Dagur - 08.12.1920, Qupperneq 3
DAQUR
131
Stór Jólaútsala.
Frá Mánudegi 6. þ. m. gef eg
10—15°|0 AFSLÁTT
á öllum vörum. Góða alsokka, hálfsokka og sjóvetlinga tek jeg
eins og áður, fyrir hæsta verð, gegn peningum eða vörum.
Baldvin Ryei.
fullsiginn, og járnbrautarfélögin rík, eru
hrautirnar steinlagðar og steinsteyptar
milli þvertrjáa. Pær brautir eru traustar
og beztar yfirferðar, enda haggast ekki
né þurfa mikils viðhalds.
í víðlendi Vesturálfunnar hafa brautirn-
ar verið lagðar óðfluga um þvert land
og álmur frá aðalbrautum út um óbygð
fiæmi. Kapps hefir verið kostað um að
teygja þær sem lengst og sem vfðast,
til þess að hægt væri að beygja undir
mannsviljann harðsvíraða skóga og vilt-
an sléttugróður þessara víðu Ianda.
Rar sem brautargrunnarnir eru ekki
mölbornir heldur þvertré lögð á bera
mold, missígur grunnurinn og sporið
raskast allavega, þegar lestir fara yfir.
Er þá teinum og þvertrjám hættara við
broti. Auk'þess er'óhemjumikill grasvöxt-
ur á slíkum brautum. Leggist grasið á
teinana getur það stöðvað lestirnar. Gras-
ið merst undir hjólunum og verkar setn
borin væri olía á hjólin. Pau fá ekki
viðnám á teinunum, og snúast án þess
að hreyfa lestina.
Að viðhaldi brautanna vinnur því
mesti aragrúi nianna um alla Atneríku.
Þar sem umferð er mikil en brautirn-
ar^ ekki steinbygðar, er liðið sem
svarar einum manni fyrir hverja mílu
enska (1,609 km.). Svona margir menn
vinna á brautunum alt sumarið frá því
jörð þiðnar og þar til hún frís aftur
að haustinu. Peitn er skift í hópa 6--8
manns í hverjum, tneð verkstjóra yfir
hverjum hðp og með mismunandi langa
brautarkafla til umsjónar.
A veturna vinna færri menn. Pí eru
venjulega tveir til umsjónar, þar sem að
sumrinu er einn af áðurnefndum hóp-
um.
Kl. 7 að morgni leggjum við frá
næturhreysinu (það er gamal! vöruvagn
fast við brautina). Farartækið er hand-
knúinn járnbrautarvagn (hand car), setn
6 — 8 manns geta með naumindum stað-
ið á. Langslá sem leikur á stoðum und-
ir miðju hennar og með þversköftum
framan og aftan, úr langslánni járnteinn,
sem festur er á tannhjól undir botni
vagnsins, en það tannhjól knýr ganghjól
hans. Á sköftunum vegum við salt og
neytum allrar orku, þegar móti blæs eða
upp á við er að fara.
Við komum á ákveðin stað, þar sem
vinnu skal hefja. Vagninn er' tekinn af
sporinu, og við tökum verkfæri í hönd
og hefjum vinttuna. Höggvum gras frá
sporinu eða skifum um þvertré eða lyft-
um spori svo lárétt verði eða línurétt-
um sporið alt eftir því, sem við horfir
og verkstjórinn segir fyrir um.
Sólin stígur hærra og hærra. Um deg-
tnálabil er hitinn orðinn yfir 20° C. og
hann vex eftir því sem á daginn líður,
unz hann verður alt að 40° C. Geisl-
arnir eru eins og glóandi nálastungur,
himininn er alheiður og blæjalogn á.
Loftið þungt af reyk og móðu. Inn-
flytjandanum verður þungt um andar-
dráttinn og honum virðist hitinn muni
drepa sig á næstu augnablikum. Engin
svalandi hafgola eða fjallablær, engin
kælandi lind ekki einusinni forsæla með-
an borðaður er miðdegisverður klukkan
12 á hádegi.
Pegar degi hallar slær fyrir hægum
andblæ úr ýmsum áttum, og hann ber
með sér bylgjur af megnustu ýldulykt
úr þornandi stöðutjörnum í nánd. Inn-
fiytjandanum verður enn þyngra um
andardráttinn, honum finst hann klemd-
ur milli kistufjala og vera kviksettur í
þessari víðáttu, og hann bölvar þeirri
stund, er hann lét sér detta í hug, að
flytja til þessa lands.
Þegar sól færist í miðaftansstað er hald-
ið heim. Hitinn er að réna þó hann sé
enn mikill. Flugurnar koma á kreik —
»mosquitoes«, sem Vestur-ísl. kalla
mýflugur og »bulldogs« (nautahundar)
afarstórar og illvígar flugur en ekki marg-
ar. »Mosquitoes stinga í gegnum skyrtu
og jafnvel gegnum tvær skyrtur. Pær
hafa langan sograna. Bit þeirra er eitr-
að, svo óvanir og jafnvel sumir inn-
lendir menn þoia það mjög illa. Hlaupa
upp bólguþrimlar og hellur með verkj-
um og ofsalegum kiáða.
Dagsverkinu er lokið. Nóttin er erfið
og heit og næsti dagur svipaður þeim
síðasta og þeim næsta, stundum vikum
saman. Aðeins er hitinn nokkuð mis-
munandi mikill.
Ritfregnir.
jónaa Jónasson:
islcnzk málfrœði
hauda byrjendum,
þriðja, endurskoðuð
útgáfa. Akureyri 1920.
Þetta er þarfari bók en margt af því,
sem gefið er út í þessari dýrtíð. Bók-
in er orðin þjóðinni vel kunn, þar sem
þetta er þriðja útgáfa. Hún er ítarleg
eftir því sem byrjendabækur gerast, en
að líkindum tæplega eins ljós fyrir þá,
sem vilja stauta sig áfram tilsagnarlaust,
eins og t. d. Ritreglur Valdemars. Bók-
in er prentuð á dýrtíðarpappír, en verð-
ið er líka lágt aðeins 2 kr. Að öðru
leyti er frágangur hennar góður.
Sig. Ein. Hlíðar:
Samband manna-
berkla og nautgripa-
berkla. Akureyri 1920.
Sigurður dýralæknir hefir gert sér
far um að rannsaka og láta rannsaka
nautgripi hér í umdæmi sínu, til þess
að séð yrði, hversu mikil brögð væru
að nautgripaberkluni. Eins og gengur,
hefir aljaýða orðið misjafnlega við. Sum-
ir hafa fylst hræðslu og viíjað helzt
grafa gripi, sem berklar eða berkla-
smittun hefir fundist í, með húð og
hári. Steingr. læknir hefir ritað um mál-
ið alhtarlega í blaðinu og nú hefir Sig-
urður dýralæknir ritað um málið ofan-
skráðan ritling. Raunar virðast nú báð-
ir komast að mjög líkum niðurstöðum
urn árangurinn af rannsóknum í þessu
máli. Pó virðist Sigurður vilja gera öllu
meira úr hættu þeirri, sem mönnum
stafi af berklaveikum gripum. En að
þessum ritlingi verður helzt fundið, að
hann kemur ekki fram með ákveðnar
tillögur í málinu. Um það geta sjálfsagt
allir verið á sama máli, að nauðsynlegt
sé að rannsaka, en ekki er það einhlýtt
til útrýmingar berklunum. Niðurskurðar-
leiðin án íhlutunar og tilstyrks þess op-
inbera er varhugaverð leið, og einangr-
un sýktra gripa er óhugsanleg nema
með ærnum tilkostnaði. Skynsamlegasta
leiðin virðist vera sú, að leggja kapp á
að bæta fjósin sem mest og sem fyrst,
rannsaka alla gripi, gerilsneyða mjólk
úr sýktum gripum eftir því sem dýra-
læknir álítur nauðsynlegt og lóga þeim
smátt og smátt eftir þvi sem hentug-
leikar leyfa, án þess að gera sér stór-
feldan skaða- En flaustur og örþrifa-
ráð ætlu menn að varast.
Bæði þessi rit eru gefin út af bóka-
forlagi O^ds Björnssonar.
Símskeyti.
Rvík 7. des.
Póstflutningum haldið uppi á
öllum höfuðvegum í Noregi.
Nokkrar járnbrautarlestir ganga,
þó unnið sé að allsherjarverkfalli.
Bretar lofa járnbrautamönnum
styrk.
011 útflutningshöft á kolum af-
numin í Bretlandi.
Bretar hafa sent Bolsévíkum
uppkast að verzlunarsamningi.
Búist við að D’Annunzio fari
biáðlega frá völdum í Fiume.
Bandamenn mótmæla heim-
komu Konstantins og draga af
fjárstyrktil Grikkja. Konungssinn-
ar greiddu einir atkvæði við þjóð-
aratkvæðagreiðsluna.
Presturinn Flannagen, bráða-
birgðaforseti Irlands, segir Ira
fúsa til að semja, láti Lloyd Ge-
orge uppi, á hvaða grundvelli
hann vill semja.
Armeningar hafa neytt Tyrki
til betri vopnahléssamninga. Hafa
stofnað Sovét-ríki. Armeníu synj-
að um upptöku í þjóðabandalagið.
Argentína hættir samvinnu við
þjóöabandalagið, nema öll sjáif-
stæð ríki, ásamt Fýzkalandi, fái
upptöku, smáríki hafi aðgang en
ekki atkvæðisrétt, félagar ráðsins
kosnir lýðfrjálst, gerðardómur
stofnaður við starfandi dómstól
í Haag.
Matarstell,
Testell,
Postulínsbollapör,
Diskar fleiri teg.
fæst hjá
/óni P. Pór.
Forvaldur Thoroddsen Iiggur
mjög veikur í Höfn af heilablóð-
falli.
Verðlagsnefndin skipuð yfir
alt landið.
Guðm. Eggerz veitt lausn í
náð. SteindórGunnlaugsson skip-
aður til bráðabirgða, sýslumað-
ur í Árnessýslu.
Dómur fallinn í undirrétti í
Leósmálinu. Hallgrímur dæmdur
í þriggja ára hegningarhúsvist,
Geir tveggja ára og sex mánaða
og Elías tveggja ára.
Fréltaritari Dags',
Akureyri.
Fyrirlestra
til ágóða fyrir Heilsuhælissjóð Norð-
urlands flytur sr. Jakob Kristinsson.
I Samkomuhúsi bœjarins
S u n n u d a g i n n 12. þ. m. kl. 5
síðdegis.
Á Grund
Sunnudaginn 19. þ. m. kl. 11
árdegis (símaklukka).
Skólarn eistarastörfum
gegnir til bráðabirgða Árni Porvalds-
son I. kennari Gagnfræðaskólans í for-
föllum Stefáns skólameistara, sem enn
er veikur.
Steffensen læknir,
sem undanfarið hefir verið veikur af
völdum inflúenzu, er nú albata.
Arfhur Gook
trúboði, sem hefir verið í Englandi
s.I. sumar, kom heim með Lagarfossi
síðast. Hann segir ástandið í Englandi
ekki eins slæmt og ráða mætti af frétt-
um þeim, sem berast. Enginn órói né
æsingar á meðan kolaverkfallið stóð
yfir. Hann segir að vefnaðarvörur, skó-
fatnaður og fleiri vörur hafi mjög fall-
ið i verði i Englandi. Verksmiðjur sitji
uppi með miklar vörubirgðir, sem unn-
ar hafi verið eftir pöntunum frá Suður-
Ameríkubúum, en sem þeir hafa ekki
getað keypt vegna gengismismunar pen-
inganna. Pessvegna séu vörur þessar
nú boðnar við lægra verði og hafi á-
hrif út í frá. Ennfremur telur hann að
sumar iðnaðarvörur (járnvörur etc.) séu
ótrúlega ódýrar.
ViIIemoes
kom frá útlöndum til Siglufjarðar !og
Sauðárkróks og hingað í fyrrinótt. Tek-
ur síld og fer með hana beint til út-
landa. Með skipinu kom Sig. Bjarnason
Ásg. Pétursson og P. Pétursson kaupm.
frá útlöndum, og héðar fara þeirJónE.
Bergsveinsson kaupm. og Jakob Kristjáns-
sou prentari frá Reykjavík.
Aökomumenn
hafa verið margir í bænum vegna jarð-