Alþýðublaðið - 30.01.1969, Page 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ 30. janúar 1969
argus auglýsingastofa
Fjölskyldur - einstaklingar!
Notið páskana til að ferðast með
G (JLLFOSSI á skiðavikuna.
Kvöldvökur, dans og fleira
ti! skemmtunar fyrir farþega
um borð í skipinu — sérstakur
hátíðarmatur á borðum.
Skíðakennari með í ferðinni
til Eeiðbeiningar farþegum.
NJÓTIÐ HVÍLDAR, SKEMMTUNAR
OG HRESSINGAR Á EIGIN
HEIMILI UM PÁSKANA. /^
Dragið ekki að /,
panta farmiða.
Farið frá Reykjavík 2. april, komið til Reykjavíkur 8. apríl,
Búið um borð í skipinu ailan tímann.
Verð frá kr. 5000.00, fæði og þjónustugjald innifalið.
Allar nánari upplýsingar veitir:
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Farþegadeildin. Pósthússtræti 2, sími 21460
og umboðsmenn félagsins.
Veröur senn auð-
veldara að búo til
vetnissprengjur?
Nýjar öryggrisreglur sem bandaríska kjarnorkumálastofnunin lief-
v’r lagt fram gefa í skyn að innan skamms verði fundin upp ný
aðferð til þess að koma af stað vetntssprengingu. Til þessa hefur
vetnissprenging ekki getað átt sér stað nema í kjölfar venjulegr-
ar kjarnorkus.prengingar, en í hinum nýju reglurn er gert ráð
fyrir að hægt verði að nota „laser“ geisla í sama augnamiði.
Þessi uppfinning gæti reynzt
mjög þýðingarmikil og um leið
hættuleg, því að hún gerði langt-
um erfiðara um vik að hindra að
kjarnorkuvopn breiðist úl til fleiri
landa. Það er nefnilega sjálf kjarna-
sprengjan, sem er kostnaðarsamt og
erfitt að búa til, ekki hin eiginlega
vetnissprengja. A hinn bóginn yrði
kjarnasprengjulaus vetnissprengja
næstum því „hrein“, þar eð megnið
af geislavirku niðurfalli við kjarn-
orkusprengingar stafar frá kjarna-
sprengingunni, sem kemur vetnis-
sprengingunni af stað.
Reglugerðin, sem hefur komið
þessum yangaveltum af stað, var
birt rétt fyrir áramótin, og þar seg-
ir m.a. að Ieynd skuli höfð á öllum
upplýsingum varðandi kjarnorku-
vopn og einstaka hluta þeirra „þar
á meðal „laser“ og „laser“ kerfi, sem
eigi að geta eða geti komið af
stað hækkun hitastigs í tvívetni,
þrívetni eða efnisblöndum, sem
innihaldi þessi efni.“ Þetta orðalag
hefur orðið þess valdandi að menn
bafa tekið að spyrja, hvað valdi
því að „Iasergeisla" sé þarna sérstak-
lega getið.
Vetnissprenging á sér stað við
samruna kjarna tvívetnis- og þrívetn
isatóma. En til þess að samruninn
geti átt sér stað þarf hitastigið að
komast upp í 100 milljón gráður á
Célsíus. Þessi biti myndast við
venjulega kjarnasprengingu, Hing-
að til hefur efnið Uraníum-235 ver-
ið ómissandi til þess að koma vetn-
issprengingu af stað, en það er
ákaflega erfitt og dýrt í framleiðslu,
enda ráða einungis firnrn stórveldi
níí yfir þeirri tækni og því fjár-
magni sem til þess þarf, þ.e. Banda-
ríkin, Sovétríkin, Bretland, Frakk-
land og Kína. Efrsin í sjálfa vetnis-
sprengjuna er iuns vegar auðvelt
að kornast yfir. Tvívetni má vinna
úr venjulegu vatni, og þrívetni er
hægt að búa til í kjarnaofnum af
því tagi, sem til eru víða um lönd.
Fyrir fáeinum árum skýrðu
tveir þýzkir vísindamenn, dr. Hans
Opöwer og W. PreSs við Tækni-
háskólann í Miinchen, frá tilraun-
um sem þeir höfðu gert með „laser“
geisla, og þar gáfu þeir í skyn að
mögulegt kynni að vera að nota
„laser“ geisla til þess að koma af
stað samruna í tvívetnis- og þrí-
vetniskjörnum. Fyrir þeim vakti
áreiðanlega ekki að benda á hag-
kvæmari leið til að framleiða sprengj
ur, heldur bafa- vísindamenn unnið
að því um árabil í fjölda landa að
N Framhald á 9. síðu.
Bæjarútgerðin
landar 75°jo heima
Togarar Bæjarútgerðar Reykjavíkur lögðu í fyrra 75% af afla
sínum upp hér á landi tR vinnslu, en seldu aðeins 25% erlendis,
end.a þótt tekjur skipanna af siglingum með aflann hafi vei'ið mun
meiri, að því er forráðamenn útgerðarinnar hafa skýrt blaðinu
frá. Er þetta í meginatriðum í samræmi við ályktun Borgarstjórn
ar, sem var á þá lund, að landa skyldi „scm mest“ af aflanum
hér heima. í
Fiskur sá, sem skipin fá á viss-
um tímurn árs er ekki til þess fall-
inn. að vinna hann heima, en hins
vegar má oft fá fyrir bann gott
verð erlendis. Má í þessu sambandi
benda á, að meðaltekjur skips hafa
verið kr. 115.973 á útbaldsdag, þeg-
ar veitt er fyrir erlendan markað,
og eru þá sjglingadagar meðtaldir.
Hins vegar hafa tekjurnar verið
að meðaltali kr. 70.976, þegar veitt
hefur verið fyrir innlendan mark-
að. Má af þessu sjá, að fullt tillit
hefur verið tekið til atvinnusjónar-
miða í landi, og oft minna til
hagnaðarvonarinnar.
Jafnframt bentu forráðamenn
Bæjarútgerðarinnar á, að vinnsla í
saltfiskverkunarstöð útgerðarinnar
jókst árið 1968 um 242% miðað
við 1967, og framleiðsla fiskiflaka í
frystihúsi útgerðarinnar jókst utn
153% frá 1967.
BÚTASALA
Teppabútar
RúIIuafgangar
Teppaafskurðir
VEFARINN HF.
MíkiKI afsláttur
Földun
Kjarakaup
SKEIFUNNI 3a