Dagur - 15.12.1920, Qupperneq 3
DAQUR
135
Verzlun Björns Grímssonar
hefir til: Flestallar matvörur, mikíð af álnavöru,
allskonar bökunarvörur, niðursoðna ávexti, syltetöj,
reyktóbak margar tegundir, jólatrósskraut, konfekt
margar teg., póstport. Hentugttil jólagjafa:
Perlutöskur, seðlaveski, brjóstnælur, slaufu-
prjóna, saumakassa og fleira.
Því meira sem keypt er, því betra verð.
Skrá
yfir niðurjöfnun aukaútsvara í Akúreyrarkaupstað fyrir árið 1921
liggur frammi almenningi til sýnis á skrifstofu bæjarstjórans frá
17. til 31. des þ. á. að báðum dögum með töldum.
Kærum út af skránni sé skilað til formanns niðurjöfnunarnefndar
eigi síðar en 14. jan. 1921.
Bæjarstjórinn á Akureyri 15. des. 1920.
fón Sveinsson.
Rvík 14. des.
nægileg hey fyrir nægan bústofn, svo
að óbilandi sé í öllu, verði því að voga
á tvær hendur eða sjá fram á búskap-
arþrot, sem ekki er minsta vogun, þá
telur höf., að eg sé að hvetja menn
til skynsamlegrar vogunar, sem svo á
að þýða á mínum vörutn »vítaverð
fífldirfska* eða »gálaus ásetningur*. —
Auk þess, sem höf. leyfir sér að mis-
þyrma málinu, þá fer hann með stað-
laus ósannindi.
Enginn heilvita maður getur skilið
það af orðum mínum, að eg hvetji
bændur til fífldirfsku eða gáleysis í á-
setningi, og ekki einu sinni til skyn-
samlegrar vogunar, þar sem eg tel, að
200 daga innigjöf sé ekki nægilegt fóð-
ur í öllum árum hér um slóðir, þegar
ófyrirsjáanleg óhöpp bætast ofan á af-
taks harðindi. — Eg taldi það dýrm'ett,
að þurfa aldrei að voga bústofni í hættu
vegna fóðurskorts, og þyrfti að finna
ráð án þess að kaldhamra járn í »skýj-
um uppi«. Pað er barnaleg hárlogun
að segja, að það sem í éaun og veru
er talið skynsamlegt, í hverju sem er,
sé fíflska eða gáleysi. Það er t. d.
»skynsamleg vogun« að gera vel við
fé sitt, þó heyin ekki hrökkvi, ef hægt
er að bæta við aukafóðri. Það er ein-
att óhjákvæmilegt, að fela fjárhirðingu
á hendur viðvaningum eða Iítt þektum
niönnum, sem reynast misjafnlega. Pess
vegna er líka það skynsamleg vogun.
Enginn mun telja það fífldirfsku, þó
tckið sé tillit til góðrar útbeitar eða
fjörubeitar við ásetning, ef skynsamlegr-
ar varúðar er gætl og sjáanleg eru ráð,
þó sem verst fari, að skortur sé ekki á
kraftfóðri til uppfyllingar á næstu höfn-
um.
Með berum orðum læt eg þá skoð-
un í ljós, að aidrei hafi verið kveðinn
upp of harður dómur yfir þeim ögð-
um, sem fella úr hor. Eftir ummælum
höf. verður að skilja þessa yfirlýsingu
mína á þann hátt, að eg gerist mál-
svari þeirra, sem kvelja skepnur. Þess
vegna er eg »agði« sjálfur í þeirri
merkingu, sem eg nota orðið, eða »hor-
kongur«, sem höf. þykir íslenzkulegra.
Eg gerist svo djarfur, að bera hönd
fyrir höfuð mér og allra bænda, sem
komist hafa í heyþröng, en þó bjargað
fé sínu sómasamlega. Pað mun vera
allur þorri íslenzkra bænda, sem fyrir
því hafa orðið fyr og síðar af ýmsum
orsökum, t. d. Torfi í Ólafsdal. Lét
hann sækja um langan veg hvalket til
fóðurdrýginda á heimili sínu. — »Bún-
aðarvísindi* höf. ná ekki svo langt, að
hann skilji að hægt er að uppfylla all-
ar mannúðarkröfur um fóðrun á sképn-
um, þó heyskortur verði, »Dæmist því
rétt að vera«: Ailur þorri bænda á
landi nér eru: »vílkrákur, barlómar,
gorgeirshrokar, trassar, agðar, horkong-
ar, drýgja glæpi« (glæpamenn!). »Smekk-
legt* er nú mentamálið! Pegar hérvið
bætast þessi ummæli höf.: »Bændur
vinna fyrir sjálfa sig; geta því ekki
vænst stuðnings frá þjóðfélaginu. Þeir
geta og verðá*) að bjargast af«,
og þeir mega ekki fá eyris !án úr ný-
ári hjá verzlunum sínum, til bjargar,
hvorki mönnum eða skepnum, ef þeir
af einhverjum orsökum eru of tæpir
með hey, að^dómi forðagæzlumanns!,
— þá veröur sannarlega ekki annað á-
*) Leturbreyt. allar gerðar af mér P. G.
litið, en að þrssi nýi ráðunautur land-
búnaðarins sé núkið fremur ráðhollur(!!)
í garð bændastéítarinnar. Eðlilegt að
hann tylli sér á bekk hjá Torfa í Ól-
afsdal, sem hélt því fram, að landið
ætti ætíð að liggja með feikna birgðir
af útlendu kraftfóðri til tryggingar bún-
aðinum í hörðum árum. Það virðist
svo sem höf, »hafi ekki haft við hend-
ina« ritgerðir Torfa frekar en blaðið
»Tímann« með áskorun »merku kon-
unnar« og kanske lítið séð af því. Því
ekki samt að »nota tækifærið« til að
votta Torfa »beztu þakkir«! í sann-
leika átti hann það skilið; því má hver
maður trúa í blindni. —
Eg segi: »Þeir sem engan annan
fróðleik hafafram að bera landbúnaðað-
inum til viðreisnar, en að bændur geti
»sett svo vel á«, að aldrei verði hey-
þröng, hvað sem á dynur, en hrak-
yrða bændur, ættu vissulega að þegja«.
— Þessum ummælum mínum vísar höf.
í garð Torfa og allra mætra manna,
sem ritað hafa um landbúnað. — Rétt
er nú það. Höfðu þá þessir menn
ekkert fram að bera til viðreisnar og
stuðnings landbúnaði vorum, en fóru
að eins með hrakspár, ósannindi og
svívirðileg uppnefni í garð bænda? Þar
á meðal skólameistari St. St. í fóður-
birgða-athugunum sínum og lögform-
legum tillögum um stofnun fóðurbirgða-
félaga. Flestir munu telja, að þar séu
fundin óbrigðul ráð gegn fóöurskorti
að fráskildum S. J. lækni, sem telur
það hið mesta tjón fyiir búándi mann,
að gefa útlent kraftfóður. »Skárra að
vísu, en fella úr hor!« Hér gefur á
að líta búnaðarvísindin! Næstliðinn
vetur kostuðu 100 pd. af rúgméli 31
— 33 kr. Jafngildir það að allra dómi
sem fóðurgildi að minsta kosti 300 pd.
af töðu. Meðalverð á þeirri töðuþyngd
mun hafa verið í það minsta 45 krón-
ur; verður þá þriðjungi ódýrara að
gefa kraftfóðrið, auk þess sem blandað
fóður gefur meiri arð af mjólkurgrip-
um. Eg vil fullyrða, að um 30 ár
hafa verðhlutföil verið þau á töðu og
kraftfóðri, miðað við fóðurgildi, að
fremur hefir verið beinn hagur að kraft-
fóðursgjöf.
(Meira).
Porsteinn Gislason.
Sfmskeyti.
Rvík 8. Des.
Sinnfeinar hóta að myrða hvern
Ira, sem reynir að semja við Breta.
Verkamannaþing verður hfaldið
í London 22. Desember þ. á. til
að ræða um hráefnaskort, gengis-
bætur, þjóðnýting framleiðslu-
tækjanna og varnir gegn ofsókn-
um gegn verkalýðnum.
Skonnortan »Dragör« strand-
aði í Landeyjum á Mánu-
daginn var. Var á leið frá Kaup-
mannahöfn til Isafjarðar að taka
fisk. Engar vörur voru í skipinu.
Mannbjörg varð.
Verðlækkun hér á ýmsum vör-
um í smásölu.
Næsta þjóðþing verður 5. sept-
ember 1921.
Wilson hefir fengið friðarverð-
laun Nobels 1919.
Leon Bourgeois, form. þjóðar-
ráðsins, verðlaunin 1920.
Tvö ítölsk herskip gengu í lið
D’ Annunzio.
Lloyd George hefir sagt í brezka
þinginu, að stjórnin ætli að kúga
Ira. Umsátursástandverði á vissum
stöðum, dauðahegning lögð við að
eiga vopn. Brezkir hermenn
brendu meiri hluta Corksborgar
til kaldra kola í fyrrinótt f hefnd-
arskyni við Sinnfeina. Brezk blöð
heimta rannsókn og taka ekki til
greina sögusögn stjórnarinnar um
að hún hafi í bili rpist stjórn á
hernum í Irlandi.
I Grikklandi greiddu 999954
Konstantín atkvæði, 10383 móti
Hann heldur heim þrátt fyrir
fjandskap bandamanna.
Kolaverð fellur í Danmörku.
Jarðskjálftar á Italíu eyðilögðu
margar borgír, 200 manns fórust
í Valona.
Norrænn sjómannafundur hald-
in í Gautaborg um þessar mundir.
Dómur er fallinn í þjófnaðar-
málinu hér: Kristján Bjarnason
12 mánaða betrunarhúsvist, Gúst-
af Sigurbjarnarson 9 mánaða, báðir
fyrir stórþjófnað. Upp á vatn og
brauð fyrir að kaupa stolna muni
eru dæmd: Vidar Vik 20 daga,
Lydia Theil 15 daga, Guðjón
Guðmundsson 15 daga, OJafur
Magnússon 5 daga.Skilyrðisbund-
inn dóin fengu: Siggeir Siggeirs-
son 30 daga vatn og brauð, Jón
Einasson 25, Albert Olafsson 15,
Íftelgi Skúlason 10 daga, Bryn-
jólfur Hannesson 5 daga, Stein-
grímur Klingenberg Guðmunds-
son 3 daga. Sýknaðir voru al-
veg Geir Pálsson, Níels Petersen
og Tómas Tómasson. Prír þeir
fyrst töldu hafa áfrýjað til Hæsta-
réttar.
Frcttaritarl Dags',
Akureyri.
Fyrirlestur
sr. Jakobs Kristinssonar var ágætlega
sóttur. Hann gaf yfirlit helztu trúar-
bragða heimsins og sýndi fram á skyld-
leika þeirra eftir heimildum, sem allir
samanburðartrúfræðingar eru sammála
um. Yfirlitið sýnir glögt að öll helztu
trúarbrögð eru greinar á sama stofni.
Fyrirlesarinn brýndi fyrir mönnum að
varast það dramb, sem mjög hefir brytt
á í kristnum kirkjum, að álíta hina
kristnu söfnuði eina á réttri leið til
guðs, en velja öllum öðrum trúflokk-
um heiðingjaheitið. Fyrirlesturinn var
skörulega fluttur og af mikilli mælsku.
Hann var þörf og harðvítug árás á
þröngsýnina.
Skrá
yfú aukaniðurjöfnun í Akureyrarkaup-
stað fyrir árið 1921 hefir blaðinu bor-
ist. Hæstur gjaldandi er Kaupfélag Ey-
firðinga með 15000 kr. Næstar eru
Höepfnersverzlun og Hinar sam. fsl.
verzianir með 6000 kr. hvor.
Útsvarið sem lagt er á K. E. er í raun
réttri lagt á eyfirzka bændur. Það eru
teknartil bæjarþarfa 15000 kr.af geymslu-
fé þeirra í þeirra eigin verztun. Þessi
upphæð skiftist misjafnlega tiiður á fé-
lagsmenn eft:r því, hversu mikla verzl-
un þeir gera. Munu sumir bændur gjalda-
meira til bæjarþarfa fyrir að nota vegi
hans, helduren verkamenn gjalda til allra
bæjarmála. Verður minst á þétta síðar.
Jbúata/a
Akureyrarkaupstaðar er samkv. ný-
gerðu mauntali um 2500.
i