Dagur - 19.07.1918, Qupperneq 4
48
því þangað til afrjetta, sem ó-
hugsandi væri að það geti slopp-
ið úr svo snemma á sumri að
tjóni geti valdið í bænum, svo
sem austur yfir Fnjóská eða út
á Flateyjardalsheiði.
Það má alls ei n líðasi að nota
bœjarlóðirnar, íúnin og garðana
sem afrjeiíarland.
Ef sú ráðstöfun, að flytja fje til
þessara afrjetta svarar ekki kostnaði
fyrir fjáreigendur, getur það ekki
svarað kostnaði að stunda fjárrækt
í bænum, því það er áreiðanlega
víst að fjenaðurinn, sem alinn er
hjer með þessu lagi, veldur meiru
tjóni á trjáreitum, túnum, görðum
og engjum, en því sem nemur
hagnaði eigendanna á fjenu.
L. /. Rist.
Grænlenskt vinnufólk.
íbúar Grænlands eru nú um 14
þús. kynblendingar Dana og Skræl-
ingja. Hreinir Skrælingjar eru naum-
ast lengur til, en á hinn bóginn
eru þeir kynblendingar fáir, sem
hafa hreint norrænt útlit. Pessir ný-
týsku Skrælingjar eru duglegir til
Iíkamlegrar vinnu, og þegar þeir
hafa lært einhvern starfa, afkasta
þeir ekki minna verki, en Norður-
álfumenn. F*eir eru góðir til sjó-
sókna, en kunnáttunni er að vonum
x nokkuð ábótavant þar eð þeir hafa
ekki önnur för en skinnfleytur.
Kaup þeirra er mjög lágt, og þeir
eru mjög nægjusamir. Danir hafa
enn ekki kunnað að hagnýta sjer
þenna vinnukraft, sem gæti fram-
leitt fyrir margar miljónir kr. á ári
t. d. við fiskiveiðar eða landbúnað.
Petta mál mundi liggja miklu nær
okkur íslendingum, sem mundum
færari að stjórna slíkri atvinnu.
Vinnulaun eru nú orðin svo há
hjer á landi, að það ætti að vera
gróðavænlegt að láta fólk vinna
kauplaust að kalla við lík eða betri
náttúruskilyrði á Grænlandi. Agóð-
inn mundi renna til ísiands, auk
DAGUR.
þess, sem slíkt landnám mundi
minka fólksekluna á íslandi. Rjóð-
artekjur vorar og þjóðarauður mundi
vaxa og fleiri hendur hjálpast til að
skapa vaxtarmöguleika fyrir íslenskt
þjóðvald og íslenska menningu.
Samtíningur.
— Ritstjóri þessa blaðs kom heim
úr Reykjavíkurför um síðustu helgi.
— Skáldið Einar H. Kvaran dvel-
ur hjer í bænum um þessar mundir.
Síðastl. sunnudagskvöld hjelt hann
fyrirlestur í samkomuhúsinu um
»Mikilvægasta málið í heimi.« Svo
föstum tökum náði fyrirlesarinn á
hugum áheyrendanna, að lengra
verður ekki komist.
— Kvöldmessa fór fram í Akur-
eyrarkirkju á miðvikudagskvöldið,
hófst hún kl. 9. Geir víxlubiskup
stóð fyrir altarinu, en Haraldur pró-
fessor flutti prjedikun.
— Stórstúkuþing var haldið í Rvík
dagana 8.—11. f. m. Síra Magnús
Jónsson háskólakentiari flutti ræðu
í dómkirkjunni áður til þings væri
gengið. Rótti ræðan hin (merkileg-
asta og hefir komið út á prenti. Þá
daga sem þingið stóð gáfust út-
breiðslusjóði á annað þúsund kr.
— Kandidat Steinþór Guðmunds-
son í Hafnarfirði hefir fengið veit-
ingu fyrir skólastjórastöðunni við
barnaskóla Akureyrar. Auk hans sóttu
um stöðuria sr. Sig. Guðmundsson á
Ljósavatni, Guðm. Olafson “kennari
í Skógum og Lárus Bjarnason kenn-
ari í Hafnarfirði.
' — Samninganefndirnar, hin danska
og hin íslenska, fóru sunnudaginn
7. þ. m. til Þingvalla í bifreiðum.
Með í förinni voru einnig ráðherrarn-
ir, forsetar Alþingis og formenn full-
veldisnefnda. Pá voru og með f för-
inni Jón Aðils sagnfræðingur og Sig-
fús Blöndal bókavörður, til þess að
skýra fyrir gestunum það markverð-
asta á þessum stöðvum. Fanst dönsku
nefndarmönnunum mikið til um hina
einkennilegu náttúru á þingvöllum.
— Hinn 3. þ. m. vildi það slys
til að Járngerðarstöðum f Grindavík,
að húsfreyjan þar, Valgerður Sæ-
mundsdóttir, hrapaði ofan í þvotta-
laug og druknaði. Hafði hún verið
ein að þvo við laugina, en. laugin
í djúpum hraunkatli. Kona þessi var
systir Bjarna Sæmundssonar kennara
við Mentaskólann.
— Guðmundur skáld Friðjónsson
á Sandi hefir utn tíma dvalið í Rvík
og er nýlega heim kominn úr þeirri
för. Flutti hann nokkur erindi í höf-
uðstaðnum og var mikill rómur að
ger. Einnig var honum boðið á í-
þróttamót að Rjórsártúni og fluttr
hann þar tölu. Samsæti var honum '
haldið í Rvík. Guðmundur brá sjer
hingað til Akureyrar fyrir síðustu
helgi og hjelt hjer fyrirlestur á Iaug-
ardagskvöldið, sem mikið er lofaður.
— Sigþór Magnússon verslunarm.
á Siglufirði er nýlega Iátinn úr blóð-
eitrun. Sigþór sál. var ungur og
efnilegur maðúr og hvers manns
hugljúfi.
— Grásvöxtur er sagður óvenju-
lega rýr hvaðanæfajaf landinu. Jörð-
in skemd eftir vetrarfrostin og þar
á ofan bætist kuldatíðin síðari hluta
vorsins, að minsta kosti hjer norð-
anlands. Sláttur er í þann veginn
ap byrja hjer um sveitir og á nokkr-
um stöðum þegar byrjaður. Töðu-
fall víðast talið muni verða þriðj-
ungi minna en venjulega og alt að
helmingi minna á sumum stöðum.
— Ársæll Árnason í Rvík hefir
keypt Eimreiðina að dr. Valtý Guð-
mundssyni og fer að gefa hana út
í Reykjavík. Ritstjóri hennar verður
sr. Magnús Jónsson háskólakennari.
— Nýja sókn hafa Þjóðverjar
hafið á vesturyígstöðvunum og sögð
hin ofsalegasta.
Gjalddagi blaðsins
var 1. júlí.
Áskrifendur mega skrifa andvirði
blaðsins inn í reikning þess í
Kaupfjelagi Eyfirðinga.
Prentsmiðja BjörnS Jónssonar.