Dagur


Dagur - 18.08.1920, Qupperneq 3

Dagur - 18.08.1920, Qupperneq 3
DAGUR. 67 Símskeyti. .1 Rvík 11. ágúst. Bandamenn eru sammála um að styðja Pólland heraðarráðum, hergögnum og ef til vill herráð- stöfunum á sjó en ekki með lið- styrk á iandi. Bolsévíkar hafa heft samgöng- ur við Varsjá og Danzig. Ensk blöð hyggja enga hættu á stríði ef Bolsévíkar vilji ábyrg- jast Póllandi sjálfstæði. Rvík 17. ágúst. Pólland er reiðubúið að semja frið. Bandamenn hafa lagt vopna- hléssamningana fyrir bandamenn. Þar er sjálfstæði Póllands viður- kent. Akvæði um að pólskum her skuli fækkað ofan í 50 þús. og allar hergagnasmiðjur séu' lagðar niður. Enskir og franskir verkamenn hóta allsherjar verkfalli, ef banda- menn ráðist á Rússa. Bolsévíkar hafa samið fullnað- arfrið við Eistur, Letta og Lit- hauenbúa. Lloyd George ráðleggur Pól- verjum að taka friðarkostum Bol- sévíka. Bandaríkin vilja endurreisa Stór- Rússland með öllum landamæra- löndum nema Póllandi og Finn- landi. Finnar og Rússar hafa undir- skrifað vopnahléssamninga. Samsæri hefir uppgötvast í Bretlandi um að ráða Lloyd Ge- orge af dögum. Venizelos hefir verið sýnt bana- tilræði, en særðist lítið eitt. Bolsévíkar hafa tekið Ulma og Pulturk og barist um Varsjá. Ungverjar hafa boðið Pólverj- nm herstyrk, ef þeir fái eitthvað fyrir snúð sinn. Mælt er að auðvaldssamband Miðevrópu sé stofnað og hafi boðið Ungverjum hjálp, ef þeir vilji veita Pólverjum lið. Sam- bandið stofnað gegn Bolsévíkum. Mælt er að Frakkar dragi sam- an her á Rínarbökkum. Rússar og Pjóðverjar semja um fjármálasamband. Sveinn Björnsson orðinn sendi- herra íslands í Kaupmannahöfn. Fréttarii. Dags. Úr öllum áttum. Horfurnar eru hinar ískyggileguslu uin íslenzka verzlun í náinni framtíð. Hver farmur eftir annan er fluttur inn, en á aðra hönd verður sífelt erfiðara að fá uokk- uð ílutt úr iandi af peningum til lúkn- ingar skuldum og söluhorfur á íslenzkri framleiðslu eru hinar hræðilegustu. UlHn er enn óseld. Ekkert boð fæst, sem er nándar nærri viðunanlegt. Ketið. Söluliorfur á því eru ekki glæsilegar. Gizkað á að bændur fái 75 aura fyrir pundið. Hrökkva þá dilkarnir skamt til að borga tilkostnað við búskapinn. 9 vikna kaupamaður með 100 kr. kaupi og fæði og þjónustu kostar 1300 krón- ur. Meðaldilkur í haust gerir í hæsta lagi 35 kr. Til þess að borga kaupa- mannsbrúsann, þarf þá um 37 dilka. Næsta ár verður bezt fyrir bænd- ur að fá lausafólki jarðir sínar og bú og gerast kaupamenn. Fiskurinn að sögn óseldur. Tómhljóð í bönk- unum vegna stórskulda fiskkaupmanna og annara verzlunarspekúlanta. f i Jörðin Syðri-KambMll í Arnarneshreppi er til sölu nú þegar og til ábúðar í næstkom- Þau sláturfélög og þeir bændur, sem hafa í hyggju að skjóta sláturfé á komandi hausti, ættu að tala sem fyrst við undir- ritaðan, sem gefur upplýsingar um verð á byssum og skotum. Sigm. Sigurðsson. andi fardögnm. Semja ber við alþingismann Stefán Stefánsson, Fagraskógi. Lausafregnir herma að póstsjóður íslands skuldi póstsjóði Dana V/i miljón. Sagt að fregn þessi standi í sambandi við þær fyrirskipanir, sem nýlega eru komnar, að yfirfæra alls ekkert fé til útlanda póstleiðis. Skipafregnir. Borg komin til Austurlandsins frá Khöfn á leið hingað. Sterling fer frá Reykjavík 21. þ. m. í hringferð austur um. Á að fara héðan vestur um 27. þ. m. Villemoes fór til Blyth að sækja kol. Gengismunur kvað vera kominu á krónuna dönsku og íslenzku. Landmandsbankinn hefir gefið Landsbankanum skipun um að láta þann mun nema 5 aurum á hverri krónu. Annars er gengi í bönkunum í dag þetta: Dollar 6,75 kr. Sterlingspund 25,00 — Norsk króna 1,02 — Sænsk króna 1,42 — Florin 2,40 — Franki 0,55 — Mark 0,20 — A k u r e y r i. Ritstjórl Islendings kom nýlega heim með unnustu sinni Sigurlaugu Hallgrímsdóttur eftir nokkura dvöl í Skagafirði, Um líkt leyti kom til bæjarins síra Friörik Friðriksson prestur og framkvæmdastjóri K. F. U. M., Reykjavík. Hann er barna vinur mik- ill og skilur börnin. Hann hefir hrifið margan .ungling til sín af vegi gjálífis og spillingar inn á braut siðlegs þroska. Hallgr. Kristinsson og 50 þús. króna ketgróðinn. Sú saga gengur staflaus um Akur- ey> og grend, höfð eftir kaupmanni, að Hallgr. Kristinsson hafi keypt það, sem óselt var af keti Samb. ísl. Sam- vinnufélaga og grætt á því 50 þús. kr. Rað þarf ckki að taka það fratn, að Kýr til sölu Snemmbær kýr. Upplýsingar í Kaupféiagi Eyfiröinga. þetta er ómenguð lýgi, spunnin af ill- um toga. Vatnsþró með sístreymandi vatni hefir verið bygð við lækinn upp af hafnarbryggj- unni. Á þróna er málað: >Brynnið hest- unum.« Retta er eftirtektarverðasta bygg- ingin í bænum. Síldinni er mokað á land hér við Eyjafjörð og áj] Siglufirði. Allar tunnur að verða fullar. Fátt heyrist enn um söluhorfur. Vonandi er að útgerðarmenn Iæri af dýrkeyptri reynslu síðasta árs, og selji ef kostur er, þó við lægra verði sé, heldur en að setja sjálfa sig og landið á hausinn. Klögun til stjórnarráðsins kvað vera í undir- búningi í Mývatnssveit og víðar, út af vanskilum á pósti. í Mývatnssv^it koma blöð aðeins stöku sinnum, einkum á sumrin. Fyrir nokkuru kom safn af þrem- ur póstsendingum í einu. Síðan ekki neitt. Baöhús f fyrir bæinn er sagt að kaupm. Rögn- valdur Snorrason sé að láta byggja. Margir hafa tekið sér óþarfara fyrir hend- ur. Framtakssemin er Iofsverð hvar sem hún er. Stefán skólameistari Stefánsson hefir verið á ferðalagi austur í Ringeyjarsýslu. Hann var stadd- ur á Grenjaðastað er hann véiktist sr.ögg- lega og var allþungt haldinn nokkra daga. Nú er hann aftur á bata vegi. Býst við að fara til Húsavíkur og koma þaðan sjóleiðis. Margir óska Stefáni af heilum hug heilsubótar og fullra starfskrafta sjálfs hans vegna og aðstandenda ogskólans. Námsskeið í útsaum, línsaum og kjólasaum hefi eg ákveðið að hafa í vetur, hið fyrra frá 20. október til 20. janúar og hið síðara frá 1. febrúar til 30. apríl. — Þær stúlk- ur, sem óska eftir að komast á þessi nám- skeið, annað eða bæði, ættu að tala við mig sem fyrst, eða í síðasta lagi 20. sept. Akureyri 11. ágúst 1920. Anna Magnúsdóttir. Kýr til sölu. Ung kýr góubær. Upplýsingar í Kaupfélagi Eyfirðinga. Vefnaðarnámsskeið (framhaldsnámsskeið) verður haldið á Akureyri frá 20. okt. til 20. des. næstkomandi. Kenslugjald 70 kr. Útlent efni og ullaruppistöður fæst á staðnum. Nánari upplýsingar gefur Halldóra Bjarnádóttir, Brekkugötu 15, Akureyri. Heimilisiðnaðarfélag Norðurlands, Kýr og kvígur til sölu. Vöglum 10. ágúst 1920. Stefán Kristjánsson. Óskilahestur kom fyrir á heimili mínu seint í júlí. Hesturinn er lftill vexti, brúnn að lit, markaður heilrifað hægra, aljárnaður. Sækir á að strjáka í suð-austurátt. Rétt- ur eigandi gefi sigfram hið allra fyrsta. Víðikeri í Bárðardal, 11. ágúst 1920. Tyggvi Guðnason. Ritstjóri: Jónas Rorbergsson. Prentsmiðja Björns jónssonar.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.