Alþýðublaðið - 13.12.1968, Blaðsíða 5
13- desember 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
Bækur IVIáls
og menningar
Kristján Þorgeirsson og Gísli Gunnarsson.
Stofnun fleiri matsnefnda i undirbúningi
Neytendasamtökin á íslandi
hafa nú staríað um nærfellt
sextán ár'a skeiff. Neytenda-
samtök starfa núna í flestum
löndum Evrópu og Norffur-
Ameríku og einnig í mörgum
löndum í öffrum heimshlutum.
íslenzku samtökin eru þ'au
þriffju elztu. 1960 voru stofn
uff Alþjóffasamtök neytenda
og hafa Neytendasamtökin á
íslandi frá upphafi veriff affili
aff þeim. Þá er ísland affili að
norrænu samstarfsnefndinni
um neytend'amálefni.
Markniið Neytendasamtak-
arnia- er að gæta hagsmuna
neytenda í hvívetna varðandi
kaup á vörum og þjónustu.
Starfsemi þeirra fer nú að
mestu leyti þann.g fram, að
rekin er skrifstofa, sem veitir
neytendum almenna þjón-
ustu, til dæmis vegna kv^rt-
ana um viðskipti, gefur upp-
lýs ngar um rétt neytenda,
vörugæði og fleira. Neytenda
samtökm opnuðu 1. desember
sl. nýja skrifstofu að Austur-
stræti 9, og er hún opin alla
Virka daga nema laugardaga
frá 1—6, símar 19722 og 21666.
Framkvæmdastjóri samtak-
anna sér um daglegan rekstur
þeirra og starfar í samráði
Við lögfræðinga samtakanna
að þeim málum, sem krefjast
lögfræðilegrar úrvinnslu.
Annar veigam kill þáttur í
starfi Neytendasamtakanna
er útgáfustarfsemi og ber í
því sambandi fyrst að nefna
Neytendablaðið, sem mun
koma út um miðjan þennan
mánuð, en sem stendur er út-
gáfa blaðsins öll í endurskoð
un, og mun blaðið koma út h
nýstárlegu formi þegar í byrj
un næsta árs. Þar verða birt-
ar gre nar almenns eðlis til
leiðbein.ngar á réttarstöðu
neytendá, leiðbeiningar um
vörukaup og vöruval og með
ferð ýmissa vöruflokka auk
þess sem greint verður frá
starfsemi samtakanna.
Meðal an'narra verkefni í
framtíð nni má nefna stofnun
fleiri matsneínda, en ein slík
stafar nú til að athuga um-
kvartanir vegna þjónustu
efnalauga. E.nnig er ætlunin
að hefja, e ns mikið og fjár-
hagur og aðrar aðstæður
leyfa, gæðamat á vörum, en
slíkt er mjög mikill þáttur í
starfi neytendasamtaka er-
lendis. Öflugt kynningarstarf
verður hafið í Neytendasam-
tökunum og í því sambandi
leitast við að stórfjölga með-
limum þe.rra, og almennur fé-
lagsfundur verður haldinn
núna eftir áramótin. Fyrir
aðalfund er ætlunin að hafa
komið upp umboðsmannakerfi
um allt land, þannig að neyt-
endur fjarri Beykjavík geti
fyrst snú ð sér til slíkra um-
boðsmanna. sem starfa síðan
eftir því sem ástæður þykja
í samvinnu við skrifstofu
samtakanna í Reykjavík.
Gæti þetta auðveldað endur-
skipulagningu samtakanna,
þannig að þau byggist á deild
um, sem síðan hafi með sér
landssamband.
29. júlf sl. sumar var kjörin
ný stjórn fyrir Neytendasam-
tökin, og er formaður ’nenn-
ar núna Hjalti Þórðarson,
skrifstofustjóri, Selfossi. Aðr
ir í stjórn eru Kristján Þor-
ge rsson, framkvæmdastjóri
samtakanna, varaformaður.
Gísli Gunnarsson, kennari,
r tari, Jón Oddsson, lögfræð-
ingur, gjaldkeri. Msðstjórn-
endur eru Gísli Ásmundsson,
Prh. á 2. síðu.
Reykjavík. — VGK.
Bókaútgáfa Máls og menning-
ar og Heimskringla hafa sent
frá sér nokkrar bækur. Nokkrar
breytingar hafa orðið á skipu-
lagi félagsútgáfu Máls og menn-
ingar og mega félagsmenn nú
velja um sex bækur. Fer félags-
gjald eftir því hve margar bæk-
ur menn velja sér, en tímarit fé-
lagsjns er fast. Tímaritið auk
tveggja bóka kosta 650 krónur,
tímaritið auk fjögurra bóka 1000
og tímaritið auk sex bóka 1280.
Bækur Máls og menningar og
Hejmskringlu eru þessar:
UM ÍSLENZKAR FORN-
SÖGUR
eftir Sigurð Nordal.
Árni Björnsson þýddi.
178 bls. Verð í b. kr. 350
+ sölusk
Bók þessi er býðing á' Sagalitt-
eraturen, sem kom út á dönsku
í safnritjnu NORDISK KULTUR
árið 1953. í bókinni er gerð til-
raun til þess að raða íslenzkum
fornsögum sem næst því er senni
legur ritunartími segir til. —
„Þetta fannst mér,” segir Sig-
urður Nordal í formála, „einna
helzt geta orðið að gagni af því
sem unnt var að gera nokkur
skil í svo stuttu máli.”
SJÖDÆGRA,
önnur prentun,
eftir Jóhannes úr Kötlum.
162 bls. Verð í b. kr. 330
+ sölusk. :
Þessi bók er í flokki úrvalsrita
íslenzkra bókmennta, sem Mál
og menning gefur út. Bókin kom
fyrst út 1955 og er löngu upp-
seld. Margir telja SJÖDÆGRU
ágætustu ljóffabók Jóhannesar,
og mönnum er nú æ betur aff
verða ljóst, að í henni hefur ís-
lenzk nútímaljóðlist risið einna
hæst.
PAPPÍRSKILJUR |
MÁLS OG MENNINGAR
BANDARÍKIN OG ÞRIÐJI
HEIMURINN
eftir David Horowitz.
Hannes Sigfússon þýddi.
174 bls. :
INNGANGUR AÐ FÉLAGS-
FRÆÐI j
eftir Peter L. Berger.
Hörður Bergmann og Loftur
Guttormsson þýddu.
216 bls.
Verð hvorrar bókar kr. 180,00
+ sölusk.
Þetta eru tvær fyrstu bækurn.
ar í nýjum flokki fræffibóka um
ýmis efni, sem Mál og menning
gefur út og nefndar eru „papp-
írskiljur”. Er þetta tilraun til aff
gefa út ódýrar og handliægar
bækur um efni, sem efst eru á
baugj í heiminum, viðleitni til aff
gera íslenzka bókaútgáfu fjöl-
breyttari en verið hefur.
r
i
SKÚLI THORODDSEN, ,
fyrra bindi,
eftir Jón Guðnason
461 bls. + 13 myndasiður.
Verð í b. kr. 640,00 + sölusk.
Þessi liluti verksins fjallar um
æskuár Skúla og námsár, dvöl
hans sem sýslumanns á ísafirði,
en langmestur hluti bindisins er
helgaður „Skúlamálinu” fræga,
sem nú er loks skoðað ofan í
kjölinn, svo aff úr verður hin
merkasta aldarfars- og réttarfars
lýsing. i síðara bindinu, sem
væntanlegt er innan skamms,
verður stjómmálasaga Skúla
Thoroddsens aff öðru leyti rakia
allt til æviloka.
VÍETNAM
eftir Magnús Kjartansson.
218 bls. + 32 myndasíður.
Verð í b. kr. 400,00 + sölusk,
Magnús Kjartansson ferðaðist
um Norður-Vietnam i sumar, og
segir frá því ferðalagi í þessari
bók. Þetta er þó ekki aðeins
ferffabók, heldur eru hér einnig
raktir meginþættir víetnamski--
ar sögu og sjálfstæðisbaráttu, en
bókinni lýkur með bollalegging-
um um alþjóðlega refskák stjóra
málanna og þróun sósíalismans á
síðustu árum.
Fra-niiald á 14. síðu.
Þessi læknasaga Kerry Mitch-
ell, er spennandi og hrífandi ást-
arsaga um líf og starf á sjúkra-
thúsi, sorgir og gleði, ástir og af-
brýði.
Verð kr. 279,50 m/sölusk.
Bókaútgáfan Snæfell.