Alþýðublaðið - 22.10.1968, Qupperneq 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 22. október 1968
Frumvarp um
Landsbókasafn
| í efri deild Alþingis voru í gær
Hvö mál á dagskrá, frv. til laga
um tollskrá o.fl.,sem er stjórnar-
frumvarp og frv. til laga um vöru
; merki.
Fjármálaráðherra, Magnús
Jónsson, gerði grein fyrir frum-
varpinu, og kvað hann ekki vera
um efnisbreytingar að ræða held-
ur væri með þessu frv. ætlunin
• að samræma íslenzku tollskrá'na
þeim breytingum, sem gerðar
-hafa verið á Brtisseltollskránni
: frá því árið 1959.
’ Annað málið á dagskrá efri
' deildar frv. til laga um breyting-
; á vörumerkjalögunum, og er það
flutt til staðfestingar á bráða-
i birgðalögum frá 28. maí í vor.
Var báðum þessum frv. vísað
til annarrar umræðu og nefnda.
í neðri deild voru fjögur mál
á dagskrá. Voru það allt stjórnar
1 frv.
Lög úm hollustuhætti og heil-
• brigðiseftirlit, er heilbrigðismála-
ráðherra Jóhann Hafstein reif-
aði, en frv. þetta er endurflutt.
Kvaðst hann vona að frv. þetta
mundi ná fram að ganga á þessu
þingi, og heilbrigðis- og félags-
málanefnd mundi af röskleik af-
• greiða Það.
Þá kom til 1. umræðu frv.
um Landsbókasafn, og fylgdi
menntamálaráðherra Gylfi Þ.
Gíslason því úr hlaði. Sagði
hann, að á sl. vori hefði hann
falið forstöðumönnum Lands-
bókasafnsins, Listasafns og Hand
ritastofnunar hverjum um sig að
athuga um endurskoðun löggjaf-
ar um stofnun sína í samstarfi
við ráðuneytisstjóra mennta-
málaráðuneytisins. Sagði ráð-
herra, að þótt undarlegt' mætti
virðast væru t.d. ekki til lög um
Klukkan rúmlega tvö á sunnu
tjagsnóitona varó Umferöarslys
á Sóleyjargötu á móts við liljóm
skálann. Bílalelgubíll frá Kefla
vík var þar ekið upp á gang
stétt cg Icnti hann á Ijósastaur.
Farþeg: í bílnum, ung stúlka.
slasaffist talsvert mlkið á höfði
viff áreksturinn. Sömuleiðis
sk-rrst ökumaðurinn talsvert á
l’T-'.f-’r. Ökumaðurinn var ölv
affur aff Því er talið er.
Slysið varð með þeim hœtíi,
að bílaleigubíllrnn, sem er
Þjóðminjasafnið og Þjóðskjala-
safnið grundvallaðist á lögum
frá 1915. Lagasetning um hin
söfnin væri mun yngri; hefur
t.d. lög um Landsbókasafnið ver-
ið sett 1949 og væru þau vel
gerð.
Hins vegar væri sá’ galli á
þeim lögum, að skv. þeim var
tala bókavarða takmörkuð við
6, en í reynd væru þeir 7. Þyrfti
að breyta þessu þannig, að ’hinn
7. gæti fengið skipun til starfs-
ins.
Ráðherrann ræddi síðan nokk-
uð um sameiningu Landsbóka-
safns og Háskólabókasafns, sem
árið 1957 hefði með þingsálykt-
un verið ákveðið að sameina.
Skyiyrði þess væru þau, að hús
yrði reist' til þeirra nota. Ráð-
herran kvaðst vera hlynntur
þeirri hugmynd, sem komið hefði
fram um að minnast 1100 ára afm.
ísland ibyggðar með veglegri
byggingú bókasafnshúss. Ráðherr
ann kvað þá nýskipan verða á
málum safnsins, að þær bækur,
sem lítið væru notaðar yrðu
fluttar í annað húsnæði og mundi
þá rýmast nokkuð, einnig mundi
gott pláss losna, er Handrita-
stofnunin flytti á hausti kom-
anda. Hann tók fram, að ekki
væri ætlunin að flytja handrit
Landsbókasafnsins i Árnagarð,
þar sem þau væru eign safnsins.
Að lokum kvaðst' ráðherrann
vonast til, að unnt yrði að koma
á fót skráningarmiðstöð, og það
ekki aðeins vegna aðalsafnanna
heldur einnig vegna ýmissa sér-
bókasafna, sem til væru og það
allfullkomin.
Þá kvaddi sér hljóðs Magnús
Kjartansson (Ab) Kvað hann
frumvarp þetta valda sér von-
isuður Fríkiirkjuvcginn og áfram
suður Sóleyjargötu. Þar sem
Sóleyjargatan tekur við iaf Frí
•kirkjuveginum er lítil beygja.
Þarna á beygjunni virðisfc öku
maðurinn hafa rnisst stjóm á
'bílnum. Lenti bílinn uppi á gang
stétt og hafnaði lþar á ljósastaur.
í bflunum voru auk ökumanns
,tvær ungar stúlkur. Önnur
Iþeirra slasaðisí talsvert alvar-
légá ’á höfði. Ökmiaðurinn skarst
einnig á höfði. Hin stúlkan slapp
að mestu ómeidd. Eins og áð
af ur segir virtist maðurinn vera
leið undir áhrifum áfengis.
brigðum að því leyti, að ekki
væru í því nein áform um bygg-
ingu nýs húss, sem aðalbóka-
safns landsins. Þyrfti meira til
en góðan vilja. Hann kvaðst sam-
mála því, að ekki yrði 1100 ára
afmælis íslandsbyggðar betur
minnst en með slíkri byggingu.
Loks beindi hann þeirri fyrir-
spurn til ráðherra, hvort það
mál hefði ekki verið rætt innan
ríkisstjómarinnar og um fjár-
veitingar í því sambandi.
Menntamálaráðherra svaraði
því til, að vissulega hefði málið
verið rætt' innan ríkisstjórnar-
innar, og eðlilegt mætti teljast,
að hún hefði frumkvæði í slíku
málí, en endanleg ákvörðun væri
þó þingsins.
Þriðja mál í neðri deild var
frv. til iaga um Handritastofnun
íslands. Menntamálaráðherra
gerði grein fyrir því. Hann
sagði að iög um Handritastofnun-
ina væru að vísu síðan 1962, og
því ekki tiltakanlega úrelt, en
þó væri einnig í þeim tala að-
stoðarmanna forstöðumanns tak-
mörkuð við 3. Af þeim sökum
hefði aðeins verið hægt að hafa
lausráðinn starfsmann, en nauð-
syn bæri til að fastráða hann.
Þessum frv. var síðan báðum
vísað til 2. umræðu og mennta-
málanefndar.
Loks mælti samgöngumálaráð-
herra Ingólfur Jónsson fyrir frv.
um breytingu á logum um ferða-
mál nr. 29/1964. Nú hefði feng-
ist reynsla af framkvæmd þeirra
laga og væri því frv. þetta á’
þeirri reynslu byggt. Eru 1 því
m.a. ákvæði um menntun for-
stjóra ferðaskrifstofa, bókhald
o.fl. Var frv. vísað til 2. umr.
og nefndar.
Jón Þ.
Framhald af 12. síðu.
en íslandsmetið, sem hún á
sjálf. Leknir Jónsson tók
einnig þátt í 100 m. bringu-
sundi, undanrásum, tími hans
var slakur, 1 mínúta og 16,3
sekúndur, sem er allmiklu lak-
ara metið, sem hann á sjálf
ur. Leiknir varð 35. af 39 kepp
endum í 100 m. bringusundi
karla.
Fyrsta dag sundkeppninnar
tók Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir þátt í 100 m. skriðsundí,
undánrásum, hún synti á 1
mín. og 6,3 sek. og varð 43.
í röðinni af 57 keppendum.
Guðmundur Gíslason tók þátt
í sömu grein karla, synti á
58,6 sek. og varð 55. af 65 kepp
endum.
Valbimi Þorlákssyni gekk
illa í tugþrautinni. Eins og
skýrt hefúr verið frá hljóp
hann 100 m. á 11,1 sek. stökk
6,76 m. í langstökki, hann varp
aði kúlunni 12,70 metra. Val-
björn stökk aðeins 1,70 m. í
hástökki og ekki nóg með það,
gömul mejðsli tóku sig upp.
Valbjörn reyndi að vísu að
hlaupa 400 m., en gat ekki
beitt sér og hljóp á 53,2 sek.,
sem er mun lakari tími en
hann er vðnur að fá. Valbjörn
reyndi að fara- í fyrstu
grein síðari dagsins, 110 m.
grindahlaupið, en það var til-
gangslaust.
Portúgalar
Framhald af 5. síðu.
því, að Atlantshafsbandalag-
ið hefði að undanförnu ver.ð
svo upptekið af eigin vanda-
málum, að það hefði beinlín
is neytt nokkur aðildarríkja
sinna tjl að leita trausts og
halds á annarlegum stöðum
og beita öðrum meðulum en
þeim, sem Atlantshafsbanda-
lag ð hefði talið eðlilegt.
Með því að gera það, sem
við gerum, í öðrum heimsálf
um, teljum við okkur starfa
fyrir Atlantshafsbandalagið
og hinn frjálsa heim, sagðj
dr. Nogueira að lokum.
Frumsýning
Framhaid af 5. síðu.
hússins í vetur er það að segja,
að næsta frumsýning mun
verða í byrjun desember á
barnaleikritinu Siglaðir söngv
arar eftir Þorbjörn Egner.
Verður þetta fyrsta uppfærsl-
an á leikritinu, eftir að höfund
ur hefur aukjð mjög við það
og endurbætt. Klemenz Jóns-
son le kstjórj og aðalhlutverk
leikur Bessi Bjarnason.
Jólaleikrit Þjóðleikhússins
verður Deleríum Búbónis eftir
þá Jónas og Jón Múla Árna-
syni, en það var sýnt hjá Leik
félaginu fyrjr nokkrum árum.
Hafa höfundar aukjð ýmsu
við lejkritið og breytt. í því
verður dansaður ballet, sem
Ingibjörg Björnsdóttir semur,
Benedikt Árnason er leikstjóri,
en Rúrik Haraldsson, Ævar
Kvaran, Sigríður Þorvaldsdótt
ir, Arnar Jónsson, Þóra Frið-
riksdóttjr og Baldvin Halldórs
son fara með helztu hlutverk.
Leiktjöld og búninga hefur
Lárus Ingólfsson gert.
Af öðrum leikritum, sem
væntanlega verða sýnd síðar
á leikárinu eru til dæmís leik
rit eftir Matthías Jóhannessen,
sem gerist í borginnj; er nú-
t'ímaleikrlt, og Fiðlarinn á
iþakinu, sem verður frumsýnd
ur í marz.
Gyltfi
Framhaid af 1. síðu.
son.
Auk þessa fólks eiga formaður,
varaformaður og ritari sæti í
miðstjórninni og fimm fulltrúar
kjörnir af Sambandi ungra jafn-
aðarmanna.
• Þá var kosin flo.kksstjórn Al-
þýðuflokksins, en hana skipar
fólk í hinum ýmsu kjördæmum
um allt land, en í miðstjórn sit-
ur aðeins fólk úr Reykjavík og
nágrenni og Hafnarfirði. Þessír
voru kjörnir;
SUÐURLAND og VESTUR-
LAND: Brynjar Pétursson,
Sandgerði, Bragi Níelsson,
Akranesi, Hálfdán Sveinsson,
Akranesi, Einar Elíasson, Sel-
fossi, Magnús H. Magúnsson,
Vestmannaeyj um, Ottó Árna-
son, Ólafsvík, Ólafur Sjgur-
jónsson, Njarðvík, Ragnar Guð
leifsson, Keflavík, Svavar
Árnason, Grindavík og Gunnar
Markússon, Þorlákshöfn.
VESFIRÐIR: Jón Arason, Pat
reksfirði, Birgir Finnsson, ísa
f.rði, Bjarni Guðnason, Súða-
vík, Björgvin Sighvatsson, ísa-
firði, Hjörtur Hjálmarsson,
Flateyrj, Jens Hj örleif sson,
Hnáfsdal, Gunnlaugur Ó. Guð-
mundsson, ísafirði,
NORÐURLAND; Björgvin
Brynjólfsson, Skagaströnd,
Bragi Sjgurjónsson, Akureyri,
Kolbeinn Helgason, Akureyri,
Krjstján Sigurðsson, Siglufirði,
Einar M. Jóhannesson, Húsa-
vík, Magnús Bjarnason, Sauð-
árkrók, Sigurjón Sæmundsson,
Siglufirði, Steindór Steindórs
son, Akureyri.
AUSTURLAND: Sigurður
Pálsson, Borgarfjrði, Steinn
Jónsson, Eskifirði, Egill Guð-
laugsson, Fáskrúðsfirði, Gunn
þór Björnsson, Seyðisfirði og
Sigurjón Kristjánsson, Nes-
kaupstað.
Varamenn í flokksstjórn voru
iþessir ‘kjörnir:
SUÐURLAND OG VESTUR
LAND: Vigfús Jónsson, Eyrar-
bakka, Eggert Sigurlásson, Vest
mannaeyjum, Ásgeir Ágústsson,
Stykkiöhólmi, Helgi Sigurðsson.
Stokkseyri, Reynir Guðsteins-
son, Vestmannaeyjum, Snæbjörn.
Einarsson, Hellisandi, iSigríður
Ólafsdóttiir, Akrane’si, Sigríður
Jóhannesdóttir, Keflavík.
VESTFIRÐIR: Ingitojörg Pinns
dótitir, ísafirði, Sigurður
Jóhainnesson, íaafirði, Óli J.
Sigmundsson, ísafirði, Eyjólfur
Bjarnason, Suðureyri, Elías Guð
mundsson, Bolungavík, Páll
Jótoannesson, Patreksfiirði, Ey-
jólfur Jónsson, Fiateyri.
NORÐURLAND: Jón Þor-
sbeinsson, B'lönduósi, Þorvaldur
Jónsson, Akureyri, Guðmundur
Hjálmars'son, Blönduósi, Jótoann
G. Möller, Sigiufirði, Einar Fr.
Jóhannesson, Húsa'VÍk, Björn
'Guðmundsson, Hvaunstamga, Þor
steinn Hjálmiarsson, Hofsósi og
Hileggviður Hermannsison, Ólafs
firði.
AUSTURLAND: Hallsteinn
Friðlþjófsson, Seyðisfirði, Bragi
Haraldsson, Eskifirði, Gunnar
Egilson, Egilsatöðum, Gunn-
laugur Sigfússon, Reyðarfirði
og Kristján Imsland, Hornafirði.
Heimsmeistarar
félagsliða
★ INTER frá Milan sigraði
heimsmeistara félagsliða Estu
diantes frá Argentínu á sunnu-
dag með 2 mörkum gegn 1.
Inter, sem tvívegis hefur orð
ið hefmsmeistari félagsliða
skoraði eina markið, sem gert
var í fyrri hálfleik. Það gerð
hægri innherji Spadetto, 18
ára gamll leikmaður, en það
var fyrsti leikur Spadetto með
Milan. Á 72. mínútu bætti
Vastola öðru marki við, en
Argentínumenn gerðu eifts
mark sitt 9 mínútum síðar,
markið skoraði Spadora.
vinstri bakvörður.
Vcikswagsn gerð, var á
SPSLAKVÖLD ALÞÝDU-
FLOKKSFÉL. REYKJAVÍKUR
Aiþýffufiokkjíéiag: Rsykjax-íkuv heldur spilakvöld á Hótel Borg
V BX-'-kciaindi Umiiitudagskvöld 24. þ.m. og hefst þaö kl. 20.30
/ í stað þess að áffur haföj veriff auglýst 3ja kvölda keppni veírður1
' nú 2ja kvölda keppni og verða því veitt tvöföld kvöldverðlaun.
\ Aff Iokinni spilamennsku verður stigjnn dans og leikur hljómsveit
Ólafs Gauks fyrir dansi ásamt söngkonunni Svanhildi.
Ekið á staur