Alþýðublaðið - 15.12.1968, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 15.12.1968, Blaðsíða 11
JOLABLAÐ ALÞYÐUBLAÐSINS 1968 11 mm endilangur í forar-pollinum og rumldi af ánægju. Hann spriiklaði og buslaði, svo að forar-sletturnar gengu í allar áttir. Mest hafði liltli æringinn gaman af að sletta á hina snyrtilegu bræður sína, sem flýðu í dauðans ofboð: inn í kofann til mömmu og voguðu sér ekki meira út þann daginn. Á máltíðum borðaði sá forugi af hjartans lyst, al.lt, sem fyrir hann var sett, og fór svo beint út að leika sér aftur. Én fínu 'bræður hans rétt nörtuðu í matitnn og skildu hann mest allan eftir. Rósa, mamma þeirra, var því í mestu vandræðum með alla grísina, ef á allt var litið. Rétt fyrir jólin, komu bæði bóndinn v og konan hans rnn í svína-stíuna til að velja sér jólagrís. Stóra stundin var runnin upp fyrir Rósu og grísunum fjórum. Snyrtilegu grísa-strákarnir fjórir stilltu sér upp við hlið móður sinnar, sem ljómaði af stolti. Skítugi grísinn var hvergi nærri. Hann var sofnaður í miðjum forar-pollinum. Blá-trýnið stóð upp úr. Rósa vakti hann ekki Hann myndi, hvort sem var, aldrei verða fyrir valinu. Bóndinn og konan hans, beygðu sig niður að grísunum og klöppuðu þeim og þreifuðu á þeim. ,,í>etta eru allra fallegustu grísir, sem ég hef séð. En ósköp eru þeir magrir. Ég held, að við getum ekki notað nelnn þeirra á jólaborðið,” sagði bóndakonan. Bóndinn stóð upp og leit í kringum sig. „Rósa á áreiðanlega einn grís enn þá, hvar ætli hann sé? Þegar Rósa heyrði þetta flýtti hún sér að pollinum <og ýtti við sóðanum litla, sem hentist á fætur með ægilegum slettugangi. Nú var hann orðinn hennar eina og síðasta von um að verða jólagrísa-mamma. „Að sjá, hvernig hann lítur út,“ sagði konan og horfði með óbeit á litla greyið. „Það er nú hægur vandi1, að ná af honum skítnum“, sagði bóndinn og sótti vatnsslöngu og bursta. Síðan beindi 'hann sterkri bunu að grísnum og skrúbbaði með burstanum, og eftir litla stund kom í ljós bleikur og glansandi grísa-kroppurinn, fekur og pattaralegur. „Nei sko, hvað hann er hraustlegur og fallegur innan undan óhreinindunum, kallaði bóndákonan og sló saman höndunum. „Þennan skulum við hafa ’sem jólagrís.” ★ Þessi saga sannar okkur, að ekki tvierða fínheitin mest metin, þegar á reynir. Herdís Egilsdóttir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.