Alþýðublaðið - 04.08.1968, Qupperneq 8
VART munu aðrir leikarar
hafa verið' umtalaðri í ár en
bandarískl kvikmyndaleikarinn
Rod Steiger. Ekki er það þó
vegna þess, að hann sé ung eða
upprennandi stjarna, lieldur af
því að hann hefur nú nýverið
enn einu sinni fært óvéfengjan-
legar sönnur á ágæti sitt sem
afbragðs listamaður. Kvikmynda
gagnrýnendur New York borgar
kusu hann Leikara ársins fyrir
túlkun hans á hinu erfiða hlut-
verki lögreglumannsins í kvik-
myndinni „Nóttin var heit,“ þar
sem hann lék eftirminnilega á
móti blökkumanninum vinsæla,
Sidney Poitier. TitiIIinn Leikari
ársins er næstum því jafneftir-
sóttur meðal bandarískra kvik-
myndaleikara og sjálf Oskars-
verðlaunin. Ekki dró það held-
ur úr vinsældum Steigers eða
aðdáun kvikmyndahúsagesta.
þegar hann skömmu síðar fékk
svo sjálf Óskarsverðlaunin fyr.
ir Ieik sinn í sama hlutverki!
M.ö.o.: Rod Steiger er á há-
tindi ferils síns í ár!
iSíewtán ára gamall hætiti hann
skólagöngu til þess að ganga í
'sjó'herinn, þar iseim hanin var
síðan fimm næstu árin.
Sjáifur segiist hann haf'a orðið
leikari vegna hrifni sinnar af
■stúlkum, ien um Iþað kemst hann
svo að orði:
„Þegar ég var 21 árs fékk ég
borgaralega stöðu innan sjóhers-
ins og á vinnustað mínum sitörf-
■uffu m.a. tvær stúlkur, sem ég
gaf auga svona nokkurn veginn
jafnt! En þegar ég herti mig
upp og bauð þeim út, brá alltaf
svo við, að þær voru uppíeknar.
Ástæðan var isú, að Iþær voru
önnum kaf'nar við áhugamál sitt,
sem var teiklist, og tók-u virkan
þátt í étarfi leikklúbbs nokkurs
þ-arna í nágrenninu. Nú, ég tók
mig auðvitað til og gekk í klúbb-
inn líka — til að fá betra færi
á stúlkunum! Er ekki að orð-
lengja það, að þáíittakendunum
fannsit svo til um hæfileika mína
sem leikara, að ég fylgdi þeirra
ráðum og hélt áfram í bransan-
um!“
—O—
Rod Steiger fæddist á Long
Island 14. apríl 1925 og ólst
upp í Newark, New Jersey.
Upp úr þessu innritaðist Steig
er til náms við leikhús í New
York, og komst síðan í hinn
kunna leikskóla Elia Kazans.
Steiger með dóttur sinni Önnu, átta ára. Hér er hann í hlutverki
„myndskreytta mannsins” í samnefndri kvikmynd. Takið eftir flúr
inu á höndum hans! ,
Þegar 'hann hafði lokið námi,
hlauit hann ýmis hlutverk í leik-
húsum New York-borgar, þar
sem hann vakti fljótlega tölu-
verða a.thygli.
Steiger lék í fyrstu kvikmynd.
isinni árið 1951, og nefndist hún
,.Tere=:i.“ Það var þó ekki fyrr
rn með næstu mynd, .Höfn stór-
borgarinnar." að gagnrýnendur
og áhorfendur kvikmynda tóku
fyrir alvöru eftir Rod Steiger.
Fyrir leik sinn í Iþeirri mynd
var hann útnlefndur siem mögu-
Jegur Óskars-verðlaunataki fyrir
leik í aukahlutverki árið 1954.
Fleiri kvikmyndir fylgdu 1 kjöl-
farið og iauik þp.ss kom Steiger
oft fram í sjónvarpi ihin næstu
ár.
Ó'hæfit er að telja Rod Steiger
mjög ficlhliða og hæfileikamik-
inn leikara. Hann hafði hvorki
'hlotið þjálfun í söng né dans-
list, þegar hann undirritaði samn
ing um að koma fnam í söng-
ieiknum vinsæla „Oklahoma,"
en að viku liðinni mátti hann
teljast útlærður í hvoru tveggja,
enda gerði hann hlutverki sínu
ágæt skil við hlið engra minni
iskemmtikrafta en Gordon Mac-
Rae pg Shirley Jones.
Árið 1959 kvæntist Siteiger
hinni iþekktu brezku leikkonu
Ciaire Bloom, sem fyrst gat
sér orðstír í kvikmynd Chaplins,
„Sviffsljós," en síðan hefur auk-
ið hróður sinn jafnt og þétt.
Þau höfðu kynnzt fyrst nokkr-
um árum áður, þegar þau léku
saman í leikriti á Broadway. Nú
búa þau ásamt átta ára gamalli
dóttur sinni, Anna Justin, í
Kaliforníu og New York til
skiptis. Þar sem þau þurfa mjög
að vera á faraldisfæ'ti síarfa
sinna vegna. tóku þau þann kost
að koma sér upp heimili á tveim
ur stöðum.
g 4. ágúst 1968 — ALÞYÐUBLAÐIÐ