Dagur - 08.05.1918, Page 3

Dagur - 08.05.1918, Page 3
DAGUR. 27 — Sumarið rak hafísinn á flótta á þriðjudagsnóttina, fyrir viku síðan. — Sterling kom hingað á mið- vikudaginn. Nýlunda að sjá skip eggjast hjer að bryggju. — Látinn er í Bandaríkjunum íslendingurinn Bertel Högni Gunn- laugsson, nær áttræður að aldri. Hann dvaldi lengst æfinnar í út- Iöndum og fór víða um heim. Há- lærður maður, einkum í tungumál- um og fagurfræði. — Böðvar Bjarkan yfirdómslög- maður brá sjer til Rvíkur með Sterl- ing. Hvað kostar stríðið? Ró að mannlegum mætti sje það ofvaxið að svara þeirri spurningu með nokkurri nákvæmni, þá hafa samt verið gerðar tilraunir með að nálgast hið rjetta svar. Skal hjer í stuttu máli gerð grein fyrir þeirri niðurstöðu, er glöggir og reikningsvísir menn hafa kom- ist að um kostnað stríðsins fyrstu þrjú ófriðarárin. Fyrst eru þá bein útgjöld til hers og flota frá stórveldum Norð- urálfunnar. Sá reikningur lítur þann- ig út.: Stórbretaland . 66,960,000,000 kr. Frakkland . . . 55,178,640,000 — Ítalía ......... 11,700,000,000 — Rússland . . . 54,000,000,000 — Pýskaland . . . 76,680,000,000 — Austurríki . . ■ 45,000,000,000 — Samtals: 309,518,640,000 kr. Petta eru svimháar tölur, og eru þó ekki herútgjöld smáþjóðanna, er lent hafa í stríðinu, talin með. Sýni- fegt er hvílík fjármunaleg blóðtaka stríðið er fyrir ófriðarþjóðirnar. Langt um átakanlegra er þó hitt, að þjóðirnar fórna ógrynnum af mannslífum í styrjöldinni. Eftir því sem næst verður komist, hefir tala fallinna hermanna og örkumla allaæfi vegna stríðsins verið 6,500,000 að þremur fyrstu ófriðarárunum lokn- um Hið hagfræðilega tjón, sem af þessu leiðir, hefir verið metið: 91,260,000,000 kr., og þykir lágt reiknað. Þá er að líta á eyðileggingu á eignum, svo sem söfnum, húsum, brúm, járnbrautum o. s. frv. Vitan- lega verður sumt af þessu ekki metið í peningum að því leyti, að tjónið er óbætanlegt; má í því efni með- al margs annars benda á bókasafn- ið f Louvain og dómkirkjuna í Reims og aðrar byggingar í mið- aldastíl, sem nú eru í rústum. Samt sem áður hefir verið reynt að gera sjer nokkra grein fyrir þessu efna- tjóni og hefir það verið reiknað 9, 000,000,000 kr. Pá hefir líka tjón það, sem heims- verslunin og iðnaður hefir beðið af völdum stríðsins, verið metið 2,700,000,000 kr. Sjeu nú framangreindartölur lagð- ar saman, þá kemur í ljós, að strfðið, eftir þessum reikningum, hefir kost- að um þrjú ár: 412,478,640,000 kr. það er meir en 400 miljarðar kr. (1 miljarður er 1000 m.iljónir) Hjer er um svo háa tölu að ræða, að við getum enga grein gert okkur fyrir henni. Setjum svo, að þessi upphæð væri í 20 kr. gullpeningum.er fluttir væri í járnbrautarvögnum, og hver vagn bæri 10,000 kílógr. af gull- inu eða 10 smálestir, þá þyrftu vagnarnir að vera 16,632 að tölu. Sú vagnalest mundi verða yfir 100 km. á Iengd, eða meira en 5-föld leiðin frá Akureyri fram að Grund. Væri aftur á móti gull þetta lagt á hesta eftir íslenskri venju, 100 kg. á hvern hesti þá þyrftu hestarnir að vera að tölu 1,663,200, það er- meira en þrítugföld tala allra hrossa, sem til eru á íslandi, Sú hesta- lest mundi verða svipuð á lengd og öll strandlengja íslands inn á hvern fjörð og liverja vík. Á bak við þessar tölur er botn- laust hyldýpi hörmunganna. Nú er komið hátt á fjórða stríðs- árið og Bandaríkin komin í ófrið- inn. Tveir þriðjungar alls mann- kynsins standa í ófriðarbálinu. Styrjöld þessi er sannkallað heims- strlð. Daglega verja stríðsþjóðirnar 400 milj. kr., til þess að auka og margfalda bölið í heiminum. Hvar er hin kristna siðmenning? Á hún ekki heima á — Kleppi? (Að nokkru þýtt úr aBörseni) t Síra Friðrik J. Bergmann er dáinn. Jón Helgason biskup fjekk 15. f. m. símskeyti um, að síra Friðrik væri látinn snögglega og óvænt, sextugur að aldri. Óhætt má fullyrða að þessi dán- arfregn veki sáran trega í brjóstum fjölmargra íslendinga bæði vestan hafs og austan, svo mikil ítök átti þessi andríki gáfumaður í hugum manna og hjörtum. Hann var einn af þeim allra færustu rithöfundum íslenskum og sannarleg nautn að lesa ritverk hans, sem bæði eru mikil að fyrirferð og gæðum. Bók hans, Trú og þekking, sem út kom fyrir skömmu, er bókmentalegt stórvirki, Hann fylti flokk hinna frjálslyndu guðfræðinga. Væntanlegir til Rvíkur eru 3 ríkisþingmenn frá Danmörku, til þess að semja um fánamálið. Talið lík- legt að koma þeirra muni Iengja þingtímann. BJaðaeríndi. Austri ersokkinn, engum þó til skaða Árum sneiddur, kjörnu lœgi fjœr. Oleymska sjóar Suðra þiljur baða. Sauði Vestra Njörður kvika flær. ísafoldar tœmist töðuhlaða, Timans nýja brum i staðinn grær. Á nœturhimin norðurlenskra blaða Nú er runninn Dagur lágur en skœr. /. Þ.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.