Dagur


Dagur - 25.05.1920, Qupperneq 3

Dagur - 25.05.1920, Qupperneq 3
DAGUR. 19 manna, er efla vilja vísindi og listir, bæta mentunina og hlúa að uppeldis- málunum. Öll samtök, er miða í þá átt að koma málum þessum áleiðis, eru bjartir sólskinsblettir í lífi þjóðarinnar, en irúarvakning og efling siðgceðislifsins er þó öllu öðru ofar. Þessvegna undrar það mig, að eklcert sérstakt tímarit skuli til vera, sem aðallega eða eingöngu vinnur í þessa átt. Nú eru það prestarnir, er sérstaklega hafa það veglega verk með höndum að glæða trúarlífið meðai þjóðarinnar og lyfta siðgæðinu á hærra stig. Undar- legt má það virðast, ef þeir ekki finna hvöt hjá sér til þess að hafa sitt sér- staka málgagn, þar sem þeir í samein- ingu leituðust við að efla og útbreiða guðsríki á landi hér. Með þannig lag- aðri samvinnu ættu þeir líka að geta styrkt hvern annan í starfi sínu og leið- beint hver öðrum. Rað er ilt til þess að vita, að kristindóms- og trúmálunum í heild sé sýndur minni sómi en land- búnaði og sjávarútvegi, og hinir and- legu ieiðtogar þjóðarinnar, prestarnir, ættu ekki síður en læknar og lögfræð- ingar að ræða áhugamál sín frammi fyrir allri þjóðinni. Mikið má það vera, ef þessir stórt hundrað prestar Iandsins, eða hvað þeir eru nú margir, væru ekki í sameiningu færir um að gefa út kirkjulegt tímarit, sem til verulegrar uppbyggingar og sálubótar gæti orðið mörgum manni. Hversvegna gera þeir þetta ekki? tf til vill liggur skýringin í því, að þeir fyrir fátæktar sakir treystist ekki til að ráðast í slíkt fyrirtæki. Þeim hefir að vísu verið smánarlega launað að þessu. En mikið má góður vilji og samtök, Mér er líka nær að halda, að útgáfa slíks tímarits, er vel væri til vandað á allan hátt, gæti fjárhagslega borið sig, en ef það reyndist ekki, mundi þá ekki fjárveitingavaldið hlaupa undir bagga? Aldrei setti þ a ð landið á hausinn. Pungir harmar steðjuðu að kunningja mínum eitt sinn. Honum datt í hug að hafa tal af presti sínum í þeim vænd- um að leita þar huggunar og trausts, gerði tvær atrennur, en fékk í hvort- tveggja skiftið sama svarið: Presturinn sefur: S^gan er sönn, en hún er ekki sögð til ámælis neinum, en víst er um það, að allur ótímabær svefn er skaðlegur. Einkum þurfa prestarnir að vera vel vakandi — betur vakandi en allir aðrir. Ármann i Felli. Aths. Grein þessi var Degi send og vill blaðið ekki láta hjá líða að birta hana, enda þótt niðurlag hennar sé að því leyti bygt á misskiiningi, að tímarit það, sem höf. kvartar sérstaklega um að vanti, er til, þótt það mætti vera stærra eða koma oftar út. Þetta rit er Prestafé- lagsritið, sem hóf göngu sína í sumar sem leið, undir stjórn Sigurðar P. Sí- vertsen. Rit þetta er ársrit, gefið út að tilhlutun og á ábyrgð prestafélagsins, eins og nafnið bendir til, og á að fjalla um kristindóms og kirkjumál, Fyrsta heftið er 10 arkir að stærð, og vandað að öllum frágangi. í því eru fyrirlestrar og ritgerðir eftir 8 guðfræðinga, flest erindi, flutt á prestastefnum síðustu árin. Degi er það ánægja, að geta bent Ár- manni í Felli og öðrum, sem hugsa á líka leið, á rit þetta, og væntir blaðið þess, að ritið færi þeim eitthvað af því, sem þeir þrá heitast að lesa um. En það, að Ármanni í Felli skuli vera ó- kunnugt um, að Prestafélagsritið er til, virðist benda á, að eitthvað sé í ólagi með útbreiðslu þess, enda muii ritið miklu minna útbreitt en skyldi. Prest- unum mun hafa verið sent það, og falið að útbreiða það, en til bóksala eða annara útsölumanna hefir það líklega ekki komið, og fremur lítið hefir verið um það skrifað í opinberum blöðum. Pað er því ekki nema eðlilegt, að ritið fari framhjá mörgum. Ofanrituð grein er Degi kærkomið tækifæri til að benda lesendum sínum á Prestafélagsritið og gefa því sín beztu meðmæli. Peir, sem vilja afla sér þess, þurfa vafalaust ekki annað cn leita til sóknarprests síns. Reglur um sölu lyfja sem áfengi er í, hefir landlæknir selt 15. þ. m. og ganga þær í giidi 1. júní næstkornandi. Eru þar ýmsar breytingar gerðar á eldra skipu- lagi, í þeirn tilgangi, að fyrirbyggja, að menn geti fengið áfengi til drykkjar í Iyfjabúðuin, nema brýn nauðsyn sé fyr- ir hendi, og skerpt mjög eftirlit með lyfseðlum, sem hljóða upp á áfengi. Skulu hér talin helztu atriði reglugerð- arinnar, þau er nýmæli geta talist, Lyísalar og Iæknar skulu senda Hag- stofunni afrit af öllum beiðnum sínum um leyfi til innflutnings á áfengi. Lyfsölum og læknum er óheimilt að selja ómengað áfengi, hvorki óblandað né blandað öðrum efnum, til nokkurra annara afnota en lækninga, sjúkdóms- rannsókna og annara iðkana á læknis- visindum, og læknum stranglega bann- að að Iáta af hendi lyfseðil um áfengi í þeini tilgangi að það verði öðruvísi notað. Ekkert áfengi má afhenda gegn lyf- seðli, sem er orðinn vikugamall. Lyfjabúðir skulu halda áfengisbók, sem innfært er í daglega alt áfengi, sem selt er. Skal þar tekið fram hvenær lyf- seðill er dagsettur, nafn læknis, sem gefur hann út, nafn viðtakanda og heim- ili. Skulu lyfseðlarnir tölusettir um leið og þeir eru færðir inn í bókina. Skal Hagstofunni tilkynt um hver mánaðar- mót hve mikið áíengið hefir verið selt síðasta mánuð í hverri lyfjabúð og skal afrit af áfengisbókinni látið fylgja með þeirri skýrslu. Ennfremur skulu lyfsal- ar tilkynna hve mikið áfengi þeir hafa fengið þann mánuð. í skýrslunni fyrir desember skulu þeir einnig telja fram birgðir þær er þeir hafa í vörzlum sín- um. Ofantalin fyrirmæli gilda og um lækna þá, er lyfjasölu hafa á hendi. Lyfseðla fyrir áfengi og lyfjum sem áfengi er í skulu Iæknar gefa út á sér- stökum eyðublöðum er þeir fá hjá lög- reglustjóra. Geta læknar 'fengið 50 eyðublöð í einu. Skulu lyfseðlarnir tví- ritaðir, og er annað eititakið afhent lög- reglustjóra. Á seðlirium skal taka fram hvernig lyfið skuli notað, nafn þess og þyngd og nafn, stöðu og heimili sjúkl- ingsins. Ef læknar skila ekki lögreglu- stjóra afritum af lyfseðlunum fá þeir ekki ný eyðublöð. Læknir má ekki ávísa neinum meiru en sem svarar 200 gr. af spíritus eða 300 gr. af koníaki eða 670 grömmum af öðrum vínum, sem talin eru á lyfjaskrá. Sama manni má ekki ávísa áfengi fyr en 3 dagar eru liðnir frá því að hann fékk síðast afhent áfengi. Með reglum þessum eru úr gildi num- in eidri fyrirmæli um sama efni, frá 21. okt. 1908 og 9. jan. 1915. ( Skipafregnir. E.s. Gullfoss kom hingað í gærmorg- un fullur farþega og fór aftur í gær- kvöld. Fjöldamargir Reykvíkingar voru með skipinu á leið til útlanda. Allmargt fólk kom einnig hingað; þar á meðal J. E. Bergsveinsson kaupmaður og Hans Eitiarsson kennari. Guðmundur Bergs- son póstmeistari, Guðrún Björnsdóttir garðyrkjukona o. fl. Skipið hafði meðferðis allmikið af steinolíu og eitthvað af öðrum vörum. Steinolían kemur sér vel, því hún hefir verið af skornum skaniti undanfarið. E.s. Willemoes korn í dag frá Aust- fjörðutn og útíöndum. Á skipinu er ekkert farþegarúm, samt voru 18 far- þegar nteð frá Kaupmannahöfn og marg- ir af austurhöfnunum. Meðal farþega hingað voru: Ásgeir Pétursson kaup- maður, Guðrún Tulinius ungfrú, Har- aldur Björnsson verzlunarmaður, Pór. B. Guðmundsson kaupmaður á Seyðis- firði o. f!. Sterling fór frá Reykjavík á sunnudagsmorg- un, væntanlegur hingað um næstu helgi. Kora um það bil að koma til Reykja- víkur. Hættan er nú sú, að aftur gleymist það, sem lærðist í styrjöldinni, að gömlu til- finningarnar vakni á ný — eins og far- ið er að koma í ljós — og komi stétt- unum til að vekja upp gamlar væring- ar, í stað þess að vinna sem bræður. Pað er þessi hætta, sem ógnar friðnum, og sem veidur því, að ein tegund ó- friðar tekur við af annari. Baráttan milli stéttanna er engu siður ægileg en styrjöld þjóðanna; ef til vill ennþá verri, því hún gerir að engu tilfinninguna um sameiginlega ættjörð, sem er nauðsyn- leg undirstaða alls bræðralags. Nú ríður á að sýna, hvernig hægt er að halda einingartilfinningunni í gegnum þær róstur, sem ganga yfir áður en friður- inn næst. Við verðum að sjá hugsjón- ina — bræðralagshugsjónina — skýra framundan. Við verðum að reyna að samrýma bræðralagslögmálið í öllum geinum félagslífsins, í stað þess að ber- ast á banaspjótum. Bræðralagið er nátlúrulögmál. En við megum heldur ekki gleyma, að til eru önnur náttúrulögmál, sem eigi má ganga framhjá. Okkur verður að vera það ljóst, að því aðeins reisum við höll, sem staðist getur eldraunir tímanna, að við þekkjum náttúrulögmálin og fyigj- um þeim á réttan hátt. Og það er ekki til neins að tala um bræðralag, nema við um leið reynum að laga sam- líf okkar eftir því í öllum greinum, og skiljum um leið, að við verðum að taka tillit til annara lögmála, ef okkur á að takast að leiða bræðralagshugsjónina í franikvæmd I lífinu. Réttlætið er líka náttúrulögmál, þó ýmsum finnist, að það geti ekki sam- rýmst bræðralaginu. Vararanleg félags- skipun verður að byggjast á réttvísi, og hún er eitt af skilyrðum þess, að bræðra- lagið geti þróast og dafnað. Nú þegar eru til margskonar bandalög, bræðra- lagssamtök á vissum sviðum. Vinnnveit- endurnir hafa myndað samtök fyrir sig, og verkalýðurinn annars vegar. Til eru hjálpar og góðgerðafélög, og samtök af öllu tægi. En það, sem okkur vantar, er citt heildarbræðralag tneð hverri þjóð, og svo tneð tfmanum bandalag milli þjóðanna, þangað til mannkynið að lok- um verður eitt allsherjar bræðralag. Pessvegna verður bæði réttvísin og kær- leikurinn að ráða í öllum athöfnum vorurn, og þetta tvent er í framkvæmd- inni ekkert annað en tvær hliðar sama lögmálsins. Sannur kærleikur er það sama og sötin réttvísi. En hvað er þá það, sem kallast réltvísi t athöfnum niannamia? Pað er þétta, að hver eiu- asti maður fái það, sem honum ber, að sérhver lifandi vera nái því, sem hún á tilkall til. Og mælikvarðinn á það, hvað hverjum ber, er á aðra hlið þörf hans, og á hina hliðina gagn það, er hann vinnur mannkyninu. Pessu tvennu verður að gefa gætur. Sérhvert barn á tilkall til að alast upp við þau lífskjör, að allir þeir hæfileikar, sem það hefir flutt með sér í þetina heim, nái fullum þroska. En þegar við reyn- um að hjálpa meðbræðrum vorum, þá verðutn við að gæta þess mjög vand- Iega, að blanda ekki réttvísinni saman við það, sem í daglegu tali er nefnt góðgerðasemi, Góðgerðasemin getur engan veginn komið í stað réttvísinnar. Eg er hrædd um, að hugmyndir manna um þetta efni séu nokkttð á reiki. Pessvegna ætla eg að koma með dæmi, sem margir líklega hneykslast á t fyrstu. Nú á dög- um eru menn mjög hneigðir til ýmis- konar hjálparstarfsemi, og er það í alla staði gott. Stundum kemur þessi til- hneiging fram í því, að stofnuð eru líknar og mannúðarfélög, sem eru mjög gagnleg og fögur fyrirmynd. En það er ein hlið hjálparstarfseminitar, sem oft er metin skakt, það er, þegar vinnu- vcitandinn kemur á cða telutr þátt í mannúðarstarfsemi meðal þeirra manna, setn vinna hjá honum. Fljótt á litið finst mönnum það einstaklega hróss vert, að maður, sem grætt hefir auð fjár, notar einhvern hluta hans, til að hjálpa þeim, sem hafa aflað honum þessara auðæfa. Mönnum finst það vera svo einstaklega fallega gert af honum, að reisa trjáskreyttar borgir, koma á fót skólum og lestrarstofum, að gera alt hugsanlegt fyrir vinnulýð sinn, og gera það alt í bezta tilgangi. Pegar menn rekast á svona »dásamlegan mann«, »ágætan húsbónda«, þá finst mönnum það svo sjálfsagf, að hann sé hafinn til skýjanna, í samanburði við »slæma hús- bóndann«. (Meira.) Inflúenzan er nú sögð mjög í rénun í Reykja- vík, en gengur um Akranes og Borgar- nes, og eitthvað ttm sveitir syðra. SóttL vörnum er nú hætt hér og á flestum höfnum norðanlands, enda reynist veik- in mjög væg, hvar setn hún kemur. Páll Zófoníasson kennari frá Hvanneyri, er orðinn skólastjóri á Hólum og tekur við bú- inu þar í vor. Er hann sjálfur sestur á staðint*i, ’en fjölskylda hatts væntanleg tneð Sterling.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.