Alþýðublaðið - 31.01.1969, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 31.01.1969, Blaðsíða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 31. janúar 1969 # ÆÆr* ritstj. ÖRN EIÐSSON II Þl R^Pl n n R Miklar framkvæmdir á vegum KR á döfinni Stjórn féiagsins endurkjörin KNATTSPYRNUFÉLAG Reykja víku'r hélt aðalfund sinn í KR-heim- jlinu fimmtudaginn 12. desember s.l. Sátu fundinn 88 fulltrúar frá 9 deildum félagsins, auk aðalstjórnar félagsins, hússtjórnar og endurskoð- enda. Fundarstjóri var Björgvin Schram, en fundarritari Þórður Sig- Uðrsson. Handbolta- mynd að ! Hlíðarenda í kvöld kl. 8 gengst Hand- knattleikssamband Islands fyrir kvikmyndasýningu í félagsheimili Vals að Hlíðar- enda. Þar verður sýnd mynd, sem danska handknattleiks- sambandið hefur látið gera um uppbyggingu og skipu- lagningu danska landsliðsins. Inn í myndina er fléttað köfl um úr nokkrum leikjum, sem danska landsliðið hefur leik ið. Öllu handknattleiksfólki er heimill aðgangur. maður KR, Einar Sæmundsson, þriggja KR-inga,' sem létust á starfs- árinu, þeirra Jóhanns Gíslasonar, Ragnars Péturssonar og Karls Hreggviðssonar, og risu fundar- menn úr sætum sínuln lil að votta þessum látnu félögum virðingu sína og þakkir fyrir störf í þágu félagsins. Ritari aðalstjórnar, Gunnar Sig- urðsson, flutti fundinum skýrslu aðalstjórnar og útdrátt úr skýrslum einstákra deilda, sem hvcr um sig hafði haldið aðalfund sinn, áður en aðalfundur Félagsins var haldinn. Sveinn Björnsson flutti skýrslu og reikninga hússtjórnar, og gjaldkeri aðalstjórnar, Þorgeir Sigurðsson, las reikninga aðalstjórnar, fjáröflunar- nefndar og sérsjóða félagsins og lóks samandreginn heildarreikning félagsins, unninn úr rcikningum aðalstjórnar, hússtjórnar og allra deilda félagsins. Aðalstjórn félagsins var endur- kosin einum rómi, en hana skipa: Einar Sæmundsson, formaður, Sveinn Björnsson, varaformaður, Gunnar Sigurðsson, ritari, Þorgeir Sigurðsson, gjaldkeri, Birgir Þor- valdsson, fundaritari, ojf Þórður Sigurðsson, spjaldskrárritari. Vara- stjórn var kjörin: Georg Lúðvíks- son, Hilmar Steingrímsson Magnús Georgssón, cndurskoðend- ur Sveinn Jónsson og Þráinn Schev- ing, og varaendurskoðéndur: Sverr- ir Sverrisson og Helgi V. Jónsson. Verður nú drepið á nokkur atriði úr skýrslum félagsins, þau, sem at- ■h.yglisyerðust eru: + 21/2 MILLJÓN KRÓNA í NÝTT ÍÞRÓTTAHÚS KR-ingar eiga í smíðum nýjan og stærri íþróttaskála á svæði félags- ins en þann, sem fyrir er. Kom það fram í skýrslu hússtjórnar, að bygg- ingarkostnaður hins nýja skála nem- ur nú 21/2 milljón króna, og jafn- framt,'að sjálfboðaliðaslarf við bygg- ingarframkvæpdirnar liefur verið mjög mikið, eða rúmfega 2000 vinnu ■stundir. Hafa alls 106 manns tek- ið þátt í þessu starfi, en þar af hafa 13 menn unnið um helming vinnu- stundanna. Fremstur í flokki stend- ur þó Sveinn Björnsson, sem haft^- hefur veg og vandg af byggingar- framkvæmdunum ásamt Gisla Hall- dórssyni, formanni hússtjórnar. — Færði aðalfundurinn þessum tveim- ur niönnum sérstakar þakkir fyrir ötult starf í þágu félagsins, MIKLAR EIGNIR, F.N ÞÓ REKSTRARHALLI Reikningar félagsins, sem lesnir voru á fundninum, bera það með sér, að fjárhagur KR stendur með Framhald á 10. siðu. Glæsiiegt Vals- biað komið út Myndarskapur Valsmanna í sambandi við blaðaútgáfu er til mikillar fyrirmyndar, enn eitt Valsblað.ð er komið út, vandaðra en nokkru sinnj og þurfti tölvert til. Blaðið er 82 síður, vandað mjög. í blaðinu er löng frásögn af komu Benfica og för Vals manria t-1 Portúgals. Frásögn er af knattspyrnuferli Al- berts Guðmundssonar eða réttara sagt þýðingar úr erlend úm blöðum um Albert. Við- tal við Einar Björnsson, farið í heimsókn til Valsfjölskyldu, aldarm'inning sr. Friðriks Friðrikssonair. Þá er Valgeir Ársælsson kynntur í þættin- um Hver er Valsmaðurinn, rætt er við Hermann Gunn- arsson, Sigrúnu Ingólfsdótt- ur og fyrirliða yngri flokk- anna. Fleira skemmtilegt efni er í blaðinu. í ritnefnd blaðsins eru Frí mann Hélgason, Einar Björns son og Gunnar Vagnsson. í upphafi fundar minntist for- ----------------------------------♦ og* Einn af þeim yngri úr röðum KR-inga. Getraunir / köríu■ knattleik á Spáni Á Spáni liefur verið komið á fót víðtækri getraunastarf semi í sambandi vði meistara mót Spánar. Leikirnir í keppn jnni fara fram um helgar, og eru 14 leikir, sem veðjað er á. Getraunaseðlarnir eru birt ir í íþróttadagblöðunum fjór um, Marca, As, Mundo De portivo og Dicen, í byrjun hverrar viku, og er ætlazt til að fólk klipp' þá út og fylli inn í dálka úrslitin. í stað hinnar venjulegu „1x2“ aðferðar, sem notuð er í knattspyrnugetraununum, eru notuð fjögur merki, „A“ þýðjr að heimal ðið sigri með 10 stigum eða minna, „B“ þýðir að heimaliðið vinni með 11 stigum eða meira, ,,X“ þýð ir jafntefli (án framlenging ar), og „C“ þýðir að gestalið ið vinni. Spáhska pressan hefur tek ið þ'essari getraunastarfsemi mjög vel, og skrifað mikið um hana, og auk þess að bírta seð linin á hverjum mánu degi, b:rta þau fréttir frá henni á hverjum miðviku degi, og leiðbe'na lesendum sínum fyrir næstu helgi. Eftir fyrsta sunnudaginn, komu inn 14000 getraunaseðl ar víðs vegar af landínu, og g'zkuðu 7 manns á 13 róttá, þessa 13 réttu fengu þessir menin rafma.gnsrakvél, en transistor útvarpstæki fá þeir sem geta rétt unp á öllum 14. Philips fvrrt-^kið á Spáni gefur virmnvana, en fær í. staðinn gevs;lega auglýsingu í sambandi vð getraunina. TilganguHnn með þessu ollu er að vekia áhuga manna á Spáni á íhróttinni í gegnum getraunirnar, og auðvitað hugsað þainn g. að hagnaöár vonjn fá? menn til að hafa á huga á úrslifunum í leikjun um sem fmm fara um hverj.t helgi. EIRRÖR Kranar, fittings, einangrun o. fl. til hita- oe vatnslagna, Burstafell bygfringavöruvewltm Kéttarholtsvegi t Líml 88840 VELJUM ÍSLENZKT- ÍSLENZKAN IÐNAÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.