Dagur - 17.12.1918, Blaðsíða 2

Dagur - 17.12.1918, Blaðsíða 2
94 DAGUR. nú ríkir, er því af skiljanlegum og eðlilegum rótum runnin. En því verður að treysta að hjer sje aðeins um stutt millibilsástand að ræða og að þjóðin losni undan farginu áður en langt um líður. Er þess nú full þörf að á íslendingum sann- ist orð Gríms Tomsens, að þeir reynist »þjettir á velli og þjettir í lund, þolgóðir á raunastund.* Pá fer ekki hjá því, að kyrðar- mókið hverfur skjótt, og heilbrigð- ar lífshræringar fara að gera vart við sig. Ufstækisfullan og fyrir- hyggjulausan byltinga- og uppreisn- aranda, sem nú bryddir mjög víða á í umheiminum, ættum við að forðast af fremsta megni. Ný tillaga. Á siðari árum hefir allmikið ver- ið um það rætt, bæði hjer á landi og þá ekki síður í nálægum menn- ingarlöndum, að koma beri í veg fyrir það, að börnum og ungling- um takist að ná í tóbak. Sjerstak- lega hefir mörgum kennurum og þeim, sem um uppeldismál hafa fengist, verið þetta áhugamál, vegna skaðvænna áhrifa þess á börnin. Stungið hefir verið upp á því, að hjer á landi yrðu samin lög eða reglugerðir, er bönnuðu sölu á tó- baki til unglinga, líkt og á Englandi. En hætt er við að slík lög kæmu hjer eigi að tilætluðum notum eins og allri löggæslu er nú háttað í landinu. Þetta mál er vissulega þess vert, að því sje meiri gaumur gefinn en gert hefir verið, ekki einasta vegna hinna skaðvænu áhrifa tóbaksins á hina uppvaxandi kynslóð, heldur og vegna alls þess óþrifnaðar, sem af tóbaksnautninni stafar, og þess ó- grynni fjár, sem árlega er fleygt út úr landinu fyrir þessa vöru, sem sýnilega kemur ekki neinumað gagni. Að sjálfsögðu hafatóbaksbindind- isfjelögin það fyrir markmið að út- rýma tóbakinu með öllu úr landinu, en bæði eru þau fá og fámenn, og þá oft helst unglingar, sem lítið geta látið til sín taka, svo ekki er von að þau komi öðru til leiðar en verja sína fjelaga. En jeg er þess fullviss, að til er mikill fjöldi af tóbaksneytendum í landinu, sem mjög gjarnan vill styðja tóbaksbindindisfjelögin að því markmiði þeirra, þótt þeir af eðli- legum ástæðum ekki geti verið í fjelagsskapnum. Jeg er einn þeirra manna, og leyfi mjer því að koma fram með tillögu í þessu máli, sem jeg svo skal rök- styðja lítillega. Tillaga mín er á þessa leið: 1. Að tóbak verðí einungis selt eftir kortum, likt og nú ttðk- ast um nauðsynjavöru. 2. Engir skulu fá tóbakskort inn- an 16 ára aldurs ogekki aðrir en tóbaksmenn. 3. Peir, sem eigi fá tóbakskort við fyrstu útbýtingu, efiir að lög hjer um gengju l gildi, fá þau aldrei siðar. Tillögunni hefi jeg skift í þrjá liði, sem fará misjafnlega langt, því vera má, að mörgum þyki nægilegt að fara ekki lengra í fyrstu en það sem fyrsti og annar liður nær. En þeir eiga að fyrirbyggja að ungling- um geti tekist að ná í tóbak. Með 3. liðnum er tilgangurinn sá að út- rýma tóbakinu alveg á 60 — 70 ár- um, sem jeg tel hið æskilegasta. Lög, sem bygð væru á slíkum grundvelli, ættu allir að geta felt sig við. Þau yrðu engum til meins. Hinir eldri fengju tóbak eftir þörf- um, meðan þeir eru uppi, en eng- um, sem ekki hefir vanið sig á tó- bak, gefst kostur að ná í það nema hjá öðrum, sem hefur kort. En að farga kortum til þeirra, eða gefa þeim tóbak, ætti að varða við lög. Ekki skil jeg í öðru en að öllum for- eldrum ætti að vera þetta fagnaðar- efni, Flestir foreldrar, jafnvel þó miklir tóbaksneytendur sjeu, vilja ekki láta börn sín venja sig á slík- an skolla, sem tóbaksnautn er. Fyrstu árin eftir að lög um þetta gengju í gildi, mundi landssjóður- urinn og tóbakskaupmenn ekki verða fyrir tilfinnanlegum tekjumissi af tollinum og verslunarágóða. En brátt færi hann minkandi eftir því sem tóbakskarlarnir dæju út, en á því tímabili ætti að vera hægt að fá aðra heilbrigðari tekjustofna og at- vinnu. Tóbakinu væri útrýmt úr landinu, þegar þessi kynslóð væri dauð, sem nú Iifir, og væri þá með sanni þægt að segja, að hún hefði ekki til einkis lifað. Eftirlit með því að slík lög yrðu haldin ætti ekki að verða mjög erf- itt. Engum mun vera það kapps- mál að kenna öðrum að neyta tó- baks eða fá aðra í fjelag við sig til þess að gleðjast í því líkt og vín- inu. Kortunum mundi því tæplega fargað mikið til þeirra, sem ekki mættu fá þau. Gætu unglingarnir á einhvern hátt aflað sjer tóbaks, yrði það tæplega nema lítið, svo ekki kæmi að sök, því nokkrum tíma og erfiðleikum er það bundið að venja sig svo á það, að menn verði þrælar þess. Ungum mönn- um, um tvítugt, er mest hætta búin og það alt upp undir þrítugt, en úr því eru flestir orðnir svo fastir í rásinni, að þeir fara ekki að venja sig á það, ef þeim hefir tekist að verjast þangað til. Reim mundi líka verða það ljóst, að það kæmi þeim sjálfum í koll, ef þeir vendu sig á það, því að kort fengju þeir aldrei.. Að sjálfsögðu hefði ríkið eftirlit með innflutningi á tóbaki og tó- bakssölu, eða tæki tóbakssöluna alveg í sfnar hendur eins og áður hefir verið stungið upp á. Rað á- kvæði sölustaði, sem ættu að fækka, Ijeti búa út kortin og fseli síðan hreppsstjórum eða öðrum lögreglu- stjórum að útbýta þeim í sínum umdæmum. Jeg'sje mjer ekki fært að fara um þessa tillögu fleiri orðum að svo stöddu, því í lítilli blaðagrein er ekki hægt að taka fram hin ein- stöku atriði, sem ættu að verða reglugerðar- eða lagaákvæði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.