Alþýðublaðið - 30.10.1968, Blaðsíða 2
2 ALÞYÐUBLAÐIÐ 30- október 1963
Ritstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og Benedikt Gröndal. Símar1
14900-14903. — Auglýsingastjóri: Sigurjón Ari Sigurjónsson. — Aug-
lýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu 8 —10,
Rvík. — Prentsipaiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Askriftargjald
kr. 130,00. í lausasölu kr. 8,00 eintakið. — Útg;: Nýja útgáfuféiagið h.f.
Vonbrigðin í Prag
Hugsjón 'kommúnismans lofar
miklu — frel'si, jafnrétti og
ibræðralagi. Hún lofar, að einræði
skuli breytast í lýðræði, sem á að
verða fullkomnara en nokkuð
annað lýðræði böfur verið.
Fjöldi manns um heim allan hef
ur stutt kommúnista vegna þess
ara loforða og trúar á framtíðina,
þrátt fyrir ógnarstjóm Stalíns,
kúgun Ungverja og fjölmargar
aðrar ávirðingar. Þetta fólk hefur
undanfarinn áratug þótzt sjá
breytingar til hins betra í komm
únistaríkjunum og það hefur
fyllzt von. Lengst gekk þessi þró
un í Tékkóslóvakíu fyrr á árinu,
og vöktu þær breytingar heims-
athygli, sem þar gerðust.
Það befur því valdið gífurl’eg-
um vonbrigðum, að valdhafar
Sovétríkjanna iskyldu ekki þola
þessar breytingar og telja þær
ógnun við sig. Þeir urðu svo ótta
slegnir, þeir vantreystu kommún
ilsmanum svo mjög, að þeir beittu
hervaldi til að brjóta Tékka á
hak aftur.
Það athyglisverðasta við atburð
ina í Tékkóslóvakíu var hin ó-
trúlega eining tékknesku þjóðar
innar. Sovézki innrásarherinn
gat ekki fundið neina tékkneska
stjórnmálamenn til að setjast í
leppstjórn. Þeir neituðu hver um
annan, meira að segja margir
fyrri starfsmenn Novotnys. Þessi
staðreynd er enn hinn ægilegasti
dómur, sem sovétkommúnisminn
hefur hlotið.
Sovétstjórnin hefur átt fiulft í
fangi með að verja gerðir sínar
'fyrir fordæmimgu, allt frá fjar-
lægustu löndum inn í rniðja
Moskviuborg, aldrei þessu vant.
Hún befur meðal 'annars gr:!pið
til nýrrar kenningar, sem nú er
kölluð Moskvu-kenningin. Er bún
á þá lund, 'að Sovétríkin bafi rétt
til að bl'anda sér að vild í mál-
efni lannarra kommúnistaríkja,
þar á meðal með vopnajv'aldi ef þau
eru á áhrifasvæði þeirra og þau
telja kommúnismanum ógnað.
Þetta veitir Sovétríkjumum í raun
ótakmarkað frelsi tll afskipta í
málefnum lannarra kommúnista-
ríkj'a og þurrkar út frefsi þeirra.
Vonbrigði Tékk'a eru mikil og
þeir telja minnkandi líkur á, að
hagur þeirra verði réttur í bráð.
En þeir isögðu í mótmælagöngum
1 Prag á 50 ária lafmæli lýðveldis
ins, aö þeir hefðu l.lfað af Hitl
-er og þeir mundu geta liíað af
Kosygin. Bjartsýni getur byggzt
á því, sem sagan kennir, að allt
er breytingum háð. Síðasta hálf
öld sannar Tékkum þetta í þeirra
leigin 'sögu. Það getur enn farið
‘svo, að kommúnistaríkin snúi inn
á braut auikins frelsis eihstaikl-
ingsin's og þeim sikiljist, að það
muni styúkja þau 'en ekki veikja.
Breytingar hjá bíladeild SIS
XJm þessar mu’jndir t standai
fyrir dyrum all-verulegar breyt-
ingar á starfsemi Bíladeildar
S.Í.S., en deildin hefur sem kunn-
ugt er umboð hér á landi. fyrir
General Motors bifreiðir.
Tilgangur með breytingum
þessum er þríþættur:
1. að stuðla að þættri varahluta-
þjónustu með því að koma
upp sérhæfðum ÞJÓNUSTU-
MIÐSTÖÐVUM fyrir þær
þrjár megintegundir bifreiða,
sem deildin annast sölu á,
en það eru Chevrolet frá
Ameríku, Opel frá Þýzka-
landi og Vauxhall/Bedford
frá Bretlandi.
2. að bæta aðstöðu til sölu á
nýjum bifreiðum með því að
auka verulega þá sölu- og
sýningaraðstöðu, sem þegar
er fyrir hendi í þessu skyni.
3. að koma upp aðstöðu til sölu
á notuðum bílum, en fram að
þessu hefur Bíladeildin ekki
haft fyrir slíkri aðstöðu að
ráða.
Þjónustumiðstöðvum fyrir Op-
el annars vegar og Vauxhall/
Bedford hins vegar mun Véla-
deildin koma upp í samvinnu
viö þau fyrirtæki, sem um árabil
hafa annazt viðgerðarþjónustu á
þessum tegundum. Er hér um að
ræða Bifreiðaverkstæði Péturs
Maek Þorsteinssonar fyrir Opel
og Vélverk hf. fyrir Vauxhall/
Bedford.
Mun Véladeild S.Í.S. annast
innflutning varahlutanna, telex-
þjónustu, verðlagningu o.s.frv.,
en hins vegar mun smásalan og
afgreiðsla sérpantana verða í
höndum Vélverks og Péturs. Eru
báðír þessir aðilar að koma sér
upp mjög ákjósanlegu verzlun-
arhúsnæði í þessu skyni, Vélverk
að Bíldshöfða 8 og Pétar að
Nýbýlavegi 10, Kópavogi.
Varahlutasalan fyrir amer-
ísku bifreiðirnar Chevrolet, Bu-
ick o.fl. verður áfram í húsa-
kynnum Véladeildar S.Í.S. að
Ármúla 3, en að Árrnúla 7 er
bifreiðaverkstæði Eyjólfs Jóns-
sonar, sem um árabil hefur sér-
hæft sig í þjónustu þessara
bifreiðategunda.
Með bdsytingju þeseþri ) er
stefnt að meiri sérhæfingu í
varahlutaþjónustunni en fram að
þessu hefur verið unnt að koma
við, er varahlutir í allar bif-
reiðategundir frá General Mot
ors voru seldir í gegnum eina
smásöluverzlun.
Þetta fyrirkomulag tryggir og,
að í næsta nágrenni við hverja
varahlutaverzlun verða sérfróðir
menn um viðhald og viðgerðir,
sem viðskiptavinir geta leitað
til um álit og ráðleggingar, al-
veg án tillits til þess, hvort bif-
reiðin verður færð til viðgerð-
ar á hlutaðeigandi verkstæði
eða ekki.
Á næstunni og í beinu fram-
haldi af þeim breytingum, sem
um ræðir hér að framan mun
á' næstunnj komið upp
um 300 fermetra SYNINGAR-
SAL fyrir nýjar og notaðar
bifreiðir á verzlunarhæð húss-
ins Ármúla 3. Fær deildin þar
með beztu aðstöðu sem völ er á
liér í borg til sölu á notuðum
bílum, en einmitt sá þéttur bíla-
sölunnar verður nú æ þýðingar-
meiri. Allflestir þeir, sem nýjar
bifreiðir kaupa, þurfa að koma
gamla bílnum í verð, og gætir
þess nú í æ rikara mæli, að til
þess er ætlazt að seljandi nýja,
bílsins geti látið í té ákveðna
þjónustu í þessu skyni.
Gert er ráð fyrir að breyt-
ingar þessar komist í kring á
næstu 4 til 6 vikum og verða
þær að sjá'lfsögðu rækilega aug-
lýstar í dagblöðunum, þegar þar
að kemur.
..... ' ......I^IIIT .. IRIIIIM
Gjöf til Landsspííalans
Miðvikudaginn 23. október s.
1. var afhentur í Landsspítalan
um sjóður að upphæð kr. 210.
601,58 til minningar um Pál
Arnljótsson, fyrrverandi frarn
reiðslumann. Skal verja sjóð
iþessum tjl kaupa á læknisá
höldum til þjónustu vjð nýrna
sjúklinga.
Að sjóðstofnun og söfnun
þeirra peninga, sem hér um
ræðjr stóðu nokkrir starísfé
lagar og vinjr Páls heitins Arn
ljótssonar, en vjð afhendingu
sjóðsins voru vjðstaddir Símon
S gurjónsson, framreiðstumað-
ur, Halldór S. Gröndal, veit-
ingamaður, Bjarni Guðjónsson,
framreiðslumaður, Árni Jóns-
son, matreiðslumaður og Ein-
ar A. Jónsson gjaldkeri.
Landlæknir, Sigurður Sig-
urðsson, formaður stjórnar-
nefndar ríkisspítalanna tók á
móti sjóðnum og þakkaði fyr
ir þessa rausnarlegu gjöf til
Landspítalans og þann stór-
hug, sem hún sýndi. ”
Erlendar
fréttir í
stuttu máli
DJAKARTA 29. 10. (ntb):
Fjórir indónesiskir kommú
nistaleiðtogar og einn fyrr
verandi hershöfðingi voru
í dag teknir af lífi í Indó-
nesíu vegna þátttöku í
h;nu misheppnaða sam-
særi kommúnista árið 1965.
Mennirnir, sem hétu Ejam
Sudisman, Jono, Wirjo,
Martino og Supardjo, he'rs
höfðjngi, voru skotnir til
bana með bundið fyrir aug
un.
NASHVILLE 29. 10. (ntb
anp): Verjandi James Earl
Ray, meints morðingja
blökkumannaleiðtogans
Martin Luther King, mun
í vörn sinni fyrir sakborn
inginn aðallega byggja á
þeirri málsástæðu, að Ray
hafi aðeins verið „agnar
lítill hlekkur í ógnarstórri
keðju“, að því er blöð í
Nashville hermdu í dag.
Verjandinn heldur því
fram, að Ray liafi ekki
framið morðið, heldur hafi
hann verið fengjnn til að
v.lla lögreglunni sýn.
SAIGON 29. 10. (ntb reut
er): Se'x manns biðu bana
og 17' særðust, cr spreng
ing varð á torgi einu í
bænum Kien Ltng í Me
kong héraðj í dag. Er þetta
eitt af mörgum hermdar
verkum, sem unnin hafa
verið í Suður Vit'tnam síð
ustu daga. Iȇ var hand
sprengju varpað inn í
stjórnarbygg}ngu í Saigon,
en ekkert manntjón varð
af.
MOSKVU 29. 10. (ntb): Tal
ið er nú, að Beregovoi
geimfari í „Sojusi 3“ muni
reyna að lendamjúkri lend
ingu á jörðu í stað þess að
stökkva út í fallhlíf. So
vétmenn hafa einu sinni
áður reynt mjúka lend
ingu í þessu sambandi, en
það var í marz 1965, þegar
geimfararnir Pavel Belja j
ev og Alexej Leonov lentu
ge mfari sínu á afskekkt
um stað í Soyétríkjunum. i •
l