Alþýðublaðið - 30.10.1968, Síða 16
A
r4TLWÍBKÍl
SÍOaH
Ég Vil benda öllum heiðvirð
um konum á að forðast að
lilaupa á eftir karlmönnum.
I*a eru nefnilega lítil líkjndi
til að þeir komist undan.
Leggjum varðskipin niður
Frá því var skýrt í blöðunum
í gær, að lögregluþjónn á trillu
hefði tekið bát í landhelgi og
fært hann til hafnar. Var það
haft eftir lögregluþjóninum, að
hann gæti alveg eins tekið land-
helgisbrjót eins og fullan öku-
mann á þjóðvegi.
Eins og kunnugt er, þá eru erf-
iðir tímar hjá þjóðinni um þess-
ar mundir og mikið lagt upp úr
ýmiss konar sparnaði. Er litið í
öll horn til að uppgötva hvar
hægt verði að koma við spamaði
Gluggasmiðjan
SíSumúla 12
Sími 38220 — Reykjavík
og er margt uppi á teningnum.
Þessi dáð lögreglumannsins ber
með sér nýja hugmynd um
sparnað og þá ekki af verri end-
anum.
Nú hefur lögreglan sýnt og
sannað, að hún getur fleira en
að stinga fullum ökuþórum í
steininn og komið hefur í Ijós að
meiri grundvöllur er undir trillu
bátaútgerð en menn hafa gert
sér í hugarlund.
Það vær^ ekki sparnaðarráð-
stöfun af verri endanum, ef þessi
stóru og óhentugu varðskip yrðu
lögð niður sem slík, og í stað
þeifra yrði lögreglunni gert skylt
að annast á trillum töku land-
helgisbrjóta. Gætu þeir þá skot-
izt á trillunum og hirt brjótana,
svona á milli þess sem þeir tækju
þig og mig fyrir ölvun við akst-
ur.
Hvað yrði um varðskipin? Von
þú spyrjir. Auðvitað yrði þeim
breytt í skuttogara og þar kæmi
loks langþráð verkefni fyrir ís-
lenzkan skipasmíðaiðnað.
Há'karl.
Þjóðarlygi er það nefnt, þeg
ar mönnum ve'rðnr það á að
segja allan sannleika um ná
ungann. ,
hverfafundir
um
borgarmálefni
GEIR HALLGRÍMSSON BORGARSTJÓRI BOÐAR TIL FUNDAR UM BORGARMÁLEFNI MEÐ
ÍBÚUM VESTURBÆJAR- og MELAHVERFIS í DAG 30. OKT. KL. 9- E-H- í SÚLNASAL
HÓTEL SÖGU-
Borgarstjóri flytur ræðu á fundinum um borgarmálefni almennt og um málefni hverf
isins og svarar munnlegum og skriflegum fyrirspurnum fundargesta. Fundarstjóri
verður María Pétursdóttir, hjúkrunarkona og fundarritari Agnar Friðriksson, viðsk-
fr- nemi- (Fundarhverfið er öll byggð vestan við Aðalstræti og Tjörnina að Skerjafjarða
arbyggð meðtalinni)-
Reykvíkingar
sækjum borgarmálafundina