Alþýðublaðið - 23.06.1968, Síða 10
FRÉTTIR FRÁ S.Þ.
Eykur
k j arna vopnaeign
pólitískt vald ríkja?
Öryggi rfkja og pólitískt vald
eru teygjanleg hugtök. Til eru
lönd, sem njóta hvors tveggja
í ríkum mæli, enda þótt þau séu
ekki talin til hervelda heimsins.
Þó kjarnorkuveldin hafi stund-
um getað beitt gífurlegum efna-
hagslegum áhrifum og gífurlegu
pólitísku valdi í heimsmálun-
um, hefur það einnig átt sér
stað á seinni árum, að þau
hafa ekki haft áhrif þrátt fyrir
hið mikla magn kjarnavopna,
sem þau ráða yfir. Á sama hátt
kemur kjarnavopnaeign ekki í
veg fyrir dvínandi pólitisk á-
hrif í öllum tilvikum. Ef öflun
og varðveizla stórra birgða af
kjarnavopnum legði verulegar
tæknilegar og efnah.agslegar
byrðar á tiltekið ríki, gæti af-
leiðingin kannski orðið dvín-
andi en ekki vaxandi öryggi og
pólitísk áhrif þess á heimsmál-
in.
Hvemig verður
öryggið bezt tryggt?
Lausn vandamáls að tryggja
öryggi í heiminum liggur ekki
í fjölgun kjarnorkuvelda og
ekki heldur í því, að ríkin, sem
nú eiga kjarnavopn, haldi þeim.
Sáttmáli um að koma í veg
fyrir dreifingu kjarnavopna,
sem Sameinuðu þjóðirnar hafa
stuðlað að og hefur orðið til
við frjálsar samningsumleit-
anir, er mikilvægt skref í rétta
átt, verði honum framfyigt.
Sáttmáli um minnkun þeirra
birgða af kjamavopnum, sem
nú eru fyrir hendi, væri einn-
ig mikilvæg ráðstöfun. Öryggi
allra ríkja heimsins verður að
tryggja með almennri og al-
gerri afvopnun, sem útrýmir
öllum kjamavopnabirgðum og
leggur blátt bann við beitingu
kjarnavopna.
(Útdráttur úr bæklingnum
Kjarnavopnaógnunin, sem
byggður er á skýrslu sér-
fræðinga frá S. Þ.).
Hungurjafnvægið
tvísýnt
Þar sem allur hinn vanþróaði
heimur — þrátt fyrir met-upp-
skeru víða — leitast stöðugt við
að ná valdi á hinni erfiðu jafn-
vægislist milli fólksfjölda og
fæðu — sum svæði virðast hafa
haft minni matvæli á hvern í-
búa árið 1967 en í byrjun ára-
tugsins — þá hefur Þróunar-
áætlun Sameinuðu þjóðanna
(UNDP) lagt meira fé til land-
búnaðar en nokkurrar annarrar
atvinnugreinar, segir í árs-
skýrslu UNDP.
1967 var óvenjugott land-
búnaðarár. Uppskeran í Ind-
landi var meiri en nokkru
sinni fyrr. Landbúnaðarfram-
leiðsla Pakistans jókst um 10
prósent, og vegna betra út-
sæðis var hrísuppskeran á
Filippseyjum meiri en nokkru
sinni fyrr. Tölur frá Afríku og
Rómönsku Ameríku sýna ekki
jafnmikinn vöxt alls staðar, en
í mörgum löndum hefur upp-
skeran samt verið góð. En
þetta hefur ekki nægt. Fólks-
fjölgunin hefur verið of ör. —
Flestir íbúar vanþróuðu land-
anna búa enn við aumasta við-
urværi.
Af þvi fjármagni sem UNDP
varði til svonefndrar for-fjár-
festingar fór nálega rúm-
ur þriðjungur til landbún-
aðar. Á árinu 1967 veitti UN-
DP 47 milljónir dollara til land-
búnaðar, sem er nálega 15%
meíra en 1966 og rúmlega 50%
meira en 1965.
Fjallað verður um skýrslu
á fundi stjórnar stofnunarinn-
ar í Vín 11,—28. júní. Af
Norðurlöndum eiga sæti í
stjórninni Danmörk, Finnland
og Noregur. Það eru Samein-
uðu þjóðirnar og 12 sérstofn-
KING SIZE FILJER
i ----------------- ^
Leiö nútímamannsins til ekta
tóbaksbragðsins f rá Ameríku
anir þeirra sem vinna að verk-
efnum UNDP í vanþróuðu
löndunum.
Ný verksvið
Á liðnu ári lagði UNDP til
atlögu við alveg ný verkefni
eða jók viðleitni sína á tiltölu-
lega nýjum sviðum:
★ í landbúnaði hefur verið
lögð ríkari áherzla á áð
hefja sýniframleiðslu, —
mennta vinnukraft og koma
betra félagslegu skipulagi á
landsbyggðina. Umbótum á
landsbyggðinni hefur einnig
verið hraðað til að draga úr
flóttanum til borga og
bæja.
★ Verkefnin í iðnaðinum bein-
ast einkum að því að veita
meiri menntun og leiðbein-
ingar sem stuðla að betri
stjórn og framleiðni fyrir-
tækja.
★ Viðleitnin í skólamálum hef-
ur miðað að því aö vinna
bug á ólæsi meðal íullorð-
inna og bæta úr skortinuin
á háskólakennurum.
★ Að því er varðar fjarskipti
hefur UNDP veitt hjálp við
að færa út kvíar fjarskipta-
sambanda landa á milli.
★ Glímt er við ný verkefni í
greinum eins og flutningum,
ferðam.-þjónustu og útflutn-
ingsgreinum og svæðis-
bundnu samstarfi vanþróuðu
landanna.
Tvöföldum
nauðsynleg
Samkvæmt könnun sem for-
stjóri UNDP, Paul G. Hoffman,
hefur gert í samvinnu við hlut-
aðeigandi ríkisstjórnir og stofn-
anir, mun UNDP þurfa tals-
vert meira en tvöfalda þá upp-
hæð, sem aðildarríkin hafa
heitið fyrir 1968, til að full-
nægja brýnustu hjálparþörfum
á næstu árum. U Tliant hefur
farið þess á leit að árið 1970
verði framlögin komin upp í
350 milljónir dollara, sem er
nálega tvöföld sú upphæð sem
heitið hefur verið á þessu ári.
Afríka fékk mest
Árið 1967 lagði UNDP fram
143,5 milljónir dollara til van-
þróuðu landanna. Það var sjö
prósentum meira en 1966. Af-
ríka fékk mest — 52,5 milljón-
ir. Því næst kom Norður- og
Suður-Ameríka með 35,4, Asía
með 34,7, Evrópa með 7,6 og
Mið-Austurlönd með 9 milljón-
ónir dollara. 3,6 milljónir fóru
til alþjóðlegra verkefna.
Af útgjöldum UNDP fóru 64
prósent til sérfræðinga, 16 pró-
sent til tækja og verkfæra og
7 prósent til námsstyrkja. Um
6900 sérfræðingar frá 104
löndum störfuðu í þjónustu
UNÐP 1967. Frá Svíþjóð komu
162 þeirra, og voru Svíar tólfta
hæsta landið að þessu leyti, en
Noergur í 15. sæti með 123
sérfræðinga. Frá öðrum Norð-
urlöndum voru tölurnar sem
hér segir: Danmörk 99, Finn-
land 27 og írland 9.
10 23. júní 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
I .