Alþýðublaðið - 04.10.1968, Qupperneq 1
Föstudagur 4. október 1968 — 49. árg. 200. tfal
Stjórnarxneðlimir Læknafélags íslands. Frá vinst , Örn Bjamason, vararítari, Arinbjöm Kolbeins-
son, íormaður, og Stefán Bogason, gjaldkeri. Mynd ina tók Bjamleifur fyrir utan Dómus Medica i gær.
Afmælisráðstefna
um heilbrigðismál
Heilbrigðisráðstefna, haldin í tilefni af hálfrar ald-
ar afmæli Læknafélags íslands, hófst í Dómus
Medica í gær. Var í gær haldinn fræðslufundur um
liðagigt, einkum ætlaður læknum. Annar þáttur
ráðstefnunnar er heilbrigðismálaráðstefna, sem fer
fram í dag og á rnorgun og er þar fjallað um heim-
ilislækningar í dreifbýli og þéttbýli. Sjálft afmælis-
hófið fer fram á morgun.
Stjórn Læknafélags íslands
kvaddi blaðamenn á sinn fund
í gær og skýrðj þeim frá ýms
um þáttum úr sögu félagsins.
Rauverulegur afmæljsdagur fé-
lagsins var 14. janúar sl„ en
þar sem samgöngur eru erfið-
ar á þeim tíma var afmælishá-
tíðinni frestað þar til nú.
Formlega var gengið frá
stofnun Læknafélags íslands
14. janúar 1918 og vor.u 34 á
stofnfundi, en stofnendur eru
taldjð 62. Aðal hvatamaður að
stofnun félagsins var Cluð-
mundur Hannesson, síðar pró
fessor, en hann var kjörinn
fyrsti formaður félagsins. Aðr
ir í stjórnina voru kjörnir
Guðmundur Magnússon, gjald-
keri og Sæmundur Bjarnhéð
insson ritari. 5 af stofnendum
félags}ns eru nú á lífi.
Verkefni Læknafélags ís-
lands hafa frá .upphafi verið
að efla sameiningu, stéttar-
.þroska og hag félagsmanna,
koma fram fyrir þéirra hönd
gagnvart opinberum aðilum og
treysta tengsl við erlend
læknafélög. Þá er það verk-
efni félagsjns að stuðla að auk
inni menntun lækna, glæða á-
huga þeirra á öllu þvi, er lýt
ur að starfi þeirra, efla sam-
vinnu um allt, sem horfir til
heilla í heilbrjgðismálum.
Er líða tók frá stofnun
Læknafélags íslands fluttust
kjaramál úr höndum félagsins
til hinna einstöku svæðafé-
laga og aðallega til Læknafé-
lags Reykjavíkur. Eru þá und
anskiHn kjaramál héraðs-
lækna, sem alla tíð hafa ver-
ið í höndum Læknafélags ís-
lands.
Eitt mesta framtak félagsjns
til að bæta starfsaðstöðu
lækna og gefa þeim betri tæki
Frh. á 2. síðu.
Aðeins eitt sláturhús
af 62 uppfyllir banda-
rískar hreinlætiskröfur
í frétt um haustslátrun sauðf jár, sem birt er annars staðar
í þessu blaði, kemur fram að alls eru nú starfrækt 62 slátur.
hús í Iandinu, og hefur sláturliúsum fækkað mjög síðasta
áratugr. Af þessum 62 sláturhúsum eru ekki nema 17 eða
rúmleg-a fjórða hvert hús sem uppfylla þær kröfur, sem
gerðar eru til útflutnings til Bretlands, og aðeins eitt
sláturhús — sláturhúsið í Borgarnesi — uppfyllir þær kröf-
ur, sem Bandaríkjamenn gera til sláturhúsa. Meginþorri
íslenzkra sláturhúsa stenzt sem sagt ekki lágmarksheilbrigð- <
iskröfur og getur því ekki orðið um neinn útflutning að l'
ræða á því kjöti, sem þar er framleitt, þótt það þyki sjálf. |i
sagt nógu gott fyrir íslendingra.
BYLTING
ÍPERU
Bylting var gerð í Perú í gær og forseta landsins,
Ferriando Belaunde Terry, steypt af stóli. Þjóðlegt
byltingarráð undir forystu varnamálaráðherrans,
Juan Velasco Alvarado, stendur að byltingunni*
Hefur hún yfirleitt farið friðsamlega fram.
LIMA. — Forseta Perú, Fern-
ando Belaunde Terry, var steypt
af stóli í gærmorgun; forsprakki
byltingarinnar er varnarmála-
ráðherra landsins, Juan Velazco
Alvarado, sem hafa mun herinn
að baki sér. Skriðdrekar og
bryndrekar umkringdu stjórnar-
setrið tólf klukkustundum eftir
að forsetinn hafði tekið við
trúnaðareiðum sjöundu ríkis-
stjórnarinnar í landinu síðan
1963. Ný ríkisstjórn undir for-
ystu Miguel Nujica Gallo hafði
þá tekið við völdum eftir ríkis-
stjórn Oswaldo Hercelles.
Snemma í gærmorgun var for-
setinn leiddur út úr forsetahöll-
inni og ekið í jeppa til stöðva
hersins. Sagt er, að Terry forseti
hafi veitt hermönnunum viðnám
og verið í æstu skapi, þegar lion-
um var ýtt inn í bílinn. Þá er
og sagt, að andlit hans hafi ver-
ið náfölt og honum greinilega
brugðið.
Hin nýja byltingarstjórn sendi
frá sér tvær tilkynningar, er hún
hafði tekið völdin í sínar hend-
ur, en hvorug var undirrituð
nöfnum. Stúdentar í Lima veltu
bílum og kveiktu í þeim í mót-
mælaskyni, er fregnin spurðist,
jafnframt því sem þeir dreifðu
miðum með hvatningum til gagn-
Frh. á 2. síðu.
OLGAN VI
í MEXICO
Miklar óeirðir urðu í
Mexicóborg í fyrrinótt,
og féllu að minnsta kosti
tuttugu manns. Varnar-
málaráðherra landsins
hefur lýst því yfir opin-
berlega, að atburðir síð-
ustu daga muni ekki
verða til þess, að fyrir-
huguðum Ólympíuleikj-
um verði aflýst.
MEXICO CITY; Upphlaups-
menn úr hópj stúdenta fóru
með ófriðj um götur í nyrðri
'hluta Mexio-borgar í gær-
kvöldi, að því er fregnir
herma- Þeir kveiktu í bjfreið-
um og börð.ust við lögregluna
'í óeirðum, sem kostuðu all-
marga lífið. Stórir hópar stú-
denta, sem hrópuðu á hefnd,
brutust í gegnum þéttan varn
argarð lögreglumanna um 40
kílómetra frá ólympíuþorpinu
og ollu miklum spjöllum.
Herljð lét til skarar skríða
gegn æðandi og öskrandi múgi
15000 .upphlaupsmanna og
dreifði þeim með skothríð.
Nokkrir féllu og allmargir
særðust. Að kvöldi var talið,
að minnsta kosti 20 hefðu ver
ið drepnir og 75 særðir í óeirð
unum. Mest gekk á á svo-
nefndu „Torgi þriggja menn-
ingarforma“, þár sem efnt
hafði verið til fjöldafundar, er
ekkj fann náð fyrir augum
hers og lögreglu.
Ríkisstjórn Mexíkó gerði
kunnugt eftir atburði þessa,
Frh. á 2. síðu.