Alþýðublaðið - 26.10.1968, Síða 5

Alþýðublaðið - 26.10.1968, Síða 5
26. október 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Sinfóníutónleikar Divertimento fyrir strengja- sveit eftir Béla Bartok var fyrsta verkefni sinfóníuhljóm- sveitarinnar á tónleikunum á s.l. fimmtudagskvöldi. Verk þetta, sem Bartok samdi árið 1939, er mjög skemmtilegt og áheyriiegt, en heldur virtust strengirnir vera ósamtaka á stundum, einkum er hraðinn var hvað sem mectur. Kornungur píanóleikari, Pet- er Serkin sonur hins heims- fræga snillings Rudolph Serk- ins, var einleikari í öðrum pí- anókonserti Beethovens. Áður höfum við fengið tækifæri til að kynnasf P. Serkin, en það var á’ tónleikapallinum í Austur bæjarbíói fyrir nokkrum árum. Þrátt fyrir sítt hár ög alls kon- ar undarlega kæki og takta (svo að stundum gat maður ætlað að það væri liann en ekki Bruland sem stjórnaði hljómsveitinni), brást hann ekki aðdáendum sínum í þetta sinn, enda geysi vel tekið af tónleikagestum. Hann var ó- Tónlist hemju hress og frískur í leik sínum, og spilaði af miklum áhuga og leikni, en mjög mikl ar og snöggar styrkleikabreyt- ingar, ásamt nokkuð iiarkaleg- um áslætti stundum, verkuðu elcki alltaf sem bezt' á áheyr- endur. Tónleikunum lauk á sinfón- íu í D-dúr op. 73 eftir J. Brahms, og var heildarsvipur- inn yfir flutningi þessa öndveg- is verks nokkuð góður, undir öruggri stjórn S. Brulands enda þótt ýmislegt mætti tína til, sem betur hefði mátt fara. Háskólabíó var óvenju þétt setið þetta kvöld. Hvað kom til? Kannski að nú var Bítill í fyrsta skipti einleikari með hljómsveitinni? Egill R. Friðleifsson. manna tiu ara í kvöld laugard. 2G. október verður frumsýnáng á leiksvliði Þjóð leikhússins á leikritinu Hunangsilmi, eftir enska höfundinn, Shelagh Deianey. Leilcstjórí er Brian Murphy. Leikendur eru Þóra Friðriks dóttir, Brynja Benediktsdóttir, Bcssi Bjarnason, Gísli Alfreðsson og Sigrurður Skúlason. Leikmyndir eru eftir Unu Colláns. Hljóð-i færaleikari er Carl Billich. Leikurinn var sem kunnugt er sýndur þrisvar sinnum á Litla sviðinu í Lindarbæ vorið 1967, en sýningar gáíu eklcj orðið í'Jeiri þá vegna veikindaforfalla eins aðalleikand ans. Leikritið, Hunangsálmur er nútímaleikrit og gerist í Manc- hester. Þýðandi leiksins er Ásgeir Hjartarson. Myndin er af, Þóru Friðriksdóttur og Bessa Bjamasynii í hlut-' verkum sínum. HJnn 23. þ. m. voru 10 ár lið in frá stofnun Bandalags há- skólamanna. t tilefni af því var haldinn fundur í fulltrúa- ráffi Bandalagsins, þar sem auk fulltrúanna voru mættir formenn og ýmsir stjórnar- menn aðildarfélaganna. Formaöur BHM, Þórir Einars son, viðskiptafr., flutti erindi, þar sem hann raktj störf Banda- lagsins á undangengnum áratug. Kom fram í erindinu, að Banda- lagið var stofnað fyrir forgöngu Lögfræðingafélags íslands, en Ármaim Snævarr, há'skólarekt- or, var þá formaður þess. Var 'liann ei.rini;^ fyrsti jf)orm{a{ð(uij Bandalagsins, en árið 1963 tók Sveilnn Björnsson \Varkjfp. vlð formennsku BHM. Var hann for maður til ársins 1966, þegar (skyggilegar atvinnuhorfur Magnús Reynir Guðmunds- son, nýkjörinn formaður kjör dæmisráffs Alþýðuflokksins í Vestfjarffakjördæmi, var einn af fulltrúum Vestfirff- inga á flokksþingi Alþýffu- flokksins um síðustu helgi. Magnús er búsettur á ísafirði. Alþýffublaðiff ræddi lítillega við hann á flokksþinginu um atvinnuástand'ð á ísafirði og almennt í Vestfjarðakjör- dæmi og gaf Magnús eftirfar andi lýsingu á ástandinu: „Atvinnuástandið á hinum ýmsu stöðum í Vestfjarða- kjördæmi er afar breytilegt. Ég myndi segja, að atvinnu ástandið víða annars staðar sé gott nú, ef miðað er vjð ástandið víða annars staðar á landinu. Hins vegar er aðra sögu að segja frá kaup- túnum í næsta nágrenni við ísafjörð, en í þeim er ríkj- andi atvinnuleysi. Ástandið í þessum kauptúnum er væg- ast sagt ískyggjlegt. Á Súgandaf rði er til dæm is ríkjandi algjört atvinnu- leysi eins og stendur og þann ig er ástandið víðar. Á Tálk- nafirði er eina atvinnufyrjr- tækið á staðnum lokað. Þó er þess að geta, að gott at vinnuástand er ríkjand: í Bol ungarvík. Erfiðleikarnir í at- vinnulífi hinna ýmsu staða á Vestfjörðum eiga auðv;tað rætur sínar að rekja til erf iðleikanna í sjávarútvegi ís- lendinga alniennt um þessar mundir. Ástæðan til þess, að at- vinnuástandið á ísafirði er miklu betra en víða í ná- grenni kaupstaðarins, er sú, að atvinnulífið á ísafirði er fjölbreyttara en víðast ann ars staðar á Vestfjörðum, og þar eru fleiri fyrirtæki rekin. Á ísafirði eru starfrækt tvö mjög vel rekin frysti- hús, sem eru til fyrirmyndar öðrum frystihúsum í landinu. Þá er á ísafirði starfrækt skipasmíðastöð, sem vlð ís- (flrðjingar bjindum miklar vonir við. I næstu framtíð munum viff ísfirðjngar byggja traust okkar á starfrækslu skipa- smíðastöðvar og þó sérstak- lega á fullvinnslu sjávaraf- urða, svo sem niðursuðuiðn- aði. Það er á þessum þáttum atvinnulífsins, sem við ísfirð ingar munum byggja afkomu okkar. núverandi formaður tók við. Bandalagið hefur haft fram- kvæmdastjóra síðan 1963. Aðalverkefni BHM undanfar- in ár hefur verið öflun samn- ingsréttar fyrir háskólamenn í þjónustu ríkisins og ýmis önnur hagsmunamál þeirra. Starfsemi Bandalagsins beinist nú æ meira að menntunar- og menningar- ihálum. Þannig má geta þess, að bandalagið gaf út ritið „Vís- indin efla alla dáð” á 50 ára afmæli Háskólans og gaf allan á’góða af sölu bókarinnar til hans. Eitt aðalverkefni Banda- lagsins á næstu árum verður væntanlega skipulagning á nám- skeiðum og framhaldsmennt. un fyrir háskólamenn, sem gerff verður í samráði við aðildarfél- ögin. Einnig má geta þess, að á' vegum BHM hefur verið gerff könnun á orsökum til búsetu íslenzkra háskólamanna erlendis, og væntanleg er í næsta mán- uði skýrsla um ævitekjur há- skólamanna o.fl. stétta, sem sam- in hefur verið á vegum Banda- lagsins. Að erindi formianns , jloknu, flútti Markús Einarsson, veðurv- fræðingur, erindi um starfsmat það fyrir opinbera starfsmenn, sem nú er unnið að, en Markús er fulltrúi BHM í starfsmatinu, Að erindunum loknum voru bornar fram fyrirspurnir. Stjórn BHM skipa nú: Þórir Einarsson, viðskiptafr., formaður. Erlendur Jónsson B.A., varaförmaður. Hau ui' Pálmason, verkfræðingur, rit- ari. Jónas Jónsson, canu. agr, gjaldkeri. Snorri P. Snorrason, læknir, meðstjórnandi. Framhald á 8. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.