Dagur - 09.03.1918, Síða 3

Dagur - 09.03.1918, Síða 3
DAOUR. 11 ingarþjóðir heimsins. Ófriðarþjóð- irnar gera hlutlausum þjóðum mjög örðugt fyrir, hefta póstgöngur, banna vöruflutninga landa í milli og sökkva vöru- og fólksflutningaskipum í þús- undum. Annað skipið, sem þið eruð að Iáta smíða, mun brátt stranda og verða ónýtt, og þau skip, sem mest hafa verið í förum til íslands og annast flutninga fyrir ykkur, Vesta, Ceres Flóra o. fI., sökkva niður á mararbotn fullfermd af vörum. Auk þess kemur á þessu fjögra ára tímabili einn sá mesti frostavet- ur, sem nokkurn ykkar rekur minni til. Næsta sumar á undan þeim vetri bregst síldveiði með öllu, og seinni hluta þess sama sumars og að haust- inu verður svo mikil ótíð, að hey verða úti eða nást stórskemd, og eldiviður ónýtist að stórum mun. Pá verða og vörur stígnar svo í verði, að t. d. 1 smálest af kolum verður seld á 360 krónur. Víst er um það, að mörgum hefði hrosið hugur við vitneskjunni um það, að alt þetta kæmi fram, og að sjálfsögðu hefðum við talið víst, að ástandið á íslandi yrði orð- ið hræðilegt árið 1918. Hvernig er þá ástandið nú? í stuttu máli verður ekki annað sagt en að ástandið sje langt fram yfir allar vonir, þegar litið er til alls þess, sem á dagana hefir drifið á þessu 3—4 ára tímabili. Fáir munu hafa liðið tilfinnanleg- an.skort ennþá, þó mörg fjölskyld- an, einkum í kaupstöðum og sjáv- arþorpum, eigi örðugt uppdráttar. Hið opinbera hefir ekki þurft að hlaupa undir bagga með beinum fjárútlátum til einstaklinga svo telj- andi sje. Bústofn bænda og framleiðslu- tæki öll til lands og sjávar óskert og að líkindum fremur aukist, Að vísu hafa allmargir togarar verið seldir úr landi, en fjöldi annara skipa, einkum mótorskipa, hefir komist í eigu landsmanna, síðan stríðið hófst. Nú á landið skipastól, sem að mestu nægir til þess að flytja nauð- synjavörur að og frá landinu, en slíkir flutningar voru áður í hönd- um útlendra fjelaga. Ný verslunarsambönd hafa mynd- ast, þó önnur hafi farið forgörðum í bráð, og beinar ferðir komist á til Ameríku, sem vjer þráðum löngu fyrir stríðið. Verslun á ýmsum nauðsynjavör- um hefir færst í það horf, að land- ið og landsmenn yfirleitt hafa náð meiri og betri tökum á henni én áður; hún hefir með öðrum orðum dregist að nokkru úr höndum kaup- manna og ýmsra einstakra gróða- brallsmanna í hendur heildarinnar. Petta, sem nú hefir verið talið, og ýmislegt fleira þó, bendir á, að nú roði fyrir nýjum degi í áttina til sannrar menningar og raunverulegs sjálfstæðis vor íslendinga. Ressi breyting á versluninni og aðrar ráðstafanir lil tryggingar öll- um landslýð hefir þó komið af stað allmiklum deilum og flokka- drætti. Annarsvegar stendur landstjórnin og meiri hluti Alþingis að baki henni með hagsmuni þjóðarheildarinnar fyrir augum, en hinumegin íjöldi af kaupsýslumönnum, með flest blöð landsins á sínu bandi. Penna flokk fylla svo ýmsir gæðingar, og sumir þeirra þykjast eiga um sárt að binda, hafa t. d, fallið við þing- kosningar og þ. u. 1. og eru íillu skapi út af því. Þessi flokkur reynir af fremsta megni að telja kjark úr þjóðinni með því að mála ástandið sem svart- ast. Hann skellir allri skuldinni á þingið og núverandi stjórn. Varla hefir stjórnin gert nokkra ráðstöfun svo, að hún hafi ekki verið vítt af þessum mönnum. Jafnvel hefir þetta gengið svo langt, að ónotum og æsingum hefir til bragðbaítis verið sti;áð út á »guðsorðið« í prjedik- unarstólnum — sbr. Ólaf fríkirkju- prest — En að stuttum tíma liðn- um hefir þó hver þessi æsingatil- gj^r* Háhyrníngatennur kaupir Tryggvi Jónatansson Grundargötu 3. raun fallið niður, af því sýnilegt var að vel hafði verið ráðið. Ein- stakir þingmenn hafa verið lagðir í einelti, brígslað um 10 — 20 kr. of- hátt þingfararkaup, og lýsa þau brígsl frámunalegum smásálarskap. Pá hefir verið reynt að gera skuld- ir landsins sem ægiiegastar í aug- um þeirra, sém hræðast að heyra nefndar fjárupphæðir, er nokkru nema. En gæta verða menn þess, að svo mjög hafa peningar fallið í verði, að 15 milj. nú eru ekkí meira virði en 4 — 5 milj. voru fyr- ir stríðið. Megninu af skuldafjenu er og varið til skipa- ogvörukaupa og verður þannig til eflingar og sjálfstæðis þjóðinni. Pingið í heild sinni óg núver- andi landstjórn á annað skilið en þessar látlausu, frekjulegu árásir. Jegheld, að almenningur finni þetta, Ræð jeg það af því, hve »Tíminn« og nú síðast »Dagur« fá góðar viðtökur hjer úti um sveitirnar, þar sem jeg þekki til. Er það vottur þess, að alþýðan er enn ekki orð- in blinduð af öllu moldrykinu, sem þyrlað hefir verið upp. Kári. - Stórskaði — Gróðabrall. Nýr rithöfundur hefir birst í»ís- lendingi«. Hann nefnist »ÓIi«. Skrif- ar hann nú hverja greinina á fætur annari I blaðið, og alt jafngáfulegt! ViII hann hafa landsverslunina í forðabúrsstíl aðeins, og gera hana að þjóni kaupmanna. Með því fyrir- komulagi hefði landið tekið alla á- hættuna á sínar herðar og ljett henni af kaupmönnum, sem þó voru full- færir um að bera hana, af því þeir hafa grœtt svo mikið, eftir því sem Lögrjettu segist frá, »Dagur« hefir haldið því fram, að með þessw

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.