Dagur - 09.03.1918, Síða 2

Dagur - 09.03.1918, Síða 2
10 DAGUR. Tilkynning. Þeir menn úli um sveitir, sem fá blaðið sent óbeðið, verða taldir kaupendur þess, hafi þeir ekki 'end- ursent fyrstu blöðin til afgreiðslu- manns fyrir miðjan apríl n. k. og Eistland af Rússum, enda berjast nú Eistlendingar og Ukrainebúar með Rjóðverjum gegn Rússum. Get- ur ástandið í Rússlandi naumast verra orðið. Alt logar þar í ófriðarbáli stjórnarbyltingarinnar, hver höndin upp á móti annari, stjórnleysi hvar- vetna, engin festa í neinum hernað- arráðstöfunum nje öðru og heraginn í megnasta ólagi. Lenin og Trotsky, sem mjög hafa verið við stjórnar- byltinguna riðnir, hurfu skyndilega og voru álitnir dauðir, en eru nú sagðir komnir fram í borginni Ríga. Rúmenar eru byrjaðir að semja frið við Miðveldin. Er talið líklegt að þeir vilji ná Bessarabíu frá Rúss- um, enda eru margir Rúmenar þar í landi. Tíðindum þykir það sæta, að Svíar hafa farið með hertil Álands- eyjá og tekið þær herskyldi af Rúss- um; geta sumir þess til, að þetta hafi verið gert með samþykki Pjóð- verja. Hörmungarnar í Finnlandi halda áfram. Vilja Finnlendingar alt til vinna að þeim geti Ijett af. Hafa þeir beðið Þjóðverja hjálpar og seg- jast fúsir ganga að öllum kröfum þeirra í staðinn. Hafa Rjóðverjar nú brugðið við og sent þeim hergögn til að verjast óaldarflokknum þar í landi. Sagt er að Svíar ætli einnig að rjetta þeim hjálparhönd. Er því ekki óhugsandi að eitthvað taki fram úr fyrir þeim, áður langt Iíður. Öðruhvoru er getið um stórorust- ur á vesturvígstöðvunum, en ekki kunnugt hvaða árangur þær beri. Hertling, ríkiskanslarinn þýski, hefir nýlega minst á frið við stjórn Belgíu. Vill hann að friður byggist að nokkru leyti á skilyrðum Wilsons Bandaríkjaforseta. Er þetta talinn vottur þess, að ekki sje með öllu vonlaust um að friður geti verið í aðsigi. Samtíningur. — Ákveðið er að gufuskipið Botnía sigli beint á milli Danmerk- ur og íslands til vöruflutninga. Hún leggur af stað frá Khöfn þessa dagana. Sterling er sagt að Ieggi af stað híngað til lands frá Höfn 1. n. m. — Hafísinn ætlar að hafa lengsta viðdvöl á Eyjafirði, alstaðar horfinn frá landinu nema hjer á firðinum. Bótin að ekki er hjer matvöruskort- ur enn. Reynandi að fá Matthías í tfma til að senda »Iandsins forna fjanda* eina kröftuga stöku. — Ágúst Flygenring fjell af hest- baki á Ieið heim til sín frá Rvk í síðustu viku og meiddist allmikið. Er sagt úr Rvk að hestur hans hafi lent á símaþræði og af því hafi slysið hlotist. Höfðu menn verið að gera við símann á þessum slóð- um, og álitið að þeir hafi lagt þráð- inn svona ógætilega frá sjer. — Njáll Ijet segja sjer þrem sinnum það er honum þótti mikl- um tíðindum sæta. f »íslendingi« er búið að skýra þrem sinnum frá þvi hvenær »Dagur« kom kom fyrst út—á sprengidag. Sýnilega hafa það þótt mikil tíðindi. Vissara væri þó að geta um þetta nokkrum sinn- um enn, ef ske kynni að það fjelli í gleymsku. — Enn hefir verið að því fund- ið í »Norðurlandic, að Dagur fiytti nafnlausar greinar; hefir hann því verið nefndur »dimmi« Dagur. Sumum mönnum er svo farið að þeim sýnast allir hlutir dimmir. »Nú gerast sólar litlir dagar,« sagði Axlar-Björn, og var þó glaða sólskin. Undarlegast að axla-birn- ir skuli vera í sjáifri »Hvítu her- sveitinni*. — Gamall maður, kominn í kör, var að lesa »Tímann« og'mælti við kunningja sinn, gamlan mann er hjáhonum sat: »Svona blað hefði þurft að vera til, þegar við vorum ungir, þá væri margt öðruvísi nú.« — Asahláku gerði hjer á mánu- dagsnóttina. Varð þá mikill vatna- gangur hjer á Akureyri. Flóði vatnið víða inn í kjallara, einkum á Odd- eyrinni, og olli skemdum. Sömu nótt flóði vatn inn í fjár- háa úti í Sandgerðisbóí og drap 12 kindur. Eigandi þeirra var Sig- urjón Jónsson, fátækur maður. — Ráðsmannaskifti verða í Caro- line Rest á næsta vori. Benedikt Einarsson lætur af því starfi, en við tekur Olgeir Júlíusson næturvörður, er fengið hefir veitingu fyrir því. Ástandið. Allir, sem komnir eru til vits og ára, muna eflaust eftir því, þegar fregnin uni Norðurálfuófriðinn barst þeim fyrst til eyrna. Það var í ágúst- mánuði 1914, á sólskinsbjörtum sumardegi, þegar flest ljek í lyndi, að fregnin ,flaug hraðara en logi yfir akur. Allir vissu að stórhætta var á ferðum, en hugguðu sig þó við, að ófriðurinn gæti tæplega stað- ið nema nokkra daga og í lengsta lagi 1 —2 mánuði. Enda höfðu hern- aðarfróðir fjármálamenn sagt það afdráttarlaust, að ófriður milli stór- velda álfunnar gæti ekki staðið lengi, vegna verðhækkunar á öllum hlut- um og annara óyfirstíganlegra örð- ugleika. Ótti og skelfing mundi hafa gagn- tekið alla íslensku þjóðina, ef henni hefði þá birst þessi sannleiksvitrun: Ófriðurinn stendur.minst í 4 ár. í honum lenda ekki einungis Rjóð- verjar og Austurríkismenn, Rússar, Frakkar og Englendingar, heldur og margar aðrar þjóðir Norðuráifunnar, stórar ög smáar, og auk þess mik- ill hluti Asíuþjóðanna, Ástralíumenn, þjóðir í Afríku og öll Ameríka. Með öðrum orðum: nálega allar menn-

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.