Alþýðublaðið - 22.10.1968, Síða 15
22. október 1968 ALÞYÐUBLAÐIÐ 15
^ V$T ?, v Mí
._á
■ ■■■■■BBBaBBBBK -■ I ■>■ I ■■■■««■■■■ 11 ■ ■■■■■«■ ■•■■■■■■■•■■■■(■■■■■•■■■•■H (E
J ■■■■»■■ ICJIlJMJI.BJBllJJBWdJllJIJJIlB ■■■=■■■■» ■»■■■■■ *«■■»■■
'^■^■■■■■■■■■■■. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■2a!!"!
2.
HLUTI
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■iii
— Þetta er eftírlætLssystir mín og ég ver
hana fyrir grimmum hundum og vondum mönn-
um. Hvaö var það fleira?
— Farðu yfir í Snyrtideildina. Þar færðu nýtt
andlit.
— Eða alveg nýtt höfuð. Bless á meðan —
„systir sæl.”
Þeir settu nú ekki alveg á mig nýtt h,öfuð,
en, þeir scttu einkasímann minn undir hnakkann
og græddu hár yfir hann. Þeir gerðu hár mitt
leiftrandi rautt eins og hárið á þessari „nýju”
systur minni. Þeir gerðu húðina hvitari og gerðu
eitthvað við kinnhein mín og (höku. Þeg;ir ég l&it
í spegilinn var ég jafn rauðhærður og systir
mín elskuleg. Ég horfði á sjálfan mig og velti
þ.ví fyrir mér, hvernig ég hefði eiginlega litið
út hérna endur fyrir löngu. Svo velti ég því
fyrir mér, hvort' hún systir mín elskuleg liti í
raun og veru út eins og hún gerði eða bara ein-
livern veginn allt öðruvísi. Ég vildi helzt hafa
hana eins og hún var, þegar ég sá hana fyrst.
Ég tók við töskunni, sem þeir höfðu við
höndina handa mér og svo hitti ég Karlinn. Það
var augljóst, að hann liafði verið hjá Snyrti-
deildinni líka. Skallinn var þakinn af krullum,
sem voru einhvers staðar mitt á milli bleiks og
hvíts. Svo höfðu þeir líka gert eitthvað við
andlitið á honum — ekki vissi ég hvað — en
al.Ur gátu séð hér eftir, að við þrjú vorum
skyld — og öll meðlimir þessa furðulega undir-
bálks mannkynsins — hinna rainShærðu!
— Komdu bara með mér, Sammi, sagði hann.
Ég segi þór alla söguna í bílnum. Við fórum út
eftir útgangi, sem ég hafði ald.ei kynnzt fyrr
og lentum yfir Nýju Brooklyn með útsýn yfir
Manhattangíginn.
Ég keyrði og Karlinn talaði. Þegar við vorum
komnir út úr borgarunjferðinni, sagði lrann
mér að skipta yfir í sjálfvirkt og fara beint til
Des Moines, í Iowafylki. Þar hittumst' við öll
þrjú. Ég, María og Kalli frændi. Og þar var
það, sem hann sagði okkur, hvað við værum.
Við erum ferðamamitf jöl.skyida, s'agði ha(nn,
— og ef eitthvað óvenjulegt skyldi koma fyrir
okkur, liögum við okkur nákvæmlega eins og
forvilnir og hundleiðinlegir ferðamenn.
— Hvert er vandamálið? spurði ég. — Eða
syngjum við sönginn án þess að þekkja nóturnar?
— Kannski.
— Það er þá gott að vita, hvers vegna ég
drcpst. En til hvers tókstu Maríu með?
„María” þagði. Hún hafði þennan sérhæfi-
leika, sem er svo sjaldgæfur hjá veikara kyn-
inu, að tala aldrei, nema hún hefði eitthvað að
secia. Karlinn virti mig fyrir sér hugsandi um
stund og spurði svo:
— Hefur þú heyrt minnzt á fljúgandi diska,
Sammi?
—- Ha?
— Eitthvað hlýturðu að hafa lesið þér til! Út
með það á stundinni!
■■■■■■■■■!
— Ertu að tala um fljúgandi diskadelluna?
Allt vesenið fyrir stríðið? Ég hélt, að hættan
væri raunveruleg en ekki aðeins fjöldadáleiðsla!
—- Voru þeir fjöldadáleiðsla?
— Ég hef ekki kynnt mér afbrigðilega sál-
fræði, en mig minnir að ég hafi einhvern tíma
heyrt minnzt á stærðfræðilega jöfnu eða kúrfu
þessa efnis. Það voru allir meira eða minna geð-
veikir á þessum tíma; þeir hefðu læst heilbrigð-
an mann inni á geðveikrahæli.
— Svo við erum geðheil í dag?
— Ég myndi nú ekki ganga svo langt að halda
því fram, Ég leitaði í hug mér að þeim st’að-
reyndum, sem mig vanhagaði um. — Heildar-
niðurstöður Digbys sanna, að 93,7% möguleikar
séu með því, vegna þess að hann var sá fyrsti,
sem safnaði saman gögnum bæði með og móti
og yfirfór málið vísindalega og hlutlaust. Hann
var ráðinu til þess af ríkisstjórninni, þó að ég
skilji ekki hvers vegna þeir voru að því.
Karlinn var blíður á svipinn. — Bara rólegur,
Sammi. Við ætlum að skoða fljúgandi disk í
dag. Kannski sögum við m.a.s. bút af honum
eins og venjulegir ferðamenn eru vanir að gera
2. KAFLI.
— Fyrir klukkutímum, Karlinn leit á úrið á
fingri sér og bætti við, — og fyrir 23 mínútum lenti
óþekkt geimskip nálægt Grinnell, Iowa. Tegund:
óþekkt. Greinilega disklaga og um það hil 450
metrar að þvermáli. Uppruni óþekktur, en ...
— Sáu þeir ekki, hvaðan það kom áður en það
lenti? greip ég fram í-
__ Nei, svaraði hann. — Hérna er mynd, sem
geimstöð Breta, tók af disknum eftir lendinguna.
Ég leit á myndina og rétti Maríu hana. Mynd-
in var jafnléleg og myndir venjulega eru, sem
eru teknar úr 80 þúsund kílómetra hæð. Trén
minna á mosa... skuggaský, sem eyðilagði mest-
an hluta myndarinnar... og grár hringur, sem
gæti liafa verið disklaga geimskip eða olíugeym-
ir eða vatnsgeymir.
María rétti mér myndina. — Þetta minnir
mest á tjald, sagði ég. — Hvað vitum við meira?
— Ekkert.
— Ekkert? Og það eftir 17 klukkutíma! Við:
hefðum átt að vera búnir að senda fullt af mönn-
um þangað!
— Við höfum þegar gert það. Tveir okkar
manna voru nálægt og fjóra sendum við. Þeir
létu vera að gefa skýrslu um málið. Satt að
segja höfum við ekkert til þeirra heyrt síðan og
mér leiðist að missa, einhvern af mínum mönnum,
Sammi, sérstaklega þegar árangurinn er enginn.
Skyndilega skildist mér, að málið var svo
alvarlegt, að Karlinn hafði ákveðið að leysa það
sjálfur, hvað sem það kostaði — og naumast
myndi það borga sig fyrir okkar deild, því að
hann ER deildin! í fyrsta lagi var það Karlinn,
Máy: fair?
NÍAYFAIRH
Afdrei sneira úrval aff IVIAY FAER
vinylveggfóðri
Hiýiegt heimili.
Fallegt heimili með MAY FAIR.
Kaupið aðeins það bezta.
KLÆMmHQ H.F.
Laugavegi 164 — Sími 2S444-
Veggfóður - verðlækkun
Japanska LONFIX Vinyl veggfóSrið verður áfram selt með allt
að 43% afslætti meðan birgðir endast. Birgðir eru takmarkaðar
af sumum litunum.
Verzl. ÁLFHÓLL, Álfhólsvegi, Kópavogi,
SÍS, Hafnarstræti, Reykjavík.
Bifreiöaeigendur athugið
Ljósastil'llilngar og allar aknen'nlar biíreiða-
viðgerðilr.
BIFREIÐAVERKSTÆÐI N. K. SVANE
Skeifan 2 — Sími 34362.
í
HÚSGÖGN
Sófasett, stakir stólar og svefnbekkir.
gögn- — Úrval af góðum áklæðum-
Kögur og leggingar.
BÓLSTRUN ÁSGRÍMS.
Bergstaðarstræti 2. — Sími 16807.
— Klæði gömul hús-
BIFREIÐAEIGENDUR
Látið stilla hreyfilinn fyrir veturinn.
Fullkomin tæki — vanir menn-
Bílaverkstæði Jón og Páll, Síðumúla 19.
— Sími 83980 —-
ATHUGIÐ
Geri gamlar hurðir sem nýjar, skef upp. olíuber og lakka.
Olíuber einnig nýjar hurðir og viðarklæðningar utanhúss.
Fjarlægi málningu af útihurðum og harðviðarlita þær-
GUÐMUNDUR DAVÍÐSSON.
SÍMI 36857-