Alþýðublaðið - 22.11.1968, Blaðsíða 10
10 ALÞYÐUBLAÐIÐ 22. nóvember 1968
Faye Dunaway
Ný Greta Garbo, segja sérfræðingarnir
sem lofa hæfileika hennar óspart
Hún er kölluð nýja Garbo og varð heimsfræg eftir
leik sinn í kvikmyndinni „Bonny og Clyde“. Hún er
tilfinningarík, en dul og torráðin. Hún er sannkölluð
stjarna.
Fyrir aðeins tve'm árum
var Faye Dunaway óþekkt
nafn í kvikmyndaheiminum.
í dag vita flestir að hún lék
Bonny Parker í myndinni
„Bonny og Clyde“. Nú getur
hún valið úr kvikmyndatilboð
um.
vöggu Faye Dunaway að hún
myndi öðlast frægð og frama.
Það var þvert á móti langur
vegur frá fæðingarstað henn-
ar í Bascom í Florida til glitr-
andi stjörnuhimins Hollywood.
Faðir hennar var yfirmaður í
hernum og hafði eng n sér
stök sambönd er dygðu til að
hjálpa dóttur hans á kvik-
myndabrautinni.
Stríðsbarnið Faye — hún er
fædd 1943, varð sjálf að brjót
ast áfram af eigin rammleik.
Hún átti enga ósk heitari en
að komast sem fyrst að beim
an. „Bacom er ekta amerísk-
ur járnbrautarbær“, segir hún,
„ég þráði dag og nótt að kom
ast burt“.
Faye Dunaway gekk í skóla
hjá sjálfum Elia Kazan, leik-
stjóra í „Baby Doll“ og „Aust
an Eden“. Þar fékk hún not
fyrir þann sjálfsaga, sem hún
hafði tamið sér he.ma í Flor-
ida. Hjá Elia Kazan var hún
áhugasamur nemandi og beið
í eftirvæntingu eftir hlutverki
á hvíta tjaldinu. Loks fékk
hún lít.ð hlutverk í myndinni
„Ákveðin æska“, þar sem Ant
hony Quinn lék aðalhlutverk-
ið. Þá bauð Otto Preminger
henni að leika í mynd sinni
„Eftir nótt kemur dagur“.
Faye langaði til að leika ann-
að aðalhlutverkið á móti Mic
hael Caine í þessari mynd, en
það var Jane Fonda sem hlaut
hnossið. Michael Caine spáði
því að eftir tvö ár yrði hún
orðin stærri stjarna en hann,
og það reyndist rétt, En hvers
vegna var svo Faye valin til
að leika Bonny-hlutverkið?
Það var sannarlegt happ-
Það stóð ekki skrifað á
Kalll, af öllum strákum í heiminum eru þið Snati þeir
beztu.
drætti fyrir leikstjórann, því
ekki vlssi hann að þessi hressi
lega byssustúlka, sem dansaði
um á öklasíðum pilsum með
alpahúfuna á flögrandi engla
hárinu, myndi vekja aðra
eins aðdáun og síðar varð
ljóst. Faye var frá sér numin
er henni var veitt hlutverkið,
og hún las allt sem hún náði
í um hina raunverulegu Bonny
Parker og beið eftir að hefj-
ast handa.
Faye rifti samning sínum
við Otto Preminger til að
leika Bonny, og Preminger
varð öskure ður.
Þegar „Bonny og Clyde“
kom á markaðinn vakti hún
svo mikla hrifningu, að það
yfirgnæfði björtustu vonir
leikstjórans Warren Beatty.
Og Faye Dunaway gat allt í
einu valið úr kv kmyndatil-
boðum víða um heim.
Faye hafði ofþreytt sig síð
ustu mánuðina og hvíldist
nokkrar vikur um borð í
skemmtisnekkju Sam Spiegels
á MiðjarðarhafSíðan lá leið-
in til Mexico, þar sem hún lék
í kvikmynd á móti David Niv
en. í þeirri ferð trúlofaðist
hún ljósmyndara er áður fyrr
hafð; tekið myndir af henni
sem fyrirsætu.
Sl. sumar, lék Faye sitt
stærsta hlutverk h ngað til.
Myndin er byggð á sögu Brun
ello Rondis „Elskendufnir“,
en það nafn mun ekki verða
notað á myndlna, því fransk-
maðurinn Louis Malle hefur
þegar gert kvikmynd með því
nafni. Framle ðandi myndar-
innar er Carlo Ponti, en leik
stjóri Vittorio de Sica.
Sagan fjallar um dvöl ungra
elskenda, <Faye Dunaway og
Marcello Mastrolanni), í fjalla
kofa í ítölsku Ölpunum. Hún
er með ólæknandi sjúkdóm og
veit að brátt mun hún deyja.
Þau eyða þarna síðustu vikun
um af ævi hennar.
Það eru fáir leikendur í
myndinni og þriðja stærsta
hlutverkið, dóttur fjallabónd-
ans, leikur norsk stúlka, Kar-
in Engh. Það var tilviljun ein
að þessi mynd 'vjar gerð. De
Sica sá leikrit um þetta efni,
er sýnt var í Róm í fyrra og
fékk áhuga á að gera kvik-
mynd eftir sögunni. Hann sá
að mikils yrði krafizt af að-
alleikurunum tve m, og mynd
in kæmi til með að kosta
skildinginn, þrátt fyrir að það
væri aðeins not fyrir sex leik
endur. De S_ca talaði við sinn
gamla vin Carlo Ponti sem hét
þegar liðveizlu sinni,
Hvorki de Sica eða Ponti
voru í vafa um hver ætti að
leika karlhlutverkið í mynd-
inni. Marcello Mastroianni var
sjálfkjörinn. En hver átti að
leika kvenhlutverkið?
Ponti stakk upp á Vanessu
Redgrave, en þá gerðist það
að de S„ca sá „Bonny og Clyde“
og þar með var málið afgreitt
frá hans hendi. Hann flýtti sér
til New York og bauð Faye
Dunaway hlutverkið. Hún
hugsaði sig ekki tvisvar um,
hafði lengi verið aðdáandi
Marcello Mastroianni.
Sagt var að eiginkona Pont-
is, Sophia Loren, hefði orðið
móðguð yfir að Faye fékk þetta
hlutverk, en Ponti og de Sica
hlæja að þessum orðrómi og
segja að Sophia hafi aldrei
komið til greina í þessari
mynd. „Hún passar alls ekki
í hlutverk.ð, segir de Sica al-
varlegur, en að við myndum
finna nýja Garbo, því reikn-
aði ég ekki með“.
Á því tímabili sem Faye tók
tilboðinu var Mastroianni
staddur í London. Hann vissi
að hann átti að leika í mynd-
inni, en vissj ekki um hvað
hún fjallaði eða hver yrði mót
leikari. Kvöld eitt fór hann
með vinum sínum að sjá
„Bonny og Cyde“. Mareello
var mjög hriLnn af myndinni
og ejnkanlega af Faye. „Dá-
samleg leikkona“, sagði hann,
„og svo hefur hún minnst
fimmtán mismunandi andlit“.
De Sica v.ssi ekki að Mastro
ianni þekkti til Faye Duna-.
way þegar hann tilkynnti
honum um mótleikara hans.
„Stórkostlegt, þúsund þakk-
ir“ sagði Marcello. Þegar
Faye og Mareello hittust í
fyrsta sinn á heimili Pontis,
stóðu þau fyrst góða stund og
horfðu. hvert á annað. Síðan
féllust þau í faðma, af ein-
skærri gleði, sagði Marcello.
A næstu mánuðum var unn
ið að kvikmyndahandritinu
og tengdasonur Pontis, Peter
Baldwin, tókst á hendur að
sjá um að samvinna Faye og
hmna ítölskumælandi leikara
gengi snurðulaust fyrir sig.
Norska stúlkan Karin var vai
in úr stórum hópi umsækj-
enda til að leika dóttur fjalla
bóndalns, og hefur gert því
hlutverki góð skil, segir de
Sica.
Það var mikið leitað að góð
um stað fyrir „elskendahreiðr
ið“ í Ölpunum og að síðustu ‘
féllst gömul vinkona Pontis,
furstafrú Ruspoli, á að lána
fjallabústað sinna Villa Mas-
er, sem reyndar minnir meir
á höll en kofa. Helmingur
myndaúnnar er tekin við
Villa Maser, en seinni hlut-
inn hátt uppi í fjöUunum þar
sem Faye og Marcello eyða síð
Frh. á 14. síðu.
HEYRT&
* SÉÐ