Dagur - 10.09.1918, Side 3
DAGUR.
67
hugurinn geti ekki gripið það, og
á meðan verður sannleiksþráin að
vera Ieiðarljósið, sem við fylgjum.
Þegar okkur verður þetta Ijóst,
hlýtur í raun og veru að hvgrfa af
sjálfu sjer einn hinn algengasti galli
í fari manna, umburðarlyndisleysið
• við aðra menn og þeirra skoðanir.
Við getum ekki ætlast til eða heimt-
að, að aðrir menn hafi sömu skoð-
anir eins og við sjálf, svo sannar-
lega sem þeir standa annarstaðar
en við gerum. Hjer eiga þessi orð
ritningarinnar vel heima: »Hver ert
þú, sem annarlegan þjón dæmir,
hann stendur eða fellur sínum
hærra.« Rað eina, sem við því eig-
um að berjast á móti, er kyrstaðan,
sjálfra vor og heimsins í heild sinni,
því hún er í eðli sínu barátta á
móti framþróununni, móti vextinum.
Einhver hin mesta hætta í lífi
hvers einstaklings er því það, að
stirðna upp í gömlurn kenningum
og skoðunum, þó þær kunni ein-
hverntima að hafa verið honum
hollar og hjálpað honum til að
vaxa. Hann á þá á hættu að verða
að nálttrölli, sem ekki þolir dags-
ljós nýrra sanninda. Slíkt getur alla
hent og hendir altaf, þar sem lífið
er ekki í sífeldri hreyfingu áfram, í
eilífri leit eftir fullkomnari og full-
komnari sannleika. Ress vegna er
hverjum manni svo nauðsynlegt að
gæta þess, að sál hans verði ekki
að köldum og fúium stöðupolli
gamalla erfikenninga og staðhæfinga.
Reynum heldur að Iíkjast litla lækn-
um, sem þrátt fyrir allar hindranir
stöðugt brýst áfram og nær að síð-
ustu takmarki sínu, hafinu, sem tek-
ur jafnvel á móti öllum lækjum,
þó þeir komi úr ólíkum áttum, hafi
ferðast um ólík hjeruð og hafi ólík-
ar ferðasögur að segja. f
Viðkvæma íaugirs.
Ritstjóri »íslendings« reynir af
sínum veiku kröftum að berja það
niður í blaði sínu, að hægrimenn
beini nú örvum sínum að Magnúsi
alþm. Kristjánssyni á bak og í Ieyni.
Hinu treystir hann sjer ekki til að
neita, að þeir hafi rægt Sigurð Jóns-
son ráðherra, út af Tjömesférð hans
í fyrra. Aftur á móti heldur hann
því fram, að Gísli Sveinsson hafi
ekki vakið tilbúninginn upp frekar
en aðrir þeir, er sæti áttu í ijármála-
nefnd Néðri deildar. Vill þá ritstjór-
inn neita því, að Gísli Sveinsson
hafi samið áiitið, þó að hinir nefnd-
armennirnir hafi líka skrifað undir
það ? Úr því svo var, sýnist ekki
óviðeigandi að kenna »plaggið« sjer-
staklega við G. S. v
»íslendingur« vill fá að vita, hvaða
hægrimenn vilji vinna M. Kristjáns-
syni mein í myrkrinu. Rað er fljót-
iega hægt að benda á einn. Hann
heitir »Áki». Reir, sem nánar vilja
vita deili á þeim pilti, gela snúið
sjer til ritstj. ísl., sem áreiðanlega
getur gefið nánari upplýsingar um
hann, Annars skal þess getið, að
skygnir menn hafa þótst sjá honum
bregða fyrir sem smámynd af rit-
stjóra íslendings sjálfs.
Eftirtektavert er það, að þegar
minst er á ávirðingar hægrimanna,
er eins og komið sje við opið sár
á íslendingi. Hún er víst afar við-
kvæm taugin þar á milli I
Öfugmælin.
»Sama þokan« er fyrirsögn á grein
einni í »íslendingi«, og undir henni
stendur »Áki«. Greinin er full af
Ijótum dylgjutn um landsstjórnina
og störf hennar, meira að segja gef-
ið í skyn, að erfiður hagur verka-
manna í Reykjavík sje af völdum
stjórnarinnar. Ennfremur að Magnús
Kristjánsson alþm. hylmi yfir með
stjórninni og vilji ekki gefa neinar
upplýsingar um óhæfuverkin.
í sama tölublaði íslendings er rit-
stjórnargrein, þar sem því er haldið
fram, að enginn rógur eigi sjer stað
hjer um hr. Magnús Kristjánsson.
Er hjer heldur óvarlega að farið af
blaðinu, að færa sönnur á það í
annari greininni, sem verið er að
mótmæla í hinni.
Þessi öfugmæli í íslendingi minna
á kveðling Kristjáns Jónssonar, sem
endar á þessu:
»Jeg um aila jörð er frægur.
Jeg hef aldrei verið til.«
Þingfregnir.
Sambandslögin voru afgreidd frá
þinginu í gær. Benedikt Sveinsson
og Magnús Torfason greiddu atkv.
á móti, hinir allir með.
Tillögu til vantraustsyfirlýsingar
gegn atvinnumálaráðheria og fjár-
málaráðherra fluttu þeir sr. Sig. Stef.
og Halldór Steinsson. Tillagan var
rædd í sameinuðu þingi í gær og
stóðu umræður fram yfir miðnætti.
Voru þær hinar fjörmestu og leiddu
þeir éinkum samanhesta sína sr. Sig.
Stef. og fjárn álaráðherra. Ræðurnar
höfðu þó verið nokkurnveginn kurt-
eisar að undanleknum ræðum þeiira
Jóns á Hvanrá og Halld. St. Fyrir
hönd Heimastjórnarflokksins bar
Guðm. Björnson fram tillögu til
rökstuddrar dagskrár, þar sein ekki
var talið hlýða að breyta til um
stjórnina með skýrskotun til sam-
bandsmálsins. Dagskráin var sam-
þykt með 20 atkv. gegn 12 og
vantraustsyfirlýsingin þar með fall-
in. Ressir 12, er atkv. greiddu,
gegn dagskránni, voru: Einar Arn.,
Gísli, Magnús P., Magn. G., Björn
Kr., Kristinn, Jón Hvanná, Sig. Sfef.,
Halld. St., Eggert, Hákon og P.
Ottesen. Ráðherrarnir þrír greiddu
ekki atkv. Sömuieiðis ekki Bene-
dikt og M. Torf. vegna sambands-
málsins. Einar J. og Björn St ekki
viðstaddir. Pórarinn ekki á þingi.
Þingi slitið í dag.
Kaupfjelags-
menn!
Vegna þrengsla verður eigi
hægt að taka á móti haustull
í Kaupfjel. Eyf. fyrir 1. nóv.
4
S. Kristinsson,