu 429 nem. 118 nem. í 1.
bekk', 123 nem. í 2. bakk, 84
nem. í 3. bekk alm. deildar, 22
nem. í landsprófsdeild og 82
nemendur þreyttu gagnfræða-
próf.
Viðstaddir skólaslitin voru
all margir gamlir nemendur
skólans og færðu þeir skólan-
um gjafir.
Kvennaskólinn
Kvennaskólanum var sagt
upp laugardaginn 25. maí sl.
að viðstöddu fjölmenni.
Skólaslitaræður flutti frú
Framhald 4 12. síðu.
FRÁBÆR
ENDING
4 9- júní 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ