Alþýðublaðið - 23.06.1968, Qupperneq 14
Um mótmæli
Framhald af 2. síffu.
hún hefur þá að minnsta kosti
alls ekki verið látin uppi, heldur
einungis þörf þeirra að apa'eftir
aðgerðir annarra.láta eins og aðr-
ir láta; hafa meira að segja ver-
ið til kvaddir „erlendir sérfræð-
ingar,” að dæmi eldri og reynd-
ari stjórnmálamanna, til að hafa
hönd í bagga með mótmælend-
um. Vitaskuld er mönnum full-
komlega heimilt að láta skoð-
anir sínar, hvernig sem á þeim
stendur, í ljós með þessum
hætti. Enginn verður sakfelldur
fyrir „ofbeldi” einungis vegna
útifunda, varðstöðu, kröfugöngu
eða annarra slíkra tilburða; það
er hins vegar nákvæmlega jafn
saknæmt að „mótmæla” Nato
með grjótkasti og barsmíðum og
það væri að „taka svari” þess
með barsmíðum og grjótkasti.
Og fróðlegt verður að sjá hvern-
ig aðgerðir þessar takast til. í
báðum herbúðum forsetaefna
eru menn þegar teknir að spá í
það, hvaða áróðursgildi hugsan-
leg upphlaup dagana fyrir kosn-
ingar gætu haft. Og aðgerðir
munu sem sagt fara fram þó þær
séu raunverulega settar á svið,
ekki sprottnar af náttúrlegri ó-
viðráðanlegri andúð, eða ekki
fyrst og fremst. Fróðlegast verð-
ur að sjá hvort mótmælendum
tekst að einhverju leyti að reisa
múg í flokk með sér, gera leik
sinn á sviðinu að alvöru, pólitísk-
um viðburði. — ÓJ.
Þýðing NATO
Framhald af 5. síðu.
að 'halda áfram aðild að sam-
tökunum með öllum atkvæðum
gegn sex, og hið sama eða svip-
að, ætla ég að verði hér, þegar
Alþingi tekur afstöðu itil máls-
ins. Upphlaup fámenns hóps til
að 'komia í veg fyrir eða torvelda
fundarhöld samtakamna breyta
Ihér engu um, jafnvel iþó að
erlendir skoðanabræður komi til
aðstoðar.
EIRRÖR
Kranar,
fittings,
einangrun o. fl. til
hita- og vatnslagna.
Bursfafell
byggingavöruverzlun
Réttarholfsvegi 3,
Sími 38840.
Sendum ókeypis
verðlista yfir
frímerki og
frímerkjavörur.
FRlMERKJAHÚSIÐ
Lækjargötu 6A Revkiavífc - Simí 11614 .
Bréfakassinn
Framhald af bls. 2.
svona lagað eða hylja með ein-
hverjum hættí.
Satt er það að ekki má líða
að drasli sé fleygt hvar sem
er, en sú ráðlegging að hylja
það, er í rauninni alls ekki
nægjanleg. í flestum tilfellum
ættu menn að hafa allt slíkt dót
á brott með sér og koma því
í einhverja raunverulega sorp-
eyðingu.
í þessu sambandi rekur mig
minni til þess er ég í fyrrasumar
mataðist í Hólahólum á Snæ-
fellsnesi. Þarna koma margir
og sannast að segja sást lítið af
rusli á yfirborði jarðar, en hvar
sem skyggnzt var undir steina
eða ofan í holur voru haugar af
rusli. Þar voru bæði hálfrotnað-
ar matarleifar og ókjör af nið-
ursuðu dósum, mjólkurhyrnum
o. fl. þess háttar. Sást þetta dót
þótt ekki væri við neinu lireyft,
og voru ryðgaðar dósir farnar
að gægjast upp úr liolunum.
Þeir, sem ferðast í einkabíl-
um, eiga undir flestum kring-
umstæðum að geta sett slíkt rusl
til bráðabirgða í plastpoka og
haft á brott með sér. — S.
Kirkja
Framhlad af 1. síðu.
Að uppgreftrinum vinna
tveir ungir menn, Sveinbjörn
Rafnsson fil. cand, í norrænni
fornleifafræði frá Lundi og
Helgi H. Jónsson, sem er enn
við nám í fornleifafræðum í
Uppsölum, en hann á að baki
þriggja ára nám í Kaupmanna
höfn. Sveinbjörn skrifaði próf
ritgerð um Vesturhafseyjar og
ísland á víkingaöld og Helgi
hefur skrifað greinar um
danska fornleifafræði.
Næstu verkefni
Ekki hefur verið ráðgert að
leita á ný mið í fornleifarann-
sóknum á næstunni — senni-
lega verður lokið við uppgröft
á Reyðarfelli við Húsafell, en
það verk er undir stjórn Þor
kels Grímssonar. Einnijj kynnu
að verða rannsökuð kuml á
Norðurlandi. Þá eru uppi ráða
gerðir um að kanna betur bæj
arstæði Ingólfs, sem álitið er
að sé í Aðalstræti og nái jafn
vel inn í Suðurgötu. Norskur
fornleifafræðingur dvaldi hér
um tíma til skrafs og ráðagerða
í þessu máli, en framhald
þeirrar rannsóknar yrði á veg
um Reykjavíkurborgar. — SJ.
íþrótta áhugi
Framhald af bls. 11.
Aðalfundur HSÞ felur stjórn
sambandsins að semja reglugerð
fyirr bikarkeppni unglingaliðs
HSÞ og leggur til að mótið verði
haldið 18. ágúst. Síðan verði
haldið mót á' Laugum 1. sept.
sem boðið sé til keppendum frá
öðrum héraðssamböndum.
Aðalfundur HSÞ leggur til að
íþr.f. Vöisung verði falið að sjá
um héraðsmót HSÞ á skíðum
veturinn 1968 — 1969. Ennfremur
leggur nefndin til að ráðamenn
Laugaskóla stuðli að eflingu
14 23. júní 1968 - ALÞÝÐUB.LAÐIÐ
skíðaíþróttarinnar meðal nem-
enda.
Eftirfarandi frjálsíþróttamót
voru ákveðin: Héraðsmót HSÞ
27.—28. júlí og unglingakeppni
HSÞ 18. ágúst.
Úr stjóm sambandsins áttu
að ganga: Óskar Ágústsson, Stef-
án Kristjánsson og Arngrímur
Geirsson og voru þeir allir end-
urkosnir. Stjórn HSÞ er þannig
skipuð:
Óskar Ágústsson, formaður.
Vilhjálmur Pálsson varaform.
Sigurður Jónsson ritari.
Arngrímur Geirsson gjaldk.
Stefán Kristjánsson meðstj.
Prestsfélag
Framhald af 3. sfðu
hefur á' engan háít staðið í veg-
inum fyrir því, að þau samtök
fengju samningsrétt, heldur rík-
isvaldið. Fái háskólamenntaðir
menn á hinn bóginn samnings-
rétt, tel ég ekkert álitamál, að
prestar eigi þar sinn samnings-
vettvang.
Að lokum legg ég áherzlu á,
að hér á landi er ekki nóg tillit
tekið til langs háskólanáms, sem
í reynd táknar styttri starfsævi.
Og gjalda verður varhug vjð,
að hafa launastigann of sam-
þjappaðan, en slíkt hefur yfir-
leitt í för með sér, að hann
verður eins og flatkaka eins og
reyndin var orðin hér fyrir
nokkrum árum.
í framhaldi af þessu langar
mig til að segja stutta sögu, sem
varpar örlitlu Ijósi á þetta at-
riði. Einu sinni kom til mín pilt-
ur um tvítugt. Tal okkar barst
m. a. að því, hvað liann hefði
upp úr sér. — Ja, það er nú ekki
mikið, sagði piltur. Þú hefur nú
samt álíka mikið í tekjur og
ég, eftir að hafa verið prestur
í nærri 40 ár, svaraði ég. Gæti
það stafað af því, að vinnutími
minn sé lengri, spyr piltur. Tæp-
lega. Því ég hef 24 tíma vakt,
svaraði ég.
Höfðinglegar
gjafir til
Rauðakross
Islands
Höfðinglegar gjafir hafa bor-
izt til Rauða krossins vegna Bi
afra-söfnunarinnar. Efíirtaldir að
iljar hafa gefið skreið: Sturlaug
ur Böðvarsson, Akranesi að and
virði 100 þús. krónur. ísfélag
Vestmannaeyja, að andvirði 50-60
þús. og Karólína Karlsdóttir gaf
skreið að andvirði 10 þús.
Ennfremur hafa borizt til skrif
stofunnar peningagjafir að and-
virði samtals 49.000 krónur. Tek
ið er á móti framlögum til söfn
unarinnar hjá Rauða krossi ís-
lands að Öldugötu 4, svo og
Rauða kross deildum um allt
land og dagblöðunum í Reykja-
Vík. (Fréttatilkynning).
I stuttu
máli
RIO de JANEIRO - Fimm létu
lifið og 150 særðust í gaer í
stórfelldum óeirðum stúdenta
og átökum við lögregluna. Orð
rómur var um, að herinn
mundi taka við stjórn í borg-
inni.
SAIGON — Vietcong hélt í
nótt uppi eldflaugarárásum
á hafnarhverfi borgarinnar og
varð nokkuð tjón á skipum.
LOS ANGELES — -Lögfræðing
urinn Russel Porsons, sem á að
verja morðingja Roberts Kenne
dys fyrir rétti, hefur fengið
margar hótanir um líflát.
Hann er undir lögregluvernd.
KAUPMANNAHÖFN — Portú-
gölsk hjón voru í gær hand-
tekin, grunuð um þátt í hinu
mikla ráni fyrir ári síðan, er
fjórir menn rændu 29 milljón
um escudos úr Landsbankan-
um í Lissabon.
HONG KONG —- 100.000 t>æ»d-
ur eru heimilislausir vegna
stórfelldra flóða í Kwantung-
fylki í Suður-Kína.
SEOUL — Suður kórcanskir
landamæraverðir felldu í gær
sjö norður kóreanska hermenn
í átökum á landamærunum.
TOKIO — Norður Kóreumenn
segjast hafa sökkt bandarísku
„njósnaskipi“ úti fyrir höfn-
inni Pukpo. Útvarpið í Pyong-
yang sagði, að öll áhöfnin hefði
farizt með skipinu, sem hefði
verið að „fjandsamlegum að-
gerðum“ í landhelgi. Pukpo er
rétt norðan við 38. breiddar-
baug á vesturströnd Kóreu.
PARÍS — Síðasta skoðanakönn
un fyrir frönsku kosningarnar
bendir til sigurs Gaullista.
Þeir hafa fengið stuðning 41%
aðspurðra, en höfðu síðast
37,7% atkvæða.
AÞENA — Georg Cavounides,
fyrrum yfinnaður blaðaskrif-
stofu grísku stjórnarinnar, hef
ur verið handiekinn af Örygg
islögreglunni.
ÓTTAR YNGVASON
héraðsdómslögmaður
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
BLÖNDUHLÍÐ 1 • SfMI 21296
Verkstæði vort
og skrifstofa verða lokuð
mánudaginn 24. júní vegna jarðarfarar Odds Hannessowar.
VOLTI S/F.
Elsku eiginmaður minn
faðir, sonur og tengdasonur
HAUKUR HAFSTEINN GUÐNASON
sem andaðist 16. þ.m. verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
þriðjudaginin 24. júní kl. 13.30.
Margrét S. Magnúsdóttir,
Þór Hauksson,
Magnús Hauksson,
Margrét Guðbrandsdóttir,
Hrefna Þórðardóttir.
Úitför : i
NÍNU TRYGGVADÓTTUR COPLEY
listmálara
f£tr fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
26. júinlí kl. 10.30 f.h.
Dr. Alfred L. Copley (L. Alcopley),
Una Dóra Copley
og systkini hinnar látnu.